Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. maí 2025 10:01 Leikmennirnir sem enduðu í sætum 30-26. grafík/sara Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 30.-26. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 30. Ingvar Jónsson Lið: Stjarnan, Víkingur Staða: Markvörður Fæðingarár: 1989 Íslandsmeistari: 2014, 2021, 2023 Bikarmeistari: 2021, 2022, 2023 Leikir: 167 Haldið hreinu: 42 Stoðsendingar: 1 Leikmaður ársins: 2014 Einu sinni í liði ársins Ingvar Jónsson á tvær eftirminnilegustu markvörslur seinni tíma í íslenska boltanum. Rifjum þær aðeins upp. Ingvar Jónsson með uppskeru tímabilsins 2021.vísir/hulda margrét Enginn sem var á, eða horfði á, úrslitaleikinn um Íslandsmeistaratitilinn 2014 mun nokkru sinni gleyma honum. Ekki vantaði eftirminnileg atvikin; kolólöglegt fyrra mark Ólafs Karls Finsen, rauða spjaldið á Veigar Pál Gunnarsson, sigurmark Ólafs Karls úr vítaspyrnu og tryllingskast Kassims Doumbia. Svo er það varsla Ingvars frá Atla Guðnasyni í fyrri hálfleik. Hann sýndi þá ótrúleg viðbrögð og sló boltann yfir markið. Þetta var krúnudjásn Ingvars á frábæru tímabili 2014 þar sem hann var valinn leikmaður ársins. Spólum fram til 2021. Næstsíðasta umferð. Meistaravellir. KR fær víti í uppbótartíma í stöðunni 1-2 fyrir Víking. Pálmi Rafn Pálmason fer á punktinn en Ingvar ver. Skömmu síðar er flautað til leiksloka. Víkingur er með pálmann í höndunum fyrir lokaumferðina og getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri á Leikni á heimavelli. Það raungerðist og Ingvar varð þar með Íslandsmeistari í annað sinn. Hann sat á bekknum framan af tímabili en átti eftirminnilega innkomu. Víkingar unnu síðustu sex leikina í deildinni sem hann spilaði og urðu einnig bikarmeistarar. Suðurnesin hafa alið marga góða markverði og Ingvar er með þeim bestu sem hafa spilað í deildinni hér heima. Hann hefur haft afgerandi áhrif á það hvar stóru titlarnir hafa endað og þá er ótalin mögnuð framganga hans með Stjörnunni og Víkingi í Evrópukeppnum. Þar hefur Ingvar átt marga af sínum bestu leikjum. 29. Þormóður Egilsson Lið: KR Staða: Miðvörður Fæðingarár: 1969 Íslandsmeistari: 1999, 2000, 2002 Bikarmeistari: 1994, 1995, 1999 Leikir: 239 Mörk: 7 Stoðsendingar: 8 Tvisvar sinnum í liði ársins Sjaldan hefur verið jafn mikill þungi í bikarlyftingu og þegar KR-ingar veittu Íslandsmeistarabikarnum viðtöku haustið 1999. Enda var þetta fyrsti Íslandsmeistaratitill liðsins í 31 ár. Hnausþykk íshella var brotin. Þormóður Egilsson, fyrirliði KR, veitti bikarnum viðtöku; sameiningartáknið sjálft. Þormóður Egilsson í baráttu við Daniel Amokachi í frægum Evrópuleik KR og Everton á Laugardalsvelli haustið 1995.getty/Mike Hewitt Þormóður er hluti af hinum goðsagnakennda 1969-árgangi úr KR. Og hann var sá eini af þeim fjórum fræknu úr þeim árgangi sem var enn í KR þegar liðið varð Íslandsmeistari . Rúnar Kristinsson var í atvinnumennsku, Heimir Guðjónsson í ÍA og Hilmar Björnsson í Fram. Eftir stóð Móði og uppskar loks laun erfiðis síns. Ekki vantaði sár augnablik framan af ferlinum. Sumarið 1990 tapaði KR Íslandsmeistaratitlinum á markatölu og bikarúrslitunum í vítaspyrnukeppni í endurteknum leik og KR-ingar töpuðu svo úrslitaleikjum um Íslandsmeistaratitilinn 1996 og 1998. En KR vann bikarkeppnina 1994 og 1995 og Íslandsmeistaratitilinn kom svo loksins í hús 1999. Þormóður var einnig fyrirliði KR þegar liðið varð Íslandsmeistari 2000 og 2002. Eftir það fóru skórnir á hilluna. Á árunum 1992-2002 spilaði Þormóður átta sinnum alla átján deildarleikina og KR fékk sex sinnum á sig eitt mark eða minna að meðaltali í leik á þessum árum. Það var ekki síst vasklegri framgöngu Þormóðar í vörn KR að þakka. 