Orri Freyr er Orri óstöðvandi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. janúar 2025 15:06 Orri Freyr Þorkelsson hefur skorað sextán mörk á HM. vísir/vilhelm Sögupersónan vinsæla, Orri óstöðvandi, er nefnd í höfuðið á Orra Frey Þorkelssyni, landsliðsmanni í handbolta. Bjarni Fritzson, höfundur bókanna um Orra óstöðvandi, ljóstraði þessu upp í Pallborðinu.
Bjarni og Ásgeir Örn Hallgrímsson voru gestir Stefáns Árna Pálssonar í Pallborðinu þar sem fjallað var um frammistöðu íslenska handboltalandsliðsins á HM og möguleikana í framhaldinu. Talið barst meðal annars að Orra Frey sem hefur slegið í gegn á sínu fyrsta heimsmeistaramóti. Bjarni þekkir hornamanninn vel og fékk viðurnefni hans að láni fyrir sögupersónuna í barnabókunum vinsælu. „Ég var að þjálfa hann í U-20 ára landsliðinu og ég þjálfaði fullt af þessum strákum þar. Þá var ég með þessa hugmynd að bókinni,“ sagði Bjarni í Pallborðinu. „Þá sagði markmannsþjálfarinn minn mér að Orri væri kallaður Orri óstöðvandi þegar hann var lítill því hann var svo góður. Þannig að takk fyrir þetta Orri minn. Orri er Orri óstöðvandi. Við viljum að áhorfendur syngi Orra óstöðvandi lagið þegar hann skorar.“ Klippa: Pallborðið - Orri óstöðvandi Orri Freyr er markahæstur í íslenska landsliðinu á heimsmeistaramótinu með sextán mörk. Hann er með 89 prósent skotnýtingu. Orri Freyr og félagar í íslenska landsliðinu mæta Egyptalandi í fyrsta leik sínum í milliriðli 4 í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og verður í beinni textalýsingu á Vísi. Leikurinn verður síðan gerður ítarlega upp í máli og myndum á Vísi.
HM karla í handbolta 2025 Landslið karla í handbolta Bókmenntir Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Freyr rekinn frá Brann Fótbolti Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald Íslenski boltinn Fékk hræðilegar fréttir nokkrum dögum fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Sjá meira