Skoðun

Lýð­ræðið í hættu – stjórn­mála­flokkar án lýðræðislegrar upp­byggingar

Svanur Guðmundsson skrifar

Íslenskt lýðræði byggir á grunnstoðum sem fela í sér að stjórnmálaflokkar virki sem lýðræðislegur vettvangur þar sem félagsmenn hafa tækifæri til að taka þátt í ákvörðunum og móta stefnu. Við búum við kerfi þar sem vænst er að flokkar haldi landsfundi, þar sem forysta er kjörin á lýðræðislegan hátt, og kjördæmaráð sjá um að tryggja uppstillingu frambjóðenda í prófkjörum eða á annan lýðræðislegan hátt.

Ég hef sjálfur tekið þátt í því að fjárframlög til stjórnmálaflokka væru nægileg til að viðhalda almennu félagsstarfi, halda flokkum gangandi og skapa vettvang fyrir félagsmenn til að móta samþykktir og stefnumál. Slík uppbygging er nauðsynleg fyrir virkt lýðræði og eflingu samfélagsins.

Hins vegar stöndum við nú frammi fyrir alvarlegu vandamáli. Einn flokkur sem situr í ríkisstjórn fer þvert gegn þessum lýðræðislegu grunngildum. Sá flokkur heldur hvorki landsfundi né kjördæmaráðsfundi og heldur engan fjölmennan félagsfund þar sem málefnaskrá er mótuð. Þrátt fyrir þetta fær flokkurinn rífleg opinber framlög úr ríkissjóði, sem eru ætluð til að styðja flokkstarf og styrkja lýðræðislega þátttöku, en engu slíku er til að dreifa í þessu tilfelli.

Þessi staða er óviðunandi. Hún vekur áleitnar spurningar: Er ásættanlegt að stjórnmálaflokkar, sem hafa enga lýðræðislega uppbyggingu og virkja ekki félagsstarf, fái opinber framlög? Eru samstarfsflokkar í ríkisstjórn tilbúnir að líta framhjá þessu og veita slíku skipulagi lögmæti með samstarfi sínu?

Við verðum að spyrja okkur hvers konar lýðræði við viljum byggja upp. Ef stjórnmálaflokkar virka ekki á lýðræðislegan hátt, hvernig getum við vænst þess að þeir stuðli að lýðræðislegum vinnubrögðum í stjórnsýslu?

Það er ekki bara á ábyrgð stjórnmálaflokka sjálfra heldur okkar allra, kjósenda og þegna, að halda vöku okkar og krefjast þess að flokkar sem þiggja fjárframlög úr sameiginlegum sjóðum starfi í anda lýðræðis. Því ef lýðræðið rofnar innan flokkanna, þá mun það á endanum rofna í samfélaginu sjálfu.

Hvað finnst þér? Er þetta í lagi? Eða þurfum við að krefjast breytinga? Lýðræði er ekki sjálfgefið – við þurfum að standa vörð um það.

Höfundur er framkvæmdastjóri Bláa hagkerfisins.




Skoðun

Sjá meira


×