28. Hlynur Stefánsson Lið: ÍBV Staða: Miðvörður Fæðingarár: 1964 Íslandsmeistari: 1997, 1998 Bikarmeistari: 1998 Leikir: 171 Mörk: 21 Stoðsendingar: 8 Leikmaður ársins: 2000 Fimm sinnum í liði ársins Fyrir tímabilið 1997 færði Bjarni Jóhannsson Hlyn Stefánsson, þá 33 ára, í stöðu miðvarðar eftir að hann hafði spilað framar á vellinum fram að því. Og gert vel. Hlynur var atvinnumaður í Svíþjóð og spilaði 25 landsleiki. Hlynur Stefánsson var leiðtoginn í vörn ÍBV um árabil.ljósmyndasafn vestmannaeyja En 1997 hófst nýr og glæsilegur kafli á ferli Hlyns. Árin 1997-2001 eru ein þau bestu hjá miðverði í sögu efstu deildar. Á þessum árum varð ÍBV tvisvar sinnum Íslandsmeistari, einu sinni bikarmeistari, lenti tvisvar sinnum í 2. sæti í deild og einu sinni í bikar. Eyjavörnin, með Hlyn í broddi fylkingar, fékk aldrei á sig meira en sautján mörk í deildinni á þessum tíma. Og í þeim 87 deildarleikjum sem hann lék 1997-2001 fékk ÍBV aðeins á sig 74 mörk og hélt 39 sinnum hreinu. Hlynur skoraði auk þess átta mörk. Sjö þeirra komu í sigurleikjum. Af þessum fimm tímabilum sem hér ræðir var 2000 líklega það sísta hjá ÍBV. En Hlynur var áfram frábær í Eyjavörninni og var valinn leikmaður ársins. Hann er sá elsti sem hefur fengið þessa viðurkenningu en hann hefði svo sannarlega getað fengið hana fyrr og oftar. 27. Baldur Sigurðsson Lið: Keflavík, KR, Stjarnan, FH Staða: Miðjumaður Fæðingarár: 1985 Íslandsmeistari: 2011, 2013 Bikarmeistari: 2006, 2011, 2012, 2014, 2018 Leikir: 264 Mörk: 55 Stoðsendingar: 34 Þrisvar sinnum í liði ársins Við Íslendingar erum ekkert sérstaklega góðir að finna viðurnefni á íþróttafólkið okkar. Við eigum þó nokkur góð og Smalinn er eitt þeirra. Því var snemma skellt á Mývetninginn Baldur Sigurðsson og fylgdi honum í gegnum ferilinn. Baldur Sigurðsson vann stóra titla með þremur félögum; Keflavík, KR og Stjörnunni.vísir/daníel Baldur sló fyrst í gegn með Keflavík og varð bikarmeistari með liðinu 2006. Hann fór svo til KR þar sem hann átti sín bestu ár á ferlinum og vann fimm stóra titla. Baldur myndaði frábæra miðju með Bjarna Guðjónssyni og Viktori Bjarka Arnarssyni 2011 og tveimur árum síðar átti hann sennilega sitt besta tímabil þegar KR-ingar unnu Íslandsmeistaratitilinn með miklum yfirburðum. Baldur skoraði átta mörk í tuttugu deildarleikjum og hefði hæglega getað verið valinn leikmaður ársins. Eftir dvöl í atvinnumennsku átti Baldur svo fjögur fín ár með Stjörnunni og varð bikarmeistari með liðinu 2018. Það var hans fimmti bikarmeistaratitil og ef það væri verið að velja bestu leikmenn bikarkeppninnar væri hann meðal efstu manna á blaði þar. Baldur skoraði í bikarúrslitaleiknum 2006, 2011 (fimm sláarskota-leiknum fræga) og sigurmarkið í úrslitaleiknum 2012. Upp á sitt besta var Baldur alhliða miðjumaður, hraustur með mikla hlaupagetu, öflugur á báðum endum og frábær að skila sér inn í vítateig andstæðinganna og naskur á að koma sér í færi. Mörkin í 264 leikjum leikjum í efstu deild urðu 55 mörk sem er afar góð tölfræði fyrir miðjumann. 