Það var á ellefta tímanum í kvöld sem Vísir greindi frá því að líkur væru á því að vöfflulykt færi að streyma úr Borgartúninu. Ríkissáttasemjari hafði boðað samningsaðila til fundar klukkan 15 í dag eftir að hafa leyft báðum aðilum að hvíla sig eftir vonbrigði síðasta föstudag. Þá samþykktu kennarar innanhússtillögu sáttasemjara en sveitarfélögin höfnuðu.

Með samningnum sem nú hefur verið undirritaður er öllum yfirstandandi og fyrirhuguðum vinnustöðvunum í skólum aflýst. Deilu sem staðið hefur í á fimmta mánuð er lokið með þeim fyrirvara að kennarar samþykki samninginn í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna.

Samningurinn er til fjögurra ára og hljóðar upp á 24,5 prósenta hækkun launa á samningstímanum. Nítján mánaða uppsagnarákvæði er í samningum en auk þess hefur verið samþykkt að koma á fót sérstakri forsendunefnd til að auka líkur á að samningurinn verði uppfylltur og minnka líkur á að honum verði sagt upp. Nefndin á að hjálpa til við að greiða úr deilum sem geta komið upp á samningstímanum.

Innáborgun til kennara hljóðar upp á átta prósent sem er sama hlutfall og var í innanhússtillögunni fyrir helgi að sögn Ingu Rúnar Ólafsdóttur, formanns samninganefndar sveitarfélaganna.
Fimm mánaða deila
Það var í október sem fyrstu atkvæðagreiðslur um verkfallsaðgerðir fóru fram. Boðað var til verkfalls í átta skólum sem virtust valdir af handahófi. Það hefur verið eitt af þeim atriðum sem farið hafa öfugt ofan í foreldra barna í þeim skólum þar sem verkföll hafa skollið á. Umboðsmaður barna komst að þeirri niðurstöðu að um mismunun væri að ræða.

Í desember náðist samkomulag hjá sáttasemjara um að fresta verkfallsaðgerðum fram í byrjun febrúar. Góður gangur væri í viðræðum og líklegt að viðræður næstu vikurnar myndu leiða til samninga. Innanhússtillaga sáttasemjara í janúar hugaðist Sambandi íslenskra sveitarfélaga og ríkinu en ekki kennurum sem boðuðu aftur til verkfalls.
Deilur kennara við sveitarfélögin rötuðu endurtekið fyrir dómstóla sem lauk með því á nýju ári að aðgerðirnar voru úrskurðaðar ólöglegar.

Fimm framhaldsskólar og einn tónlistarskóli fóru í verkfall fyrir helgi. Þá voru yfirvofandi verkföll í öllum leikskólum í Kópavogi og víðar.
Ýmislegt benti til þess að samningar tækjust fyrir helgi. Kennara samþykktu innanhússtillögu sáttasemjara en stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga hafnaði tilboðinu eftir tæplega sólarhrings umhugsunarfrest. Ríkið taldi ekki ástæðu til að svara tilboðinu og vísaði til þess að sveitarfélögin hefðu hafnað þeim.
Rekstur leik- og grunnskóla er hjá sveitarfélögum en framhaldsskólar hjá ríkinu.
Samningur í höfn átta tímum síðar
Niðurstaðan á föstudag fór ekki vel í kennara sem stormuðu margir hverjir út úr skólum sínum á hádegi á föstudag. Þeir fjölmenntu á borgarstjórnarfund síðdegis á föstudag, hafa farið mikinn á samfélagsmiðlum með atvinnuleitargjörningi, kennarar í Garðabæ mótmæltu við bæjarskrifstofurnar í morgun og gjörningur var fyrirhugaður í Hafnarfirði á morgun þar sem jarðsetja átti kennarastarfið.

Sáttasemjari boðaði deiluaðila á fund klukkan 15 í dag og nú átta tímum síðar er samningur í höfn. Vöfflulyktin streymir úr Karphúsinu og fólk ýmist féllst í faðma eða tókst í hendur í Borgartúninu í kvöld.
Viðbrögð samningsaðila
Inga Rún Ólafsdóttir, formaður samninganefndar sveitarfélaganna, sagði að lokinni undirritun að tillaga sveitarfélaganna um forsendunefnd hefði skipt sköpum. Um hana hefði náðst sátt. Nefndin á að taka á atriðum á samningstímanum sem geta komið upp og minnka líkurnar á því að samningnum verði sagt upp, sem kennarar geta gert eftir nítján mánuði.
Ástráður ríkissáttasemjari fagnaði samningi en sagði mikla vinnu fyrir höndum. Deilluaðilar ætli í mikla sameiginlega vinnu, varðandi virðismat og ýmis önnur atriði sem ekki sé búið að fara yfir. Hann sagði vöffluna sína langþráða.
Þá sagði Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambands Íslands vera svakalega stoltur af kennurum í baráttunni. Hann minnti á að samningurinn væri aðeins áfangi, í raun upphafsreitur. Mikið verk væri fram undan að auka virðingu kennarastarfsins en vonandi myndu þessi tímamót hjálpa. Enn vantaði mikinn fjölda kennara til starfa. Þá væri hann mjög stoltur af því að kennarar á öllum stigum hefðu unnið að samningum saman í fyrsta skipti.
Hér að neðan má svo sjá vaktina á Vísi. Mögulega þarf að hlaða síðuna upp aftur ef hún birtist ekki strax.