Innlent

Ferða­mönnum bjargað af þaki bíls við Kattar­hryggi

Atli Ísleifsson skrifar
Vel gekk að bjarga fólkinu af seinni bílnum og upp úr hálf sex í morgun voru allir þrír komnir í sjúkrabíl til aðhlynningar.
Vel gekk að bjarga fólkinu af seinni bílnum og upp úr hálf sex í morgun voru allir þrír komnir í sjúkrabíl til aðhlynningar. Landsbjörg

Björgunarsveitir í Borgarfirði voru kallaðar út vegna tilkynningar frá ferðamönnum í vandræðum við Kattarhryggi, á leið upp á Holtavörðuheiði, á fimmta tímanum í nótt.

Í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg segir að þar hafði ræsi undir veginn stíflast svo flæddi yfir hann á stórum kafla. Ferðafólk á tveimur bílum hafði lent í vatninu og komst það út úr bílunum og upp á þak þeirra, en þeir voru nánast á kafi í vatninu þegar björgunarsveitir komu á vettvang.

Landsbjörg

„Svo mikið vatn var á veginum að björgunarmaður í öryggislínu þurfti að synda að öðrum bílanna, þar sem tveir ferðamenn voru á þaki hans og komust hvergi. Einn ferðamaður hafði komist að sjálfsdáðum á þurrt úr hinum bílnum.

Landsbjörg

Vel gekk að bjarga fólkinu af seinni bílnum og upp úr hálf sex í morgun voru allir 3 komnir í sjúkrabíl til aðhlynningar.

Björgunarfólk hafði þá jafnframt lýst vel upp nágrennið til að tryggja að engir aðrir væru þar ásamt því að veiða upp hluti sem flotið höfðu úr bílunum.

Í kjölfarið var Holtavörðuheiði lokað vegna vatnavaxta,“ segir í tilkynningunni.

Landsbjörg

Holtavörðuheiði 15/1/2025 tveir bílar út í vatni bjargað tveim af öðrum þeirra.Landsbjörg

Landsbjörg



Fleiri fréttir

Sjá meira


×