Stóra sánumálið: „Örugglega ýmislegt viðgengist sem myndi ekki viðgangast í öðrum klefum“ Kristín Ólafsdóttir skrifar 3. október 2024 12:02 Fréttastofa innti forstöðumann og gesti Vesturbæjarlaugar eftir viðbrögðum við afnámi kynjaskiptingar í sánuklefum laugarinnar. Gestum Vesturbæjarlaugar gremst mörgum að kynjaskiptir sánuklefar heyri nú sögunni til í lauginni. Forstöðumaður segir ekkert annað hafa verið í stöðunni en að loka karlasánunni, sem var orðin fúin og ógeðsleg. Þá stemmi kynjasameiningin vonandi stigu við óviðeigandi hegðun sem hafi verið erfitt að uppræta.
Við skelltum okkur í heimsókn í hina umdeildu sánu í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær. Í Vesturbæjarlaug hafa löngum verið í boði tveir sánaklefar, einn fyrir konur og annar fyrir karla. Karlasánunni var nýverið lokað og kvennasánan gerð aðgengileg öllum kynjum. Líflegar umræður spunnust um málið á Facebook í vikunni og flestir þar virtust gráta breytinguna. „Gjörsamlega misheppnað“, „bókstaflega ömurlegt“, og „synd að missa einn af fáum stöðum þar sem kynin eru aðgreind“ reyndust meginstefin. Nokkrir lýstu sig þó ánægða með að komast í sánu með sínum nánustu af gagnstæðu kyni. Skiptra skoðana gætti einnig meðal laugargesta í Vesturbænum þegar fréttastofu bar að garði í gær. Viðbrögð laugargestanna Reynis, Karvels og Eddu má kynna sér í innslaginu hér fyrir ofan. Kynjaskiptar sánur heyra raunar til algjörra undantekninga í sundlaugum Reykjavíkur. Þær er nú aðeins að finna í tveimur laugum af átta, annars vegar í Árbæjarlaug þar sem infrarauðar sánur eru í báðum búningsklefum, og hins vegar í Breiðholtslaug. Nektarbanni var reyndar komið á í sánunum í Breiðholtslaug í sumar, sem vakti talsverða gremju gesta. Fúinn viður og stækur fnykur Anna Kristín Sigurðardóttir forstöðumaður Vesturbæjarlaugar leiddi okkur um gamla sánuklefa karlanna í heimsókn okkar í gær. Hún kveðst skilja þá vel sem hugnast sameiningin illa. Upphaflega stóð til að gera við karlasánuna í sumar og opna hana aftur. Þegar á hólminn var komið þóttu þær viðgerðir ekki réttlætanlegar, þar sem allsherjar yfirhalning sánumála stendur fyrir dyrum í lauginni. Þessi sána hérna, karlasánan, hún var mjög illa farin. Við finnum það ekki núna en þegar er kveikt á henni þá gýs upp stækur fnykur? „Jú, ég get staðfest það,“ segir Anna. Þannig að þetta var bara það eina í stöðunni? „Já. Og bara ótrúlega leitt að þetta skuli hafa komið svona skyndilega af því að það var ekki alveg það sem við ætluðum okkur.“ Kynjaskipting í sánum Vesturbæjarlaugar heyrir þar með sögunni til. Anna vonast til að geta kynnt teikningar á nýju sánarými fyrir jól. Þar verður reist stór infrarauð sána, sem og hefðbundin sána, fyrir öll kyn. Kvennasánan, sem nú er opin öllum, hverfur semsagt einnig á braut á endanum. Þá lítur Anna á sameininguna, og lokun karlasánunar, sem öryggismál. Orðrómar um óviðeigandi, kynferðislega hegðun hafa lengi loðað við karlasánuna í Vesturbæjarlaug, sem og sánurými á fleiri stöðum. „Það hefur örugglega ýmislegt viðgengist sem myndi kannski ekki viðgangast í öðrum klefum og erfitt að uppræta. Þar af leiðandi teljum