Ráðin framkvæmdastjórar hjá Sóltúni Atli Ísleifsson skrifar 20. nóvember 2024 12:02 Eva Ýr Gunnlaugsdóttir og Einar Örn Ævarsson. Eva Ýr Gunnlaugsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Sóltúni heilbrigðisþjónustu og Einar Örn Ævarsson sem framkvæmdastjóri Sólstaða ehf.
Frá þessu segir í tilkynningu frá Sóltúni. Þar kemur fram að Eva Ýr hafi víðtæka reynslu á sviði mannauðsmála, þar sem hún hafi starfað sem framkvæmdastjóri mannauðs og menningar hjá Alvotech, auk þess að hafa unnið við mannauðsmál hjá Landspítala, Össuri, NOVA og Vinnuvernd. „Hún er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík, MS gráðu í mannauðsstjórnun og BS gráðu í hjúkrunarfræði. Eva hefur einnig lokið námi í stjórnendamarkþjálfun. Einar Örn Ævarsson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri Sólstaða ehf. Sólstöður er nýtt fyrirtæki innan Sóltúnssamstæðunnar og er markmið þess að draga úr mönnunarvanda íslenska heilbrigðiskerfisins með því að aðstoða hjúkrunarfræðinga frá öðrum löndum við að koma til Íslands og vinna sem slíkir. Sólstöður ehf. leggur áherslu á sjálfbærnissjónarmið og mikilvægi þess að standa vel að öllum ferlum búferlaflutninga erlends starfsfólks til landsins. Einar hefur mikla reynslu af búferlaflutningum starfsfólks en hann var áður framkvæmdastjóri hjá Xpat Relocation Services sem sá um að aðstoða erlenda sérfræðinga við að koma til starfa á Íslandi. Einar hefur starfað sem sérfræðingur í ráðningum fyrir ráðgjafafyrirtækið Intellecta en lengst af hjá Arion banka. Einar útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá HR. Innan Sóltúns heilbrigðisþjónustu eru rekin fjölbreytt þjónustuúrræði fyrir aldraða, meðal annars hjúkrunarheimilin Sóltún í Reykjavík og Sólvangur í Hafnarfirði, heimaþjónustan Sóltún Heima, endurhæfingarúrræðið Sóltún Heilsusetur og Sólstöður. Eva Ýr og Einar hafa þegar hafið störf,“ segir í tilkynningunni.
Vistaskipti Hjúkrunarheimili Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Sjá meira