Minnstu sparisjóðirnir sameinast Atli Ísleifsson skrifar 4. júlí 2025 10:17 Stærstu eigendur Sparisjóðs Höfðhverfinga eru KEA og Sænes (Grýtubakkahreppur) en eignarhald Sparisjóðs Strandamanna er dreift á fjölda einstaklinga. Stjórnir Sparisjóðs Höfðhverfinga hf. og Sparisjóðs Strandamanna hf. hafa undirritað samrunaáætlun um sameiningu sjóðanna en hún tekur mið af stöðu sjóðanna í upphafi árs.
Í tilkynningu segir að sameinaður sjóður muni heita Smári sparisjóður hf. en hann muni markaðsetja sig áfram undir merkjum Sparisjóðanna. Sparisjóðirnir voru minnstu sparisjóðir landsins þegar ráðist var í sameiningarviðræður. „Samhliða samrunaáætluninni voru undirritaðir samningar við KEA sem tryggja sameinuðum sjóði aukið hlutafé til vaxtar en það er eitt meginmarkmiða með sameiningu sjóðanna. Fjárhagsstaða sameinaðs sjóðs verður mjög traust, sjóðurinn verður með hátt eiginfjárhlutfall og sterka lausafjárstöðu og því vel í stakk búinn til þess að stækka efnahagsreikning sinn töluvert á næstu misserum. Sjóðurinn mun leggja ríka áherslu á að þjónusta vel sín starfssvæði í Eyjafirði og á Ströndum líkt og þeir sjóðir sem eru að sameinast hafa gert frá upphafi. Samtals eiga sjóðirnir 280 ára samfellda rekstrarsögu. Hluthafafundir sjóðanna þar sem samrunaáætlunin verður til afgreiðslu verða haldnir síðsumars,“ segir í tilkynningunni. Stærstu eigendur Sparisjóðs Höfðhverfinga eru KEA og Sænes (Grýtubakkahreppur) en eignarhald Sparisjóðs Strandamanna er dreift á fjölda einstaklinga. Hvor sjóður um sig er með yfir 130 ára samfellda rekstrarsögu, auk þess sem báðir sjóðirnir breyttu félagsformi sínu í hlutafélag á liðnu ári. Mikil tækifæri Haft er eftir Jóhanni Ingólfssyni, stjórnarformanni Sparisjóðs Höfðhverfinga, að hann sé mjög ánægður með niðurstöðuna. „Með þessu eflast þessir sjóðir mjög mikið og hafa aukna getu til að þjónusta sín nærsvæði enn betur en þeir hafa gert til þessa. Þetta styrkir líka heildarumgjörð þeirra sparsjóða sem eru starfandi en þeir verða þá þrír og allir svipaðir að stærð. Við tekur mjög spennandi verkefni við það að leiða saman þessi rótgrónu fyrirtæki og sækja fram.” Þá er haft eftir Víði Álfgeiri Sigurðarsyni, stjórnarformanni Sparisjóðs Strandamanna hf, að mikil tækifæri séu í sameiningu þessara sjóða. „Sameinaður sparisjóður verður fjárhaglega sterkur og enn betur í stakk búinn til þess að styða við nærsamfélagið og sækja fram. Áfram verður unnið að auknu samstarfi sparisjóða í gegnum Samband Íslenskra Sparisjóða. Framundan eru krefjandi verkefni við samþættingu sjóðanna og vöxt til framtíðar.”
Fjármálafyrirtæki Kaup og sala fyrirtækja Akureyri Strandabyggð Grýtubakkahreppur Mest lesið Play er gjaldþrota Viðskipti innlent Þetta eru réttindi þeirra sem eiga bókað með Play Neytendur Fargjöld ekki hækkuð af ásettu ráði Viðskipti innlent Koma fólkinu heim með fimmtán milljóna króna leiguflugi Viðskipti innlent Kveðjubréf Einars forstjóra til starfsfólks Viðskipti innlent Engin ást eftir milli flugmanna og stjórnenda Viðskipti innlent Farþegar Play í Keflavík klóra sér í kollinum Viðskipti innlent Sömu miðarnir kosti nú 370 þúsund Viðskipti innlent „Við erum ekki með öll eggin í sömu körfu“ Viðskipti innlent „Hver fyrir sig hvað það varðar“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka Kristjánsbakaríi Hætta rekstri tveggja skipa í hagræðingarskyni Engin ást eftir milli flugmanna og stjórnenda Sömu miðarnir kosti nú 370 þúsund Koma fólkinu heim með fimmtán milljóna króna leiguflugi Fargjöld ekki hækkuð af ásettu ráði Samgöngustofa fundaði nýlega með Play og fékk gögn frá KPMG „Við erum ekki með öll eggin í sömu körfu“ „Hver fyrir sig hvað það varðar“ Farþegar Play í Keflavík klóra sér í kollinum Ráðin sölu- og markaðsstjóri hjá Alfreð Kveðjubréf Einars forstjóra til starfsfólks Play er gjaldþrota Bein útsending: Staða aðfluttra á húsnæðismarkaði Spennandi tími til að opna nýjan fjölmiðill Lífsverk og Almenni lífeyrissjóðurinn í eina sæng Lagning gjaldþrota Fyrrverandi bankastjóri nýr forstjóri Thor landeldis Edda María leiðir stafræna markaðsþjónustu Vettvangs Uppsagnir hjá Fjársýslunni Guðný ráðin fræðslustjóri og Kristófer Orri í gjaldeyrismiðlun Kostaði tvo milljarða að selja Íslandsbanka Verðbólgan 4,1% og fer upp á milli mánaða Bein útsending: Framsýn forysta Opnar stað í anda Kaffi Vest í Fossvoginum Neyslan mikil og sjá ekki að stýrivextir fari hratt lækkandi Sexfölduðu veltuna á einu ári Gjaldeyrisforðinn nálægt billjón króna Rúna nýr innkaupastjóri Banana Úr geimskipaútgerð til Faxaflóahafna Sjá meira