Handbolti

Þor­steinn Leó marka­hæstur og stór­sigur hjá strákunum hans Gumma

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Þorsteinn Leó Gunnarsson er í hópi markahæstu leikmanna portúgölsku úrvalsdeildarinnar.
Þorsteinn Leó Gunnarsson er í hópi markahæstu leikmanna portúgölsku úrvalsdeildarinnar. vísir/anton

Eftir tap fyrir Sporting í síðustu komst Porto aftur á sigurbraut þegar liðið vann stórsigur á Vitória, 21-36, í portúgölsku úrvalsdeildinni í dag. Þorsteinn Leó Gunnarsson var markahæstur í liði Porto.

Þorsteinn átti frábæran leik þegar Ísland lagði Bosníu, 32-26, í undankeppni EM í síðustu viku. Hann skoraði þá átta mörk úr níu skotum í seinni hálfleik.

Mosfellingurinn fylgdi því eftir með því að skora sex mörk í stórsigri Porto í dag. Með honum komst liðið á topp portúgölsku deildarinnar. Sporting getur endurheimt toppsætið með því að vinna Aguas Santas í kvöld.

Strákarnir hans Guðmundar Guðmundssonar í Fredericia unnu öruggan sigur á Bjerringbro/Silkeborg, 30-21, í dönsku úrvalsdeildinni. Fredericia er í 2. sæti með sautján stig, tveimur stigum á eftir toppliði GOG.

Arnór Viðarsson og Einar Þorsteinn Ólafsson voru ekki á meðal markaskorara hjá Fredericia. Besti maður liðsins var markvörðurinn Sebastian Frandsen en hann varði átján skot (48,7 prósent).

Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði fjögur mörk fyrir Kolstad sem sigraði Halden, 22-26, í norsku úrvalsdeildinni. Kolstad er í 2. sæti hennar með átján stig, jafn mörg og topplið Elverum sem á leik til góða.

Sveinn Jóhannsson skoraði þrjú mörk fyrir Kolstad í dag og fyrirliðinn Sigvaldi Guðjónsson tvö.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×