26. Veigar Páll Gunnarsson Lið: Stjarnan, KR, Víkingur, FH Staða: Framherji Fæðingarár: 1980 Íslandsmeistari: 2002, 2003, 2014 Leikir: 135 Mörk: 33 Stoðsendingar: 31 Þrisvar sinnum í liði ársins Sorrí KR-ingar, en Íslandsmeistaraliðin 2002 og 2003 eru ekki þau eftirminnilegustu í sögunni. Og heldur ekki þau skemmtilegustu. En þau höfðu Veigar Pál Gunnarsson innanborðs. Veigar Páll Gunnarsson fagnar marki draumasumarið 2014 í Garðabænum.vísir/andri marinó Hann var listamaðurinn í þessum tveimur meistaraliðunum og þeirra besti maður. Veigar Páll var með gríðarlega góða tækni, mikinn leikskilning og iðinn við að koma sér í stöður til að skora eða finna samherja sína í góðum færum. Hann skoraði sjö deildarmörk bæði tímabilin sín í KR og var sérstaklega mikilvægur 2003. Veigar Páll spilaði þá þrettán af átján deildarleikjum Vesturbæjarliðsins og í þeim fékk það 91 prósent stiga sinna. KR vann níu leiki þetta sumar og Veigar Páll skoraði eða lagði upp sigurmark í fimm þeirra, skoraði tvö mörk í þeim sjötta og lagði upp þrjú mörk í sjöunda leiknum. Veigar Páll var alls með sex mörk og sjö stoðsendingar í umræddum níu sigurleikjum KR auk þess að eitt mark til viðbótar var skorað þegar fylgt var eftir skoti hans. Veigar Páll sneri aftur heim í Stjörnuna 2013. Það sumar köstuðu Garðbæingar frá sér bikarmeistaratitlinum en tímabilinu 2014 gleymir enginn stuðningsmaður Stjörnunnar. Liðið fór lengra í Evrópukeppni en nokkurt íslenskt lið hafði áður gert og varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn, og það án þess að tapa leik. Þótt flestir muni kannski eftir rauða spjaldinu í úrslitaleiknum gegn FH átti Veigar Páll mjög gott tímabil, hvort sem það sem fremsti maður eða fyrir aftan dönsku framherjana Jeppe Hansen eða Rolf Toft. Næstu árin fór tækifærum Veigars Páls með Stjörnunni fækkandi og hann endaði ferilinn með Víkingi og FH. En þegar hann var uppi á sitt besta stóðust honum fáir snúning. Besta deild karla Þeir bestu Tengdar fréttir Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 40.-31. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 14. maí 2025 10:03 Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 50.-41. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 13. maí 2025 10:00 Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 60.-51. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 12. maí 2025 10:07 Þeir bestu: Fylgt úr hlaði Vísir gerðist stórhuga og ákvað að setja saman lista yfir sextíu bestu leikmenn efstu deildar karla frá 1992. Listinn yfir þessa sextíu leikmenn birtist á næstu dögum. 12. maí 2025 09:00 Mest lesið Reiddist Guðjóni og hætti í landsliðinu: „Þér er ekki fyrirgefið fyrir svona“ Fótbolti Sögðu danskri landsliðskonu að fara heim að vaska upp Fótbolti Dæmdur 10-0 sigur og titillinn í höfn eftir mikið hneyksli Handbolti Sonur Bruno Fernandes mætti á æfingu hjá FH Enski boltinn Írskur smáklúbbur græðir meira en hálfan milljarð þökk sé Liverpool Enski boltinn Sjáðu Ronaldo skjóta Portúgal áfram í úrslitaleikinn Fótbolti Ástandið á Urriðavelli ekki gott og Íslandsmótið fært á Hlíðavöll Golf Gunnlaugur paraður með sænskri stelpu í Arnold Palmer bikarnum Golf „Reynt að halda væntingum niðri og ég spyr mig af hverju?