Selfoss fagnaði fyrsta sigrinum gegn Fram Ágúst Orri Arnarson skrifar 19. september 2025 21:41 Selfoss er fyrsta liðið til að leggja ríkjandi Íslands- og bikarmeistara Fram að velli. Selfoss fagnaði fyrsta sigri tímabilsins og varð í leiðinni fyrsta liðið til að vinna ríkjandi meistara Fram, með 32-31 sigri í þriðju umferð Olís deildar karla í handbolta.
Selfoss leiddi leikinn lengst af og náði nokkrum sinnum fimm marka forystu en Fram átti eftir að stríða þeim á lokamínútunum. Ríkjandi Íslands- og bikarmeistararnir búa yfir öflugu liði sem tók yfir og jafnaði leikinn 27-27 þegar tæpar tíu mínútur voru eftir. Spennan var því magnþrungin á Selfossi þegar lokamínúturnar gengu í garð. Gestirnir náðu forystunni 30-31 og virtust ætla að vinna magnaðan endurkomusigur en þá skelltu heimamenn í lás og héldu markinu hreinu síðustu tvær mínúturnar. Tryggvi Sigurberg jafnaði leikinn þegar rúm mínúta var eftir og línumaðurinn Gunnar Kári skoraði sigurmarkið þegar örfáar sekúndur voru eftir. Philipp Seidemann varði svo lokaskot leiksins frá Dánjal Ragnarssyni, þvílík byrjun hjá Þjóðverjanum sem skrifaði undir samning við Selfoss í gær. Selfoss hefur nú unnið einn leik, gert jafntefli við ÍR og tapað gegn KA. Fram vann fyrstu tvo leiki tímabilsins, gegn FH og Þór, en tókst ekki að jafna sigurfjölda Aftureldingar sem er með fullt hús stiga í efsta sæti deildarinnar.
Olís-deild karla UMF Selfoss Fram Mest lesið De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Fótbolti „Mig dreymdi þetta“ Fótbolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira