Handbolti

Dagur nýtti öll færin sín í Meistara­deildinni en strákar Guð­jóns Vals töpuðu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dagur Gautason lék sinn fyrsta leik í Meistaradeildinni í handbolta í kvöld.
Dagur Gautason lék sinn fyrsta leik í Meistaradeildinni í handbolta í kvöld. @mhbofficiel

Dagur Gautason lék sinn fyrsta leik í Meistaradeildinni í handbolta og það var ekki hægt að kvarta mikið yfir frammistöðunni.

Íslenski hornamaðurinn Dagur Gautason skipti óvænt á dögunum úr norska félaginu Arendal í franska stórliðið Montpellier og í kvöld var nýja liðið hans að spila í Meistaradeildinni.

Dagur lék sinn fyrsta leik um síðustu helgi og skoraði þá fjögur mörk úr sex skotum í deildarsigri á Aix.

Montpellier sýndi styrk sinn í Meistaradeildinni í kvöld með því að vinna svissneska liðið HC Kriens-Luzern með fjögurra marka mun, 31-27, en þetta var fyrsti leikur liðanna í milliriðli.

Dagur skoraði þrjú mörk úr þremur skotum í leiknum í kvöld en þau komu öll á lokakafla leiksins. Þetta var frumraun stráksins í Meistaradeildinni og hún tókst vel.

Það gekk ekki eins vel hjá Íslendingaliðinu VfL Gummersbach sem tapaði á heimavelli á móti Flensburg-Handewitt. Flensburg vann leikinn 36-31 en Gummersbach var 19-18 yfir í hálfleik.

Seinni háfleikurinn var hrein hörmung en Flensburg vann hann 18-12.

Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar lið Gummersbach og landsliðsmaðurinn Elliði Snær Viðarsson var með þrjú mörk úr fjórum skotum í leiknum í kvöld. Julian Köster var markahæstur hjá liðinu með sjö mörk.

Johannes Golla var óstöðvandi á línunni hjá Flensburg með tíu mörk úr ellefu skotum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×