Maxwell vill friðhelgi fyrir vitnisburðinn Hólmfríður Gísladóttir skrifar 30. júlí 2025 11:45 Maxwell hefur verið lýst sem vini Epstein, starfsmanni og stundum kærustu. Getty/Patrick McMullan Eftirlitsnefnd fulltrúadeildar bandaríska þingsins hefur hafnað umleitan Ghislaine Maxwell um að hún fái friðhelgi gegn því að bera vitni fyrir nefndinni.
Ef Maxwell hefði orðið að ósk sinni hefði það þýtt að ekki hefði verið hægt að sækja hana til saka í fleiri málum er tengjast Jeffrey Epstein en Maxwell afplánar nú 20 ára dóm fyrir mansal og fleiri brot tengd athafnamanninum. Maxwell hefur verið stefnt fyrir nefndina í ágúst en lögmaður hennar sagði í erindi til nefndarformannsins og Repúblikanans James Corner að hún gæti ekki tjáð sig í því pólitíska fárviðri sem nú geisaði vegna málsins, án þess að fá tryggingu þess efnis að hún yrði ekki sótt til saka fyrir aðra glæpi tengda Epstein. Talsmaður nefndarinnar sendi hins vegar frá sér yfirlýsingu fyrr í vikunni þar sem sagði að erindi lögmannsins yrði svarað innan skamms en nefndin væri ekki að íhuga að veita Maxwell friðhelgi. Lögmaður Maxwell hefur einnig farið fram á að Maxwell verði hleypt úr fangelsinu til að bera vitni og að hún fái spurningar nefndarinnar fyrirfram. Hún myndi aðeins svara spurningum nefndarinnar fyrir opnum tjöldum ef hún fengi friðhelgi. Maxwell hefur farið þess á leit við Hæstarétt að hann taki mál hennar fyrir og snúi niðurstöðu undirréttar. Þá hafa margir velt því fyrir sér hvort Donald Trump Bandaríkjaforseti muni náða hana til að þagga niður hvaðeina sem hún gæti haft að segja um tengsl hans við Epstein og mögulega aðkomu að glæpum hans. Trump hefur hingað til sagt að hann sé ekki að velta því fyrir sér að náða Maxwell.
Bandaríkin Mál Jeffrey Epstein Erlend sakamál Kynferðisofbeldi Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira