Fótbolti

„Það er betra að sakna á þennan hátt“

Aron Guðmundsson skrifar
Emilía kveður nú danska boltann eftir farsæl ár og er staðráðin í að láta til sín taka í þýska boltanum.
Emilía kveður nú danska boltann eftir farsæl ár og er staðráðin í að láta til sín taka í þýska boltanum. Vísir/Einar

Eftir að hafa slegið í gegn í Dan­mörku, orðið marka­drottning og unnið titla, tekur ís­lenska lands­liðs­konan í fót­bolta. Emilía Kiær Ás­geirs­dóttir nú næsta skref á sínum ferli. Hún hefur samið við þýska liðið RB Leipzig. Hún telur þetta rétta tíma­punktinn á sínum ferli til að opna næsta kafla.

Hin nítján ára gamla Emilía samdi við RB Leipzig til ársins 2028 eftir farsælan tíma með meistara­liði FC Nord­sjælland í Dan­mörku þar sem að hún hefur raðað inn mörkum.

„Þetta er fínt skref fyrir mig að taka núna. Nýtt um­hverfi, nýtt fólk, nýir leik­menn og þjálfara­t­eymi,“ segir Emilía í sam­tali við íþrótta­deild „Allt mjög nýtt fyrir mér og ég er mjög spennt fyrir þessu. Þetta er mjög góð deild. Ég á von á því þegar að ég mæti þangað að finna fyrir því strax að æfingarnar verða erfiðari, leikirnir verða erfiðari og sömu­leiðis mót­herjarnir. Þetta er allt skref í rétta átt að því mark­miði sem ég hef fyrir sjálfa mig að verða betri fót­bolta­kona.“

Önnur félög höfðu áhuga

Að­dragandinn að félags­skiptunum er ein­hver.

„Við höfum verið að tala saman fyrir félags­skipta­gluggann. Þetta er smá ferli sem að maður gengur í gegnum þar sem að þau eru að kynnast mér og ég þeim. Maður vill spyrja margra spurninga og fá við þeim svör og saman reynum við að vinna að því að leiða það í ljós hvort þetta sé rétta skrefið fyrir báða aðila. Þetta er ekki ferli sem hófst í gær. Það voru önnur félög sem höfðu áhuga á mér en þegar að félag eins og Leipzig kemur inn í myndina og maður fær það á til­finninguna að þau vilja fá mig til sín og ég finn sömu­leiðis að ég geti passað inn í þeirra plan, þá gerir það þann mögu­leika mjög spennandi.“

Emilía í treyju RB Leipzig.Mynd: RB Leipzig

Það var metnaðurinn sem ríkir hjá RB Leipzig varðandi kvenna­liðið sem heillaði Emilíu einna mest en stutt er síðan að liðið kom sér í þýsku úr­vals­deildina og er nú orðið að ákveðnu kjöl­festu liði þar í landi sem stefnir hærra.

„Spennandi lið sem vill kvenna­boltanum vel. Maður finnur fyrir því strax við komuna þangað. Finnur hvað fólk vill þetta mikið. Ekki bara fyrir karla­liðið heldur líka kvenna­liðið. Það er mjög spennandi að vera partur af slíku verk­efni.“

Viðskilnaðurinn í góðu

Og mark­miðin sem Emilía setur sér fyrir veruna í Þýska­landi eru skýr.

„Fyrir mig er það klár­lega að horfa á hvernig ég hef orðið betri frá því að ég byrjaði að spila fyrir Nord­sjælland í Dan­mörku að deginum í dag. Hvar ég er stödd sem leik­maður. Maður vill náttúru­lega taka þann leik­mann og persónu sem maður er í dag og halda áfram að byggja ofan á það þegar að ég kem til Þýska­lands. Ég vil horfa á fót­bolta­getu mína, hvernig ég er inn á vellinum og allar hliðar sem að því koma og sjá hvort að ég geti tekið skref í rétta átt. Ég held að þetta sé staður þar sem að ég get gert það. Ég get ein­beitt mér 100 pró­sent að fót­boltanum. Það er fullt af hlutum í kringum mig sem munu hjálpa mér.“

Emilía fagnar einu marka sinna með FC Nordsjælland.Mynd: FC Nordsjælland

„Ég tel þetta rétta tímann fyrir mig til þess að taka næsta skref til þess að öðlast meiri reynslu og takast á við nýjar áskoranir á öðrum stað. Á sama tíma er ég alveg viss um að ég hefði enn geta bætt mig hjá Nord­sjælland en á þessum tíma­punkti er það rétt fyrir mig að halda áfram, fara í sterkari deild og í sterkara lið af því að ég trúi því að það sé rétta leiðin til þess að verða betri. Það er það sem ég vil gera.“

Hún kveður þó Nor­sjælland með söknuði en hjá félaginu hefur hún unnið titla og raðað inn mörkum sem gerðu hana að marka­drottningu dönsku úr­vals­deildarinnar á síðasta tíma­bili.

