Íslenski boltinn

Ey­þór sóttur í Fylki: „Loksins ein­hver að koma að leika við þig“

Sindri Sverrisson skrifar
Eyþór Wöhler er mættur í appelsínugulu treyjuna.
Eyþór Wöhler er mættur í appelsínugulu treyjuna. Fylkir

Nú er orðið ljóst að Eyþór Aron Wöhler, sem lék með KR í Bestu deildinni á síðustu leiktíð, verður leikmaður Fylkis næstu tvö árin.

Fylkismenn kynntu Eyþór til leiks með skemmtilegu myndbandi í dag þar sem hann var sóttur heim til mömmu, nú þegar nokkuð er um liðið síðan að KR-ingar kvöddu hann.

„Eyþór! Loksins einhver að koma að leika við þig,“ kallar mamman, Hafdís Hallgrímsdóttir, þegar Guðmundur Tyrfingsson, leikmaður Fylkis, kemur að spyrja eftir honum. Myndbandið má sjá hér að neðan en mögulega þarf að ýta á F5 til að endurhlaða síðunni.

Þeir félagar spiluðu saman hjá ÍA árin 2021 og 2022 og sameina nú krafta sína á ný hjá Fylki.

Þrátt fyrir að hafa ekki átt gott ár með KR í fyrra, og aðeins fengið að byrja þrjá deildarleiki eftir komuna frá Breiðabliki um vorið, átti hinn 22 ára gamli Eyþór spennandi ár í fyrra því hann er annar forsprakka hljómsveitarinnar Húbbabúbba.

Í myndbandinu hér að ofan tekur Guðmundur félagi hans hins vegar skýrt fram að fótboltinn verði að vera í forgangi í sumar: „Ekkert gigg kjaftæði lengur,“ segir Guðmundur og Eyþór er fljótur að samþykkja það.

Eyþór hefur leikið 76 leiki í efstu deild og skorað í þeim 15 mörk. Hann hóf ferilinn með Aftureldingu en hefur eins og fyrr segir einnig leikið með ÍA og svo með Breiðabliki, HK og KR. Hann á að baki 15 leiki fyrir yngri landslið Íslands og hefur skorað í þeim fjögur mörk.

„Ég er afar sáttur með að ganga í raðir Fylkismanna á þessum tímapunkti. Hér í Árbænum er allt til staðar og ég mun gera allt til þess að standa mig vel í appelsínugulu treyjunni á næstu árum," segir Eyþór í fréttatilkynningu Fylkis.

Fylkir féll niður í Lengjudeildina á síðustu leiktíð en ljóst er að félagið ætlar sér að snúa sem fyrst aftur upp í Bestu deildina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×