Handbolti

„Í lokin snýst þetta alltaf um okkur sjálfa“

Smári Jökull Jónsson skrifar
Einar segir sínum mönnum til í kvöld.
Einar segir sínum mönnum til í kvöld. Vísir/Pawel

Einar Jónsson þjálfari Framara sagði liðið sinn hafa spilað heilsteyptan leik gegn Val í kvöld en Fram vann 36-33 sigur í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvígi Olís-deildar karla. Liðin mætast næst á mánudag.

„Mér fannst við frábærir sóknarlega og mér fannst Bjöggi [Björgvin Páll Gústavsson] eiginlega halda þeim inni í þessum leik,“ sagði Einar í samtali við Vísi eftir leik.

Fram hafði yfirhöndina í leiknum frá miðjum fyrri hálfleik og komst mest sjö mörkum yfir í síðari hálfleiknum. Þá náðu Valsarar 7-1 kafla og minnkuðu muninn niður í eitt mark.

Einar líflegur á hliðarlínunni að vanda.Vísir/Pawel

„Svo vorum við aðeins klaufar þegar voru 7-8 mínútur eftir, slæmur kafli hjá okkur. Þar fyrir utan vorum við hrikalega heilsteyptir sóknarlega. Varnarlega fannst mér við líka vera fínir en ég hefði viljað fá aðeins betri markvörslu. Það kemur, að vinna Val á þeirra heimavelli. Þú þarft bara að eiga frábæran leik til að gera það.“

Á þessum kafla þegar Valsmenn minnka muninn héldu Framarar þó haus og náðu vopnum sínum á nýjan leik.

„Við áttum reyndar líka eitt eða tvö skot í stöng og slá. Við hefðum getað verið örlítið klókari en það er erfitt að spila 60 mínútur óaðfinnanlegan sóknarleik. Þetta var slæmur kafli og við vitum það að Valur refsar fyrir svona kafla. Þeir eru bara góðir, drullugóðir. Svona er bara íþróttin.“

Reynir Þór Stefánsson lék sinn fyrsta landsleik um helgina eftir frábært tímabil. Hann var algjörlega stórkostlegur í kvöld og skoraði tólf mörk. 

„Hann var frábær og er náttúrulega búinn að spila svona eiginlega í allan vetur. Ég hef stundum pirrað mig á því að hann mætti skora meira. Hann er bara frábær leikmaður, það er lítið annað hægt að segja og hann spilaði stórkostlegan handbolta í kvöld,“ sagði Einar og bætti við að hann væri ekki pirraður á markaleysi hjá Reyni í kvöld.

„Hann var „outstanding“ hér í kvöld.“

Næsti leikur liðanna fer fram á mánudag í Lambhagahöllinni í Úlfarsárdal.

„Það verður geggjað, það verður erfitt eins og þessi leikur. Nú er bara þetta týpíska leiðinlega svar, endurheimt og fara yfir leikinn. Í lokin snýst þetta alltaf um okkur sjálfa sama hver mótherjinn er. Við ætlum að mæta 100% tilbúnir í þann slag.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×