Íslenski boltinn

Daninn og Svíinn á skotskónum í sigri Vals

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Patrick Pedersen skoraði tvö mörk í leiknum á Hlíðarenda í dag.
Patrick Pedersen skoraði tvö mörk í leiknum á Hlíðarenda í dag. Vísir/Anton Brink

Framherjarnir Patrick Pedersen og Albin Skoglund voru báðir á skotskónum í dag þegar Valur vann 4-2 sigur á Þrótti í fyrsta leik liðanna í Reykjavíkurmóti karla í fótbolta í ár.

Valur vann leikinn 4-2 eftir að hafa komist í 3-0 í fyrri hálfleiknum.

Albin Skoglund skoraði fyrsta mark leiksins strax á ellefu mínútu en Patrick Pedersen bætti síðan tveimur mörkum við áður en hálftími var liðinn.

Þróttarinn Liam Daði Jeffs minnkaði muninn í 3-1 á 40. mínútu og Valsmaðurinn Bjarni Mark Antonsson varð síðan fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 55. mínútu. Staðan var því orðin 3-2 og mikil spenna í leiknum.

Gísli Laxdal Unnarsson innsiglaði sigur hins vegar Valsliðsins á 65. mínútu en liðið endaði manni færri eftir að Hörður Ingi Gunnarsson fékk rauða spjaldið í uppbótatímanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×