„Allt tal um baktjaldamakk er tóm þvæla“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 29. desember 2024 10:51 Andrea svarar gagnrýnisröddum og vísar tali um baktjaldamakk til föðurhúsanna. Vísir/Vilhelm/Aðsend Formaður utanríkismálanefndar Sjálfstæðisflokksins gefur lítið fyrir gagnrýni flokksfélaga á mögulega frestun landsfundar flokksins fram í haust. Allt tal um baktjaldamakk sé þvæla og jafnvel grunnskólabörn viti hvernig tíðarfarið sé í febrúar.
Andrea Sigurðardóttir, fréttastjóri viðskiptaritstjórnar hjá Morgunblaðinu, formaður Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna í Reykjavík og formaður utanríkismálanefndar flokksins, skrifaði færslu á Facebook í gær undir yfirskriftinni „Veðuráhugamanni svarað“. Með færslunni er kort af Íslandi í febrúar 2022 þar sem landið er undirlagt veðurviðvörunum. Andrea virðist vera að svara Daníel Hjörvari Guðmundsson, stjórnarmanni SUS, sem skrifaði skoðanagreinina „Veðurstofa Sjálfstæðisflokksins frestar fundi“ á Vísi í gær. Daníel hæddist þar að hugmyndum um að fresta landsfundinum af veðurfarslegum ástæðum og sagði lygasöguna um paradísina sem er íslenska haustið ekki nógu góða. Veðuráhugamanni svarað Andrea hefur pistill sinn á að árétta að formenn málefnanefnda ráði engu um það hvenær landsfundur Sjálfstæðisflokksins sé haldinn. Rétt eins og aðrir flokksmenn geti þeir hins vegar haft á því skoðun. Hún segir að þegar ákveðið var að halda landsfund í febrúar 2025 hafi sennilega flestir reiknað með kosningum í vor. Þegar undirbúningur fyrir landsfundinn hófst hafi tímalínan verið „nokkuð þétt, en vel viðráðanleg“ en svo hafi komið til óvæntra kosninga í lok nóvember. Allir hafi lagst á eitt í baráttunni. „Greinilegt er að baráttuhugur er enn í mönnum, og jafnvel svo mikill í sumum að þeir mála skrattann á vegginn til þess eins að geta tuðað í honum,“ skrifar hún. Þegar þráðurinn hafi verið tekinn upp aftur eftir kosningar hafi verið ljóst að tímalínan væri orðin mjög brött hvað varðar þá fresti sem skipulagsreglur geri ráð fyrir. Hún hafi því viðrað þá hugmynd að heppilegra væri að seinka fundinum fram á vor til þess að geta betur undirbúið hann. „Gefa fólki sem hefur unnið hörðum höndum í baráttunni um leið smá andrými áður en næsta törn hefst,“ skrifar hún. „Þar sem minni líkur væru nú á kosningum í vor lægi varla svo mikið á fundinum.“ Fiskarnir hans Jens og flest grunnskólabörn þekki tíðarfarið Andrea segir mikilvægt að landsfundur verði haldinn sem fyrst en þó með eðlilegri tímalínu. Henni hafi því hugnast vorið vel og haustið til vara ef ekki væri unnt að tryggja aðstöðu undir svo stóran fund með þeim fyrirvara. „Undir þau sjónarmið hafa margir tekið (og aðrir ekki) en meðal annars hefur verið rætt um að vor eða haust sé eflaust hentugri tímasetning fyrir landsbyggðina, þar sem veðurguðirnir eru almennt blíðlyndari á þeim árstíma,“ skrifar hún. Andrea lét þetta kort af Íslandi fylgja með færslunni. Í byrjun febrúar 2022 var rauð viðvörun vegna veðurs á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og í Faxaflóa. Appelsínugular viðvaranir voru á hinum hlutum landsins.Veðurstofan „Sú vangavelta var nú aldrei neitt aðalatriði í umræðunni, en maður slær svo sem ekki hendinni á móti því að fá veðurfræðigráðu afhenta í opinberri umræðu fyrir jafn augljósa ályktun. Eflaust er óhætt að fullyrða að fiskarnir hans Jens kannist við