Frá árinu 2020 hefur Freyr tekið að sér ýmis störf víðs vegar um heiminn. Hann var aðstoðarþjálfari Heimis Hallgrímssonar hjá Al-Arabi í Katar. Þaðan lá leið hans til Lyngby í Danmörku og í fyrra var hann fenginn til þess að stýra liði KV Kortrijk í Belgíu. Nú liggur leið hans til Bergen þar sem að Freyr hefur skrifað undir samning við norska stórliðið Brann.
Það hefur verið allur gangur á því hvort að fjölskyldan fylgi Frey með til nýrra landa þar sem að hann starfar í Bergen mun Freyr búa einn um sinn en það leynir sér ekki hversu stoltur hann er af eiginkonu sinni og börnum og því hvernig þau tækla þetta líf sem þau hafa skapað sér saman.
„Ég er einn í Bergen og verð einn fram á sumar. Svo sjáum við til hvað við gerum. Þau eru ótrúleg öll. Börnin mín og eiginkona mín. Börnin eru að gera hrikalega vel í skóla í Frakkland og við viljum ekki slíta þau úr því. Þannig að konan, enn og aftur, tekur pakkann og ber þetta á herðum sér. Fyrir það er ég endalaust þakklátur.“
„Það er líka bara mikilvægt að sjá börnin sín vaxa í þessu lífi sem að við höfum valið. Ég er mjög stoltur af þeim, hvernig þau hafa mótast í þessu og hvers konar manneskjur og karakterar, sérstaklega unglingstelpurnar mínar, eru orðnar. Ég á svo ungan dreng líka og hvað konan mín er sterk og gerir þetta vel maður. Það er geggjað. Svo sjáum við til hvað setur. Tíminn leiðir það í ljós en markmiðið er svo að þau verði með mér frá og með haustinu.ׅ“