Innlent

Þrír fluttir á sjúkra­hús

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar var send á vettvang.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var send á vettvang. Vísir/Vilhelm

Þrír voru fluttir á sjúkrahús með þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir að tveir bílar skullu saman úr gagnstæðri átt við Þrastarlund.

Lögreglan á Suðurlandi staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Biskupstungnabraut var lokuð í kjölfarið og gert er ráð fyrir því að hún verði lokuð í talsverðan tíma.

Þyrlan var kölluð út skömmu fyrir klukkan átta í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×