þetta árstíðafar hér á landi – jafnvel flest grunnskólabörn,“ skrifar hún og vísar þar beint í háðsleg skrif Daníels um spádómsfiska Jens Garðars Helgasonar. Hún segir síðan að ef menn vilji keyra á landsfund í febrúar þá standi ekki á henni í þeim efnum. Sjálfstæðismenn fengju þó meira út úr fundinum ef hann yrði haldinn með vorinu eða hausti til vara. „Það er þó aðallega af öðrum ástæðum en fleiri sólarstundum og lægri tíðni veðurviðvaranna, þótt það sé vissulega skemmtilegra líka,“ segir hún að lokum. Þykir miður að vinnuskjali sé lekið Hún lætur þó ekki færsluna duga eina og sér og skrifar ummæli við hana. „Best að bæta við þetta að allt tal um baktjaldamakk er tóm þvæla. Þetta eru eðlilegar umræður um tímalínu í hópi fólks sem stýrir mikilvægum hluta undirbúningsvinnu fyrir fundinn,“ skrifar hún þar og vísar greinilega í orð Bessíar Jóhannsdóttur, formanns Samtaka eldri sjálfstæðismanna. Andrea segir einnig í ummælunum að bréf frá formönnum málefnanefnda sem einhverjir fjölmiðlar hafi undir höndum sé í drögum og enn eigi eftir að taka tillit til athugasemda við það. „Umræðu um þetta meðal formanna málefnanefnda er ekki lokið. Hins vegar þykir mér miður að vinnuskjali sem þessu sé lekið og látið líta út fyrir að hér sé um fullmótaða ályktun að ræða,“ skrifar hún.
Sjálfstæðisflokkurinn Reykjavík Veður Landsfundur Sjálfstæðisflokksins 2025 Mest lesið Blöskrar biðlaunin: „Hvernig segi ég mig úr þessu drasli?“ Innlent Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Erlent Tímaspursmál hvenær Bandaríkin snúi sér að Íslandi Innlent Bein útsending: Deildarmyrkvi á sólu Innlent Vildu hætta Ameríkuflugi en keyptu svo 757-þotuna Innlent Ekki náð að góma þjófa í dulargervi Innlent Mengun úr jarðvegi orsakaði skrýtið bragð af neysluvatni Innlent Segir orðræðu varaforsetans ósanngjarna Erlent Tala látinna komin yfir þúsund Erlent Heimsókn Vance óviðeigandi og óviðunandi Erlent Fleiri fréttir Bæjarstjórnin gagnrýnir skýrslu um hvernig eigi að byggja upp bæinn Roðsnakk frá 19 ára frumkvöðli slær í gegn Tímaspursmál hvenær Bandaríkin snúi sér að Íslandi Blöskrar biðlaunin: „Hvernig segi ég mig úr þessu drasli?“ Grænlandsheimsókn Vance og tíu tíma langir tónleikar Mengun úr jarðvegi orsakaði skrýtið bragð af neysluvatni Bein útsending: Deildarmyrkvi á sólu Unglingur hrækti á lögreglumann Ekki náð að góma þjófa í dulargervi Vildu hætta Ameríkuflugi en keyptu svo 757-þotuna Fullveldi Íslands háð því að alþjóðalög séu virt Karlar eiga mjög erfitt með að viðurkenna risvandamál Nýtt hverfi innblásið af gömlu Reykjavík RÚV leiðréttir umfjöllun um mál Ásthildar Lóu Eldur í gömlu sundhöllinni í Keflavík Mannskæður jarðskjálfti og vasaþjófar í dulargervi Borgarfulltrúi sagður hafa sýnt ógnandi hegðun á íbúafundi Jagúar, skrautleg ferð, Baltasar Kormákur og fullt af „ís“ Eins leitað eftir slagsmál Greiða atkvæði um verkfall á Grundartanga Kæra skógrækt við Húsavík vegna rasks á varplendi fugla Lokaæfing fyrir almyrkva Vilja að bæjarstjóri lækki laun sín jafn mikið og bæjarfulltrúar Döpur vegna „hetjunnar“ Ástu og „ómaklegrar aðfarar“ RÚV Saka lögregluna um að rægja Kínverja Verður aflífaður eftir allt saman Harðir skjálftar í Asíu og Play til Möltu Lögreglustjóri mun stýra Mannréttindastofnun Vara við þjófum sem dulbúa sig sem ferðamenn Stuðningur við símabann í grunnskólum eykst og mælist 62 prósent Sjá meira