“ Fótbolti Leikur Íslands og Brasilíu ekki í beinni á Stöð 2 Sport Fótbolti Fleiri fréttir Leiknir byrjar vel undir stjórn Gústa Gylfa og ÍR-ingar á toppinn Andri Már fékk tískuráð á stórleiknum á Kópavogsvelli Völdu þann leikmann í Bestu deildinni sem er líkastur þeim sjálfum Ágúst Gylfason snýr aftur í boltann og tekur við Leikni „Þá verður þú bara að taka höggin“ Bönnin þegar Besta hefst aftur: Víkingar missa lykilmann og Vestri án tveggja Pétur Rúnar á bekknum hjá Stólunum í 3. deildinni Ummæli Davíðs Smára ekki á borði aganefndar Sýndu reiði Davíðs skilning en fannst hann fara yfir strikið „Okkar markmið hefur alltaf verið að vera í toppbaráttunni“ Umfjöllun: Valur-Fram 2-1 | Níu stig í Valshúsi á níu dögum Sjáðu miðjumark Sverris, tvennu Tobiasar, rautt á Alex og Atla stela sigri Dagskráin í dag: Litrík umferð gerð upp í Stúkunni „Þetta mark átti ekki að telja“ Leik lokið: Breiðablik - Víkingur 3-1 | Allt í hnút á toppnum „Erum með sjö stigum meira en á sama tíma í fyrra“ Uppgjörið: FH - Afturelding 0-0| Markalaust í bragðdaufum leik Uppgjörið: ÍA - ÍBV 0-3 | Eyjamenn fara með tvo sigurleiki á bakinu inn í hléið Uppgjörið: KA - Stjarnan 1-1 | Náðu að lokum að jafna gegn tíu gestum Óskar Hrafn: Sem betur fer hlusta stuðningsmenn KR ekki mikið á umræðuna Ósáttur Davíð Smári: Einn maður sem eyðileggur leikinn Uppgjörið: KR - Vestri 2-1 | Atlarnir stálu sigrinum af Vestra „Þyrfti að vera klúbbur í efri hillu í Skandinavíu eða eitthvað á meginlandinu“ „Ég held það vilji enginn upplifa svona aftur“ Stúkan: „Bera virðingu fyrir leiknum og andstæðingnum“ Njarðvík og ÍR upp í efstu sætin í Lengjudeildinni Bindur vonir við nýja manninn: „Ekki með svona leikmann í liðinu í dag“ KR-ingar alveg týndir: „Bara eins og þegar ég er einn heima“ Bjarki var næstum því farinn í Val áður en gullöld ÍA hófst Öll mörkin í Bestu: Stjarnan tætti KR í sig og ÍA valtaði yfir Blika Sjá meira
Lið: Stjarnan, Víkingur Staða: Markvörður Fæðingarár: 1989 Íslandsmeistari: 2014, 2021, 2023 Bikarmeistari: 2021, 2022, 2023 Leikir: 167 Haldið hreinu: 42 Stoðsendingar: 1 Leikmaður ársins: 2014 Einu sinni í liði ársins
Lið: KR Staða: Miðvörður Fæðingarár: 1969 Íslandsmeistari: 1999, 2000, 2002 Bikarmeistari: 1994, 1995, 1999 Leikir: 239 Mörk: 7 Stoðsendingar: 8 Tvisvar sinnum í liði ársins
Lið: ÍBV Staða: Miðvörður Fæðingarár: 1964 Íslandsmeistari: 1997, 1998 Bikarmeistari: 1998 Leikir: 171 Mörk: 21 Stoðsendingar: 8 Leikmaður ársins: 2000 Fimm sinnum í liði ársins
Lið: Keflavík, KR, Stjarnan, FH Staða: Miðjumaður Fæðingarár: 1985 Íslandsmeistari: 2011, 2013 Bikarmeistari: 2006, 2011, 2012, 2014, 2018 Leikir: 264 Mörk: 55 Stoðsendingar: 34 Þrisvar sinnum í liði ársins
Lið: Stjarnan, KR, Víkingur, FH Staða: Framherji Fæðingarár: 1980 Íslandsmeistari: 2002, 2003, 2014 Leikir: 135 Mörk: 33 Stoðsendingar: 31 Þrisvar sinnum í liði ársins
Besta deild karla Þeir bestu Tengdar fréttir Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 40.-31. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 14. maí 2025 10:03 Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 50.-41. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 13. maí 2025 10:00 Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 60.-51. