Viðskipti erlent

Ó­rói á mörkuðum heldur á­fram og gullverð aldrei hærra

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Fjárfestar í kauphöllinni í New York fylgjast spenntir með nýjustu upplýsingum frá forsetanum sem hefur margoft skipt um kúrs á síðustu dögum.  
Fjárfestar í kauphöllinni í New York fylgjast spenntir með nýjustu upplýsingum frá forsetanum sem hefur margoft skipt um kúrs á síðustu dögum.   AP Photo/Seth Wenig

Gullverð er í hæstu hæðum þar sem fjárfestar flykkjast í traustar fjárfestingar eftir hremmingarnar á hlutabréfamörkuðum heims sem hófust þegar Donald Trump Bandaríkjaforseti hóf tollastríð við helstu viðskiptalönd.

 Þegar hann dró í land að stærstum hluta í fyrradag, og setti tollahækkanir á ís, tóku markaðir við sér en það entist ekki lengi og lækkun varð í kauphöllinni í New York í gær á ný. Sömu sögu hefur verið að segja af Asíumörkuðum í nótt og óvissan um hvað gerist næst er greinilega ekki að fylla fjárfesta á hlutabréfamarkaði sjálfstrausti. Þessvegna verður gullið fyrir valinu en góðmálmurinn er yfirleitt talin ein öruggasta fjárfesting sem völ er á.

Trump hefur enn bætt í hótanir sínar gagnvart Kína og segir nú að tollur á vörur frá Kína sé 145 prósent. Þar af sé sérstakur 20 prósenta tollur sem hann sett á dögunum vegna ólöglegs fentanýls innflutnings til Bandaríkjanna enn í gildi. Trump segist þó enn vera bjartsýnn á að hægt verði að komast að einhverskonar samkomulagi við Kínverja, sem hafa á móti hótað himinháum tollum á bandarískar vörur.

Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins segir að ESB sé nú í viðræðum við Bandaríkin um að lækka boðaðar tollaálögur áður en níutíu daga fresturinn sem Trump boðaði á dögunum rennur út. Hún segir þó að á sama tíma sé verið að útfæra aðgerðir sem gripið verði til gagnvart Bandaríkjunum, til mótvægis, náist ekki að semja. von der Leyen sagði á blaðamannafundi í gær að sama hvernig fer, þá séu samskipti Bandaríkjanna og Evrópu breytt um alla framtíð vegna tollanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×