Innlent

Biðst ekki fullrar lausnar fyrr en úr­slit kosninganna verða stað­fest

Kjartan Kjartansson skrifar
Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, náði kjöri sem jöfnunarþingmaður í alþingiskosningunum. Verði talið aftur í Suðvesturkjördæmi gætu hæglega orðið breytingar á jöfnunarþingmönnum.
Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, náði kjöri sem jöfnunarþingmaður í alþingiskosningunum. Verði talið aftur í Suðvesturkjördæmi gætu hæglega orðið breytingar á jöfnunarþingmönnum. Vísir/Vilhelm

Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins sem náði kjöri til Alþingis, hefur beðist tímabundinnar lausnar í borginni. Sem jöfnunarþingmaður segist hún ekki ætla að biðjast endanlegrar lausnar sem borgarfulltrúi fyrr en úrslit þingkosninganna hafa verið staðfest og þingsæti hennar sé öruggt.

Beiðnir Kolbrúnar og Dags B. Eggertssonar um lausnar frá störfum sem borgarfulltrúar voru lagðar fram í forsætisnefnd borgarinnar á föstudag. Dagur óskaði lausnar út kjörtímabilið og vísaði til þess að hann teldi hvorki raunhæft né rétt að hann sinnti störfum kjörins fulltrúa í borgarstjórn og á þingi samtímis.

Kolbrún baðst hins vegar aðeins tímabundinnar lausnar frá 21. janúar til 18. febrúar. Í bréfi hennar til borgarstjórnar segir að í ljósi þess að undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kosninga hafi verið skipuð en ekki skilað niðurstöðu óski hún eftir tímabundnu leyfi.

Nokkrar kærur hafa komið fram vegna alþingiskosninganna sem fóru fram 30. nóvember. Píratar í Suðvesturkjördæmi krefjast ógildingar kosninganna vegna framkvæmdar þeirra og Framsóknarflokkurinn fór fram á endurtalningu atkvæða þar.

Undirbúningsnefndin sem tók til starfa í síðustu viku hefur víðtækar heimildir og getur meðal annars farið fram á endurtalningu atkvæða. Ákvæði hún að láta endurtalningu fara fram gæti það haft áhrif á skiptingu svonefndra jöfnunarþingmanna á milli kjördæma.

Ólíkt Kolbrúnu er Dagur B. Eggertsson kjördæmakjörinn þingmaður. Hann á sæti í undirbúningsnefndinni fyrir rannsókn kosninganna.Vísir/Einar

Biðst fullrar lausnar þegar úrslitin hafa verið staðfest

Kolbrún náði kjöri sem jöfnunarþingmaður í Reykjavíkurkjördæmi suður. Hún segist ekki örugg með þingsæti sitt fyrr en undirbúningsnefndin hefur lokið sínum störfum. Rannsókn á kosningu þingmanna og gildi kosninga fer fram á þingsetningarfundi sem er fyrirhugaður 4. febrúar.

„Ég þarf að sjá hvað nefndin gerir. Það þarf að lýsa kosningarnar gildar og löglegar áður en ég er örugg með mitt sæti. Ég byrja bara á að sjá hvað kemur út úr þessu,“ segir hún.

Í lausnarbréfi Kolbrúnar segir að gert sé ráð fyrir að hún óski lausnar til loka kjörtímabilsins um leið og niðurstaða nefndarinnar liggur fyrir, kosningarnar hafi verið lýstar löglegar og þing verið sett.

„Ef að það verður til dæmis ákveðið að endurtelja, sem gæti gerst, er ég bara ein af þessum jöfnunarþingmönnum sem geta bara dottið út,“ segir Kolbrún sem naut ráðgjafar lögfræðinga borgarinnar.

Dagur, sem er kjördæmakjörinn og þarf ekki að óttast að endurtalning atkvæða ógni þingsæti hans, á sæti í undirbúningsnefndinni hefur örlög Kolbrúnar í hendi sér.


Tengdar fréttir

Brýnt að endurskoða atkvæðagreiðslu utan kjörfundar

Það er mat Landskjörstjórnar að brýnt sé að endurskoða framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu, bæði hér á landi sem og erlendis. Í þessari endurskoðun væri mikilvægt að skoða sérstaklega hvort unnt væri að gera framkvæmdina skilvirkari og öruggari.

Nefndin hefur víðtækar heimildir og getur farið fram á endurtalningu

Umsögn landskjörstjórnar um framkvæmd alþingiskosninga verður afhent undribúningsnefnd Alþingis og birt opinberlega síðar í dag. Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kosninga kemur saman til fyrsta fundar síðdegis en nefndin hefur víðtækar heimildir til að rannsaka framkomin álitaefni og getur meðal annars farið fram á endurtalningu. Verðandi forseti Alþingis telur ólíklegt að kosningarnar verði ógiltar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×