Íslenski boltinn

Mætti Barcelona í byrjun mánaðar en spilar með Fram í Bestu í sumar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Israel García bað kærustunnar eftir leikinn á móti Barcelona.
Israel García bað kærustunnar eftir leikinn á móti Barcelona. @marca

Framarar hafa styrkt hjá sér miðjuna fyrir komandi sumar í Bestu deild karla í fótbolta.

Spænski miðjumaðurinn Israel García hefur samið við félagið. Hann spilaði á móti Barcelona fyrir aðeins þremur vikum.

Garcia er 26 ára gamall og hefur spilað allan sinn feril á Spáni. Hann var leikmaður Barbastro sem tapaði 4-0 á móti Barcelona í spænska Konungsbikarnum 4. janúar síðastliðinn. Garcia spilaði í níuíu mínútur í leiknum.

Rúnar Kristinsson, þjálfari Framliðsins, fagnar komu leikmannsins í viðtali á miðlum Fram.

„Isra er sú týpa af leikmanni sem okkur finnst hafa vantað í Fram-liðið. Hann er varnarsinnaður miðjumaður með góða sendingargetu og við vonumst til að hann smellpassi inn í okkar hugmyndafræði,” sagði Rúnar.

Framarar segir líka frá því að Isra hafi komið sér í heimsfréttirnar eftir að hafa beðið kærustunnar eftir leik gegn Barcelona í spænska bikarnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×