Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Jón Þór Stefánsson skrifar 23. júlí 2025 23:15 Donald Trump segir að vinslit hafi orðið milli hans og Jeffrey Epstein snemma á þessari öld. EPA Pam Bondi, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, er sögð hafa tilkynnt Donald Trump Bandaríkjaforseta að nafn hans væri að finna nokkrum sinnum í skjölum tengdum kynferðisbrotamanninum Jeffrey Epstein.
Frá þessu greinir The Wall Street Journal, en í kjölfar þess að miðillinn birti sína grein hefur fjöldi annarra fjölmiðla sagt þessar sömu fréttir. Umræddar upplýsingar eru hafðar eftir ónefndum embættismönnum úr efri lögum bandaríska stjórnkerfisins. Bondi mun hafa sagt Trump frá umræddum fregnum í maí síðastliðnum á fundi þar sem rætt var um að Alríkislögregla bandaríkjanna, FBI, væri að kanna gögn Epstein-málsins á nýjan leik. Það að Trump væri í skjölunum er ekki sagt hafa verið meiginumræðuefni fundarins, heldur málið almennt. Jafnframt kemur fram að fjölda annarra nafna sé að finna í umræddum skjölum, þar á meðal nöfn annarra háttsettra einstaklinga. Í frétt Wall Street Journal er bent á að það að nafn Trump sé í skjölunum þýði ekki að hann sé endilega bendlaður við neitt saknæmt. Epstein, eins og frægt er orðið, lést í fangelsi árið 2019 meðan hann var til rannsóknar fyrir umfangsmikla kynferðis- og mansalsglæpi gagnvart börnum. Mál hans hefur vakið athygli á ný undanfarið, bæði vegna þess að ríkisstjórn Trump hætti við að birta ýmis gögn tengd máli hans, og vegna meintra tengsla Trump við Epstein. Fyrir liggur að Epstein og Trump voru vinir eða kunningjar á árum áður, en að sögn Trump urðu vinslit þeirra á milli snemma á þessari öld.
Donald Trump Mál Jeffrey Epstein Bandaríkin Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira