Handbolti

Hræddist Al­freð en þarf að horfast í augu við hann í kvöld

Aron Guðmundsson skrifar
Alfreð Gíslason að leiðbeina sínum mönnum á yfirstandandi heimsmeistaramóti í handbolta
Alfreð Gíslason að leiðbeina sínum mönnum á yfirstandandi heimsmeistaramóti í handbolta Vísir/EPA

Magnus Landin, einn af stjörnu­leik­mönnum danska lands­liðsins í hand­bolta, segist lengi vel hafa hræðst Al­freð Gísla­son, núverandi lands­liðsþjálfara Þýska­lands. Dan­mörk og Þýska­land mætast í milli­riðlum HM í hand­bolta í kvöld.

Al­freð fékk Landin á sínum tíma til liðs við þýska úr­vals­deildar­félagsins Kiel árið 2018 og í viðtali við danska miðla í að­draganda stór­leiks kvöldsins sagði Daninn frá því að hann hafi hræðst Ís­lendinginn á sínum tíma.

„Ég var mjög hræddur við hann þegar að ég kom fyrst til Kiel. Hann hafði, og hefur enn, þessa sér­stöku áru í kringum sig. Al­freð er mjög sigursæll þjálfari. Hefur verið á toppnum í hand­bolta­heiminum mjög lengi. Þessi ára sem hann býr yfir er þess eðlis að sem ungur leik­maður hræðist þú hann ör­lítið.“

Magnus Landin, landsliðsmaður Danmerkur og fyrrverandi lærisveinn Alfreð Gíslasonar hjá KielVísir/EPA

Það er ljóst að hart verður barist í Herning í kvöld. Danir á heima­velli og bæði lið unnu alla þrjá leiki sína í riðla­keppninni og mæta því með fjögur stig inn í milli­riðilinn.

Þjóðverjarnir eiga harma að hefna frá því á Ólympíu­leikunum í París í fyrra. Þar mættust þessi lið í sjálfum úr­slita­leiknum sem Dan­mörk hafði mikla yfir­burði í.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×