„Ég mun sakna staðarins, félagsins og alls þess sem maður hefur byggt á síðustu árin. En það fylgir þessum viðskilnaði góð til­finning. Það er betra að sakna á þennan hátt því ég mun skilja við félagið á góðum stað. Þetta var rétti staðurinn fyrir mig til þess að taka þessi skref og af­reka þetta. Ég get ekki talað nógu mikið og nógu vel um þetta félag. Mér leið bara ótrú­lega vel þarna. Það að líða vel er grunnurinn þess að maður nær mark­miðum sínum.“

Valdi Ísland fram yfir Danmörku

Árið sem nú er að renna sitt skeið er stórt á stuttum at­vinnu­manna­ferli Emilíu til þessa. Eftir að hafa spilað fyrir yngri lands­lið Dan­merkur valdi hún að feta lands­liðs­feril sinn með ís­lenska lands­liðinu og tók þátt í sínum fyrstu A-lands­leikjum. Sá fyrsti gegn Austurríki á Laugar­dals­velli í júní.

Emilía í leik með yngra landsliði DanmerkurVísir/Getty

„Það var sturluð til­finning sem fylgdi því. Það að fara í treyjuna og vita að maður sé að fara spila fyrsta lands­leikinn sinn fyrir þjóð sína, og það á Ís­landi, bara æðis­leg til­finning og gott að vita af fólkinu sínu í stúkunni sem finnst þetta jafn spennandi og hefur verið með manni í þessu ferli síðan að maður hóf að æfa fót­bolta. Maður horfir á að­dragandann að þessu sem eru miklu meira en bara þrír mánuðir frá því að ég tók þessa ákvörðun.“

Emilía kom við sögu í nokkrum landsleikjum með A-landsliði Íslands á síðasta ári. Hér er hún í baráttunni gegn Ólympíumeisturum Bandaríkjanna.Vísir/Getty

Eftir að hafa búið í Dan­mörku með fjöl­skyldu sinni undan­farin ár tekur Emilía nú stórt skref út fyrir þæginda­rammann 19 ára gömul. Að flytja ein til Þýska­lands þó svo að hún njóti góðrar að­stoðar móður sinnar fyrstu mánuðina á meðan að hún kemur sér fyrir.

„Þetta verður stórt skref út fyrir þæginda­rammann. Ég er að fara búa ein sem er alveg nýtt fyrir mér en það að flytja á milli landa er ekki stór­mál fyrir mig, ég hef gert það oft. Það er sömu­leiðis spennandi að kynnast nýrri menningu og það er einn af þessum jákvæðu punktum sem maður getur tekið með sér sem at­vinnu­maður í fót­bolta, maður getur lært nýtt tungumál, kynnst nýrri menningu og siðum. Ég mun læra meira einn á mig sem persónu í gegnum þetta. Það er spennandi.“

Emilía með móður sinni eftir að hafa skrifað undir samning við RB LeipzigMynd: RB Leipzig

Hlakkar til að mæta liðsfélögunum úr landsliðinu

Þýska deildin hefur reynst ís­lenskum leik­mönnum vel í gegnum tíðina og má þar nefna leik­menn á borð lands­liðs­fyrir­liðann Glódísi Perlu Viggós­dóttur og Sveindísi Jane Jóns­dóttur.

„Þegar að maður sér aðra Ís­lendinga spila í þessari deild þá hjálpar það alveg. Maður getur horft til þeirra og séð hvernig þeim gengur og líður þarna úti. Auðvitað tekur maður það inn í myndina þegar að maður veltir því fyrir sér hvort þetta sé rétta skrefið fyrir mann á ferlinum. Það verður skemmti­legt að hitta liðs­félagana úr ís­lenska lands­liðinu og spila á móti þeim í þessari deild.“

Þýska deildin hefst aftur eftir hlé í næsta mánuði og Emilía mun ekki þurfa að bíða lengi eftir því að mæta fyrsta liðs­félaganum úr lands­liðinu því fyrsti leikur Leipzig verður gegn Bayern Munchen með Glódísi Perlu í hjarta varnarinnar.

Glódís Perla Viggósdóttir er fyrirliði Bayern München.Getty/Boris Streubel

Emilía horfir raunsæum augum á framtíðina í Þýska­landi og ætlar að vinna sig inn í byrjunar­lið Leipzig eins fljótt og kostur er.

„Auðvitað þar maður að venjast um­hverfinu þarna úti. Ég er að fara inn í nýtt lið og þarf að læra inn á nýtt leik­skipu­lag, öðru­vísi spila­mennsku en ég hef vanist í Nord­sjælland undan­farin ár. Þetta tekur ein­hvern tíma en vonandi verður sá tími bara lær­dóms­ríkur fyrir mig og hjálpar mér.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×