Upp­gjörið: KA - ÍA 2-0 | KA sendi KR í fallsæti

Valur Páll Eiríksson skrifar
Hallgrímur Mar skoraði annað marka KA sem fer af fallsvæðinu með mikilvægum sigri.
Hallgrímur Mar skoraði annað marka KA sem fer af fallsvæðinu með mikilvægum sigri. Vísir/Ernir Eyjólfsson

KA vann 2-0 sigur á ÍA á Greifavellinum á Akureyri í Bestu deild karla. Með sigrinum fer KA af fallsvæðinu en skilur Skagamenn eftir á botni deildarinnar.

Leikur dagsins var gríðarmikilvægur fyrir bæði lið enda jöfn á botni deildarinnar og ljóst að sigurliðið færi af fallsvæðinu. Heimamenn byrjuðu betur. Hallgrímur Mar Steingrímsson sprengdi vörn Skagamanna upp með stórglæsilegri viðstöðulausri sendingu á Ingimar Stöle sem kom boltanum til Færeyingsins Jóan Símun Edmundsson og sá átti auðvelt með að koma boltanum yfir línuna af stuttu færi.

Staðan 1-0 eftir sextán mínútna leik.

Fátt var um færi eftir það. Leikurinn einkenndist af stöðubaráttu og færin létu á sér standa þrátt fyrir ágætis sóknarstöður hér og þar. Töluverður hiti var í leiknum og mátti heyra glyminn í rifrildi þjálfaranna tveggja undir lok hálfleiksins.

Síðari hálfleikur svipaði til þess fyrri. Liðin sköpuðu sér einhverjar sóknarstöður en barningurinn var meira áberandi en færin.

Birnir Snær Ingason kom inn á í sínum fyrsta leik fyrir Norðanmenn og fékk ágætis færi skömmu eftir að hann kom inn af bekknum. Honum tókst þó ekki að setja mark sitt á leikinn.

Hallgrímur Mar Steingrímsson gerði út um vonir Skagamanna um jöfnunarmark þegar hann innsiglaði 2-0 sigur KA á 84. mínútu. Varnarleikur Skagamanna í marki KA-manna virtist heldur áhugalítill.

KA vann 2-0 og fer af fallsvæðinu í tíunda sæti með 18 stig, en FH og ÍBV eru þar fyrir ofan með sama stigafjölda. ÍA er áfram á botninum með 15 stig og KR færist niður í hitt fallsætið, með 16 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira