Segja upp 52 sjómönnum Jón Ísak Ragnarsson skrifar 8. mars 2025 07:48 Tveimur áhöfnum Vigra RE 71, frystitogara frá Brim hf., hefur verið sagt upp. Vísir/Vilhelm Brim hf. hefur sagt upp tveimur áhöfnum, sem samtals telja 52 manns, á frystitogaranum Vigra RE 71. Allt bendir til þess að yfirstandandi veiðitúr sé síðasti túr skipsins.
Þetta er samkvæmt heimildum Fiskifrétta, en þar kemur fram að uppsagnirnar megi rekja til samdráttar í aflaheimildum. „Er það meðal annars vegna þorskkvóta í Barentshafi sem ekki hefur verið hægt að sækja vegna aðgerða í sambandi við innrás Rússa í Úkraínu, samdráttar í djúpkarfa og takmarkaðs afla í ufsa.“ „Úthlutun í djúpkarfa var engin í upphafi ársins og einnig hömluðu stjórnvöld Brimi að veiða stóran hluta síns þorskkvóta í Barentshafi á árinu,“ segir í ársuppgjöri Brims fyrir 2024. Vigri er að öllum líkindum í sínum síðasta veiðitúr, en skipið varð fyrir valinu vegna aldurs og ástands. Skipið er smíðað 1992 og frystikerfi þess er sagt komið til ára sinna. Sjómennirnir 52 fá forgang í laus pláss á öðrum skipum Brims hf. Formaður Sjómannafélags Íslands segir að ekki hafi verið leitað til félagsins vegna uppsagnanna, í samtali við Morgunblaðið.
Brim Sjávarútvegur Vinnumarkaður Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira