Innlent

Minningargreinamálið fer ekki fyrir Hæsta­rétt

Jón Þór Stefánsson skrifar
Reynir Traustason er ritstjóri Mannlífs.
Reynir Traustason er ritstjóri Mannlífs. Vísir/Vilhelm

Hæstiréttur hefur ákveðið að taka ekki fyrir svokallað minningargreinamál. Í byrjun nóvember staðfesti Landsréttur dóm héraðsdóms þar sem Reyni Traustasyni og félaginu Sólartúni, útgefanda Mannlífs, var gert að greiða Morgunblaðinu fimmtíu þúsund krónur fyrir vegna endurbirtingar á minningargreinum blaðsins, sem og þrjú hundruð þúsund krónur til bróður manns sem Mannlíf birti minningargrein um.

Reynir og Sólartún sóttu um áfrýjunarleyfi fyrir Hæstarétti. Það var mat þeirra að málið hefði verulegt almennt gildi þar sem fáir dómar hefðu fjallað um tiltekna grein höfundalaga. Með dómi Landsréttar væri verið að þrengja verulega að heimildum fjölmiðla til að vitna í aðra fjölmiðla án þess að heimildar væri aflað sérstaklega fyrirfram.

Þá væri mikilvægt að starfsumhverfi fjölmiðla væri ekki háð umfangsmiklum takmörkunum. Með dómi Landsréttar væri búið að reisa Mannlífi verulegar skorður til að starfa á sviði fjölmiðlunar. Þar að auki væri dómur Mannlífs bersýnilega rangur.

Hæstiréttur hins vegar sagði að málið hefði ekki verulegt almennt gildi, það varði ekki sérstaklega mikilvæga hagsmuni Reynis og Sólartún. Einnig væri ekki séð að dómur Landsréttar væri bersýnilega rangur.


Tengdar fréttir

Greiða Mogganum og Atla fyrir endur­birtingar á minningar­greinum

Reyni Traustasyni og útgáfufélaginu Sólartúni ehf. hefur verið gert að greiða Morgunblaðinu fimmtíu þúsund krónur fyrir endurbirtingar á minningargreinum blaðsins. Þá þurfa Reynir og Sólartún að greiða bróður manns sem Mannlíf birti minningargrein um upp úr Morgunblaðinu þrjú hundruð þúsund krónur. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×