Kerlingarfjöll: Ævintýri á hálendi Íslands Hálendismiðstöðin í Kerlingarfjöllum 3. júlí 2025 14:04 Í mögnuðu umhverfi Kerlingarfjalla er eitthvað fyrir alla. Kíktu við í sumar, hálendið er handan við hornið. Í sumar er tilvalið að gera sér ferð til fjalla og láta sér líða vel í faðmi náttúrunnar. Hálendið er nær en þú heldur og lítið mál að skjótast þangað í dagsferð á sumrin, hvort sem þú vilt keyra á eigin vegum eða skella þér í skipulagða ferð.
Eins dags ævintýri í Kerlingarfjöllum Skipulagðar dagsferðir úr Reykjavík í Kerlingarfjöll verða í boði í allt sumar. Ferðin er á vegum Hálendismiðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum og henni fylgir akstur úr Reykjavík og til baka, aðgangur að Hálendisböðunum, rúta að háhitasvæðinu í Hveradölum og leiðsögn um svæðið, auk þess sem stoppað verður við Gullfoss og Geysi á leiðinni. Dagsferðin er tilvalin leið til að njóta fjölbreyttrar náttúru og upplifa auðn hálendisins. Hægt er að skrá sig í göngu með leiðsögumanni um hálendið. Hluti af töfrum hálendis Íslands felst nefnilega í leiðinni þangað. Þögnin sem einkennir grýttar auðnirnar er engu lík og fær ferðalanga til að staldra við og leggja við hlustir. Kjalvegur, sem liggur til Kerlingarfjalla á miðhálendi Íslands opnaði sérstaklega snemma í ár og á leiðinni er tilkomumikil náttúra við hvert fótmál—rjúkandi jarðhitasvæði og hrímkaldar jökulár í bland við snæviþakta fjallstinda og stórbrotna útsýnisstaði. Fyrir þau sem vilja takast sjálf á við fjallvegina, frekar en að njóta útsýnisins úr rútu, er kjörið að skella sér í bíltúr og leggja í dagsferð á eigin vegum. Slaka á í Hálendisböðunum með einstakt útsýni til fjalla og fá sér kaffibolla og dýrindis vöfflu. Á matseðli Hálendismiðstöðvarinnar eru meðal annars dýrindis vöfflur. Yljandi böð í óviðjafnanlegu umhverfi Hálendisböðin í Kerlingarfjöllum eru staðsett við Hálendismiðstöðina í miðjum Ásgarði, á bökkum Ásgarðsár, með ótrúlegt útsýni yfir fjallgarðinn sem umlykur dalinn og er þar tilvalið að slaka á eftir viðburðaríkan dag eða safna orku fyrir næsta ævintýri. Allir gestir í Kerlingarfjöllum geta keypt aðgang að Hálendisböðunum, hvort sem þeir gista á svæðinu eða ekki, en aðgangur fylgir með gistingu á hóteli og í einkaskálum. Í Hálendisböðunum er meðal annars heit setlaug, kaldur pottur, glæsileg sauna og bar þar sem hægt er að panta svalandi drykki til að njóta ofan í. Umgjörðin er hlýleg og náttúruleg enda er aðstaðan hönnuð í fullkomnum samhljómi við umhverfið sem umlykur. Útsýnið frá Hálendisböðunum er magnað. Griðastaður á hálendinu Hálendismiðstöðin sem nú er starfrækt í Kerlingarfjöllum er hlýlegur griðastaður og er hvert rými hannað með slökun og þægindi að leiðarljósi. Í hálendismiðstöðinni er notalegur veitingastaður þar sem boðið er upp á ljúffengan mat í hlýlegu umhverfi. Boðið er upp á bragðgóðan hádegis- og kvöldverð, morgunverð og hefðbundið íslenskt vöfflukaffi. Vöfflurnar eru dásamlegar, með þeyttum rjóma, sultu og sírópi og eru í boði ásamt rjúkandi heitum bolla af kaffi eða súkkulaði á hverjum degi frá kl. 15:00-17:00. Glæsileg gistiaðstaða er í Kerlingarfjöllum. Í Kerlingarfjöllum er boðið upp á gistingu við allra hæfi. Einföld tjaldgisting, þægindi á hótelherbergi og allt þar á milli. Á tjaldsvæðinu kemst þú í bein tengsl við náttúruna á þessum einstaka stað. Gestir á tjaldsvæðinu hafa aðgang