Innlent

Krefji Eddu um marg­falt hærri upp­hæð en eðli­legt sé

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Edda Falak stofnaði hlaðvarpið Eigin konur með Davíð Goða og Fjólu árið 2021. Fljótlega slitnaði upp úr samstarfinu og nú stefnir í að úr verði dómsmál.
Edda Falak stofnaði hlaðvarpið Eigin konur með Davíð Goða og Fjólu árið 2021. Fljótlega slitnaði upp úr samstarfinu og nú stefnir í að úr verði dómsmál. Vísir/Vilhelm

Lögmaður Eddu Falak segir fyrrverandi samstarfsfólk Eddu í hlaðvarpinu Eigin konur fara fram á tugi milljóna króna frá henni, þegar tekjur hlaðvarpsins á samstarfstímanum hafi verið um tvær og hálf milljón. Fólkið hafi enga fjármuni lagt í hlaðvarpið, aðeins vinnu sína. 

Greint var frá því í gær að deilur um hlaðvarpið Eigin konur, sem Edda hóf að framleiða ásamt Davíð Goða Þorvarðarsyni og Fjólu Sigurðardóttur, væru komnar á dagskrá héraðsdóms. Davíð og Fjóla hefðu stefnt Eddu til greiðslu fyrir vinnu sína, sem þau hefðu ítrekað farið fram á en ekki fengið.

Lögmaður Fjólu og Davíðs hefur þá sagt að reynt verði að komast að samkomulagi um greiðslur áður en málið fari lengra. Fyrirhuguð fyrirtaka málanna er næstkomandi fimmtudag, 9. janúar. 

Hafi verið boðin og búin til að greiða

Sigrún Jóhannsdóttir, lögmaður Eddu, segir kröfur Davíðs og Fjólu á hendur Eddu hljóða upp á 30 milljónir.

„Þær tekjur sem komu inn á samstarfstíma aðila voru samtals um 2,5 milljónir, eins og gögn bera glögglega með sér. Edda hefur frá upphafi verið tilbúin að greiða þeim stærstan hluta allrar þeirrar fjárhæðar en boð hennar hafa að mestu mætt þögninni og síðar auknum kröfum,“ segir Sigrún. 

Sigrún Jóhannsdóttir er lögmaður Eddu í málinu.Frank Scalici

Hafi rætt málamiðlum fyrir daufum eyrum

Mikilvægt sé að hafa í huga að Fjóla og Davíð hafi enga fjármuni lagt í hlaðvarpið, heldur vinnu sína og tæki sem þegar hafi verið til staðar. Krafa um að Edda greiði þeim tugi milljóna af fjármunum sem aldrei hafi verið til gangi því illa upp.

„Edda hefur lagt sig fram við að ná samkomulagi við þau og gekk mjög hart að því í aðdraganda dómsmálsins en upplifði ekki að hún hafi mætt miklum vilja til að lækka þessar tugmilljóna kröfur,“ segir Sigrún.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×