Ákærður fyrir ráðabrugg um að ráða Trump af dögum Árni Sæberg skrifar 9. nóvember 2024 10:10 Donald Trump virðist eiga fleiri óvini en flestir. Michael M. Santiago/Getty Íranskur karlmaður hefur ákærður fyrir tengsl hans við meint ráðabrugg um að ráða Donald Trump, nýkjörinn forseta Bandaríkjanna, af dögum. Hann segir íranska byltingarvörðinn hafa verið að baki ráðabrugginu.
Reuters hefur eftir dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna að maðurinn, Farhad Shakeri, hafi greint löggæsluyfirvöldum frá því að íranski byltingarvörðurinn, úrvalssveitir klerkastjórnarinnar í Íran, hafi skipað honum þann 7. október síðastliðinn að mynda áætlun um hvernig mætti koma Trump fyrir kattarnef. Hann hafi sagst ekki hafa haft í hyggju að framfylgja skipunum klerkastjórnarinnar. Shakeri er 51 árs og var búsettur í Bandaríkjunum til ársins 2008, þegar honum var vísað úr landi eftir að hafa verið sakfelldur fyrir rán. Að sögn dómsmálaráðuneytisins er hann talinn vera í Íran og hans sé leitað. Haft er eftir Esmail Baghaei, talsmanni utanríkisráðherra Írans að fullyrðingar um meint ráðabrugg væri „viðurstyggilegt“ samsæri Ísraels og annarra andstæðinga Írans um að flækja samskipti milli Írans og Bandaríkjanna. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Íranir eru sakaðir um að hafa ætlað að myrða Trump en hann hefur sjálfur sagst vonast til þess að Bandaríkin þurrki Íran út af kortinu, verði meintar áætlanir þeirra að veruleika.
Donald Trump Bandaríkin Íran Erlend sakamál Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Sjá meira