Bestu mörkin: Helena hélt að Þóra hefði allt aðra skoðun á þessu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. apríl 2025 14:00 Víkingurinn Bergþóra Sól Ásmundsdóttir lá þá eftir á vellinum en fékk dæmda á sig aukaspyrnu. S2 Sport Bestu mörkin fjölluðu um fyrstu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta í gærkvöldi og þar á meðal var skoðað atvik úr leik Víkings og Þór/KA.
Víkingurinn Bergþóra Sól Ásmundsdóttir lá þá eftir á vellinum en fékk dæmda á sig aukaspyrnu. Þór/KA vann leikinn 4-1 en staðan var 2-0 fyrir Þór/KA þegar atvikið varð inn í vítateig norðan kvenna. Klippa: Bestu Mörkin: Vafaatriði í teig og Víkingsumræða „Ég ætlaði að fá þig Þóra til að dæma þetta. Hér er dæmt á Víkinga,“ sagði Helena Ólafsdóttir, umsjónarkona Bestu markanna og sýndi atvikið þegar Bergþóra Sól fer upp í skallabolta en Jessica Berlin, markvörður Þór/KA, kemur aðvífandi. „Mér finnst það skrýtið,“ sagði Þóra og fannst í fyrstu þetta gæti ekki verið aukaspyrna á Víkingsstelpuna. „Er það? Ég hefði haldið að þú hefði sagt annað,“ sagði Helena og var þá að meina að Þóra tæki upp hanskann fyrir markvörðinn enda markvörður sjálf. „Mér finnst markvörðurinn bara vera að horfa á boltann,“ sagði Helena. „Já og hún er ekkert komin með neitt tak á boltanum,“ sagði Þóra en hinn sérfræðingur þáttarins, Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir, sá þetta aðeins öðruvísi. „Skallar hún ekki í hendurnar á henni. Mér sýnist hún vera að snerta boltann og hún skalli þá í hendurnar á henni,“ sagði Bára. Það má sjá þetta atvik og umræðuna hér fyrir ofan. Þær ræða þær líka þessa slöku byrjun Víkingskvenna. Helena Óladsdóttir, Þóra Björg Helgadóttir og Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir ræða atvikið í Bestu mörkunum.S2 Sport
Besta deild kvenna Bestu mörkin Víkingur Reykjavík Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Danmörk - Portúgal | Lífið án Ronaldos Fótbolti Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Fleiri fréttir Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Vill hverfa frá núverandi fyrirkomulagi í Bestu deildinni „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Sjá meira