Alríkislögreglan birtir myndskeið af morðingjanum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 12. september 2025 06:26 Á myndskeiðinu sést byssumaðurinn hlaupa eftir þaki, stökkva niður og ganga í burtu. Skjáskot Alríkislögreglan hefur birt myndskeið sem sýnir einstaklinginn sem grunaður er um að hafa banað Charlie Kirk hlaupa eftir þaki byggingar, stökkva niður, og ganga í burtu.
Samkvæmt texta sem fylgir myndskeiðinu segir að grunaði hafi klifrað upp á þakið um klukkan tólf á hádegi en myndskeiðið sýni hann stökkva af þakinu og ganga á brott eftir að „hann skaut og myrti Charlie Kirk“ um tuttugu mínútum síðar. Þá greinir frá því að viðkomandi hafi skilið skotvopn og skotfæri eftir í skóglendi nærri háskólanum þar sem árásin átti sér stað. Greint hefur verið frá því að um hafi verið að ræða 30 kalíbera Mauser riffil. Á þakinu hafi fundist skófar, far eftir framhandlegg og lófafar. Þeir sem telja sig hafa einhverjar upplýsingar um málið eru hvattir til að setja sig í samband við Alríkislögreglunni, segir einnig í textanum. „Við þurfum alla þá hjálp sem við getum fengið,“ sagði Spencer Cox, ríkisstjóri Utah, á blaðamannafundi í gær. „Við getum ekki gert þetta án aðstoðar frá almenningi.“ Yfirvöld segja 7.000 ábendingar hafa borist í tengslum við skotárásina. Donald Trump Bandaríkjaforseti tók undir það með blaðamanni í gær að menn ættu ekki að svara morðinu á Kirk með meira ofbeldi en bæði hann og fleiri embættismenn hafa kallað eftir því að morðinginn verði dæmdur til dauða. Líkamsleifar Kirk voru fluttar til Arizona í gær um borð í Air Force Two. Um borð voru varaforsetahjónin og Erika, ekkja Kirk.
Bandaríkin Morðið á Charlie Kirk Skotárásir í Bandaríkjunum Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Sjá meira