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 12. maí 2025 10:07 Þeir bestu: Fylgt úr hlaði Vísir gerðist stórhuga og ákvað að setja saman lista yfir sextíu bestu leikmenn efstu deildar karla frá 1992. Listinn yfir þessa sextíu leikmenn birtist á næstu dögum. 12. maí 2025 09:00 Mest lesið Reiddist Guðjóni og hætti í landsliðinu: „Þér er ekki fyrirgefið fyrir svona“ Fótbolti Sögðu danskri landsliðskonu að fara heim að vaska upp Fótbolti Dæmdur 10-0 sigur og titillinn í höfn eftir mikið hneyksli Handbolti Sonur Bruno Fernandes mætti á æfingu hjá FH Enski boltinn Írskur smáklúbbur græðir meira en hálfan milljarð þökk sé Liverpool Enski boltinn Sjáðu Ronaldo skjóta Portúgal áfram í úrslitaleikinn Fótbolti Ástandið á Urriðavelli ekki gott og Íslandsmótið fært á Hlíðavöll Golf Gunnlaugur paraður með sænskri stelpu í Arnold Palmer bikarnum Golf „Reynt að halda væntingum niðri og ég spyr mig af hverju?“ Fótbolti Leikur Íslands og Brasilíu ekki í beinni á Stöð 2 Sport Fótbolti Fleiri fréttir Leiknir byrjar vel undir stjórn Gústa Gylfa og ÍR-ingar á toppinn Andri Már fékk tískuráð á stórleiknum á Kópavogsvelli Völdu þann leikmann í Bestu deildinni sem er líkastur þeim sjálfum Ágúst Gylfason snýr aftur í boltann og tekur við Leikni „Þá verður þú bara að taka höggin“ Bönnin þegar Besta hefst aftur: Víkingar missa lykilmann og Vestri án tveggja Pétur Rúnar á bekknum hjá Stólunum í 3. deildinni Ummæli Davíðs Smára ekki á borði aganefndar Sýndu reiði Davíðs skilning en fannst hann fara yfir strikið „Okkar markmið hefur alltaf verið að vera í toppbaráttunni“ Umfjöllun: Valur-Fram 2-1 | Níu stig í Valshúsi á níu dögum Sjáðu miðjumark Sverris, tvennu Tobiasar, rautt á Alex og Atla stela sigri Dagskráin í dag: Litrík umferð gerð upp í Stúkunni „Þetta mark átti ekki að telja“ Leik lokið: Breiðablik - Víkingur 3-1 | Allt í hnút á toppnum „Erum með sjö stigum meira en á sama tíma í fyrra“ Uppgjörið: FH - Afturelding 0-0| Markalaust í bragðdaufum leik Uppgjörið: ÍA - ÍBV 0-3 | Eyjamenn fara með tvo sigurleiki á bakinu inn í hléið Uppgjörið: KA - Stjarnan 1-1 | Náðu að lokum að jafna gegn tíu gestum Óskar Hrafn: Sem betur fer hlusta stuðningsmenn KR ekki mikið á umræðuna Ósáttur Davíð Smári: Einn maður sem eyðileggur leikinn Uppgjörið: KR - Vestri 2-1 | Atlarnir stálu sigrinum af Vestra „Þyrfti að vera klúbbur í efri hillu í Skandinavíu eða eitthvað á meginlandinu“ „Ég held það vilji enginn upplifa svona aftur“ Stúkan: „Bera virðingu fyrir leiknum og andstæðingnum“ Njarðvík og ÍR upp í efstu sætin í Lengjudeildinni Bindur vonir við nýja manninn: „Ekki með svona leikmann í liðinu í dag“ KR-ingar alveg týndir: „Bara eins og þegar ég er einn heima“ Bjarki var næstum því farinn í Val áður en gullöld ÍA hófst Öll mörkin í Bestu: Stjarnan tætti KR í sig og ÍA valtaði yfir Blika Sjá meira
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 40.-31. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 14. maí 2025 10:03
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 50.-41. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 13. maí 2025 10:00
Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 60.-51. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992. 12. maí 2025 10:07
Þeir bestu: Fylgt úr hlaði Vísir gerðist stórhuga og ákvað að setja saman lista yfir sextíu bestu leikmenn efstu deildar karla frá 1992. Listinn yfir þessa sextíu leikmenn birtist á næstu dögum. 12. maí 2025 09:00