að eldunaraðstöðu, salernum, sturtu og útigrilli í þjónustuhúsi og geta auk þess borðað á veitingastaðnum á hótelinu og keypt aðgang að Hálendisböðunum. Ævintýri fyrir alla Í Kerlingarfjöllum er boðið upp á úrval afþreyingar á borð við fjallahjólreiðar, buggy-akstur, fjalla- og gönguskíði og fleira. Mikið er af spennandi gönguleiðum um svæðið þar sem líta má magnaða náttúru og víðerni miðhálendisins. Hægt er að skrá sig í göngu með leiðsögumanni sem er sérfróður um þessa einstöku náttúruperlu og láta leiða sig um ótroðnar slóðir sem fæstir fá nokkurn tímann að sjá. Náttúrufegurðin og þögnin sem ríkir á hálendinu er engu lík. Fyrir þá sem heldur vilja kanna umhverfið á eigin vegum má nálgast tillögur að fjölbreyttum gönguleiðum á heimasíðu Hálendismiðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum. Í sumar er boðið upp á daglega göngu með leiðsögumanni um Hverabotn sem er einstök náttúruperla inn af Hveradölum. Gengið er upp í átt að Mænisjökli upp á hæsta punkt Hverabotns, þar sem stórkostlegt útsýni yfir dalinn blasir við. Hverabotn er hluti af háhitasvæði Kerlingarfjalla, sem er eitt virkasta háhitasvæði Íslands, og er einstaklega ríkur að síbreytilegum jarðhitamyndunum. Gangan liggur um fáfarna slóða að þessu kraftmikla náttúruundri sem magnað er að berja augum. Aðstaðan er öll til fyrirmyndar. Í mögnuðu umhverfi Kerlingarfjalla er eitthvað fyrir alla, og fátt betra en bíltúr um heillandi umhverfi íslensku óbyggðanna. Kíktu við í sumar, hálendið er handan við hornið. Það er vinsælt að stunda fjallahjólreiðar á hálendinu.
Ferðalög Fjallamennska Heilsa Ferðaþjónusta Mest lesið Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Lífið „Við erum öll dauð hvort sem er“ Lífið Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar Lífið 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Lífið Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Lífið „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið Útgefandi Walliams lætur hann róa Lífið Best klæddu Íslendingarnir 2025 Tíska og hönnun Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Lífið Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Lífið Fleiri fréttir Mikils virði að gefa fólki frelsi til að velja Fjölbreyttir jólasmáréttir frá Kjarnafæði Snéru upp á klassískt jólalag Jólaundirbúningurinn byrjar í KiDS Coolshop Augnablikin sem urðu að minni þjóðar Setningar sem eiga skilið innrömmun Konráð kveður á mildan hátt Helvítis jólapizzan slær í gegn á Eldofninum Íslensk nauta- og sælkeratólg slær í gegn Sú besta hingað til Sjórinn er enn á sínum stað Þroskuð húð fær aukinn ljóma Mzungu þýðir ekki annað en trúgjörn bráð Amor svífur yfir Norðurlandi Aftenging í sítengdum heimi Spennandi nýjungar í íslensku konfekti Metsölulisti og enn betra bókaverð í Nettó Hröð og skemmtileg rússíbanareið EKOhúsið sér um umhverfisvænu jólagjafirnar Ekkert betra en sú þerapía að rifja sitt eigið líf upp Næturserum fyrir hárið – bylting í hárumhirðu Glóandi hættulestur Árni Már og Unnar Ari opna vinnustofuna á laugardaginn Fólk hafði af því miklar áhyggjur að ég ætlaði að „pipra“ Fallegu jólagjafirnar fást í Maí Alvöru ítalskur veitingastaður í hjarta borgarinnar Pöbbkviss 5 söluhæsta spil landsins Gefðu töfrandi skemmtun í jólagjöf Epli með nýja stórglæsilega verslun Konfektleikur í tilefni 90 ára afmælis Nóa Síríus Sjá meira