Innlent

Eyja­menn eigi Heima­klett og engin inni­stæða fyrir kröfum ríkisins

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir ríkið munu hlíta niðurstöðum óbyggðanefndar.
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir ríkið munu hlíta niðurstöðum óbyggðanefndar. Vísir/Anton Brink

Fjármálaráðherra segist ekki geta lýst því hvers vegna ríkið gerði kröfu um að Heimaklettur og hlíðar Herjólfsdals, ásamt úteyjum og skerjum við Heimaey, yrðu þjóðlendur.

Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknar, spurði Daða Má Kristófersson fjármálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag hvenær stæði til að útkljá deilur ríkis og Vestmannaeyjabæjar um eignarétt á úteyjum og skerjum við Heimaey. Eins og fjallað var um á sínum tíma gerði ríkið kröfu um að eyjar, sker og jafnvel hlutar af Heimaey sjálfri yrðu þjóðlendur.

Saga og lifandi samtíð Eyjamanna

Í nýrri afstöðu óbyggðanefndar kemur það fram að hluti krafna ríkisins um að eyjar og sker við landið séu þjóðlendur eigi ekki við rök að styðjast. Halla segir ljóst að nefndin líti svo á að eyjar og sker við strendur landsins tilheyri þeirri jörð sem næst þeim er. Upphaflega krafðist ríkið þess að Heimaklettur og hlíðar Herjólfsdals yrðu þjóðlendur ásamt hrauninu sem rann í gosinu. Krafan var svo endurskoðuð á tíma Sigurðar Inga Jóhannssonar í fjármálaráðuneytinu. 

„Úteyjarnar sem hér um ræðir voru öldum saman matarkista Eyjamanna sem sækja þangað enn þann dag í dag. Úteyjarnar eru því bæði saga og lifandi samtíð heimafólks og órjúfanlegur hluti Vestmannaeyja þar sem hjarta þeirra sannarlega slær eins og segir í þjóðhátíðarlaginu. Ég spyr því hæstvirtan ráðherra: Hvenær er ætlað að útkljá málið nú þegar engin fyrirstaða er fyrir því þar sem óvissunni er eytt með nýlegri afstöðu óbyggðanefndar?“ spurði Halla.

Ríkið hverfi frá kröfum sínum

Fjármálaráðherra sagði það liggja fyrir að óbyggðanefnd hefði tekið afstöðu í málinu og að ríkið myndi hlíta þeim niðurstöðum.

„Ég er ekki í góðri aðstöðu til þess að lýsa því hvers vegna farið var fram með þeim hætti sem háttvirtur þingmaður lýsti hér áðan þar sem ríkið taldi sig eiga rétt á eignum sem hún listaði upp og eru Vestmannaeyingum án efa mjög mikilvægar og hluti af þeirra sjálfsímynd og daglegu náttúruupplifun. Þær kröfur voru endurskoðaðar eins og háttvirtur þingmaður vék að. Nú hefur óbyggðanefnd tekið afstöðu sem ég get sagt að gangi enn lengra í þá átt að ekki sé innstæða fyrir þessum kröfum sem ríkið lagði fram og því verður auðvitað að hlíta,“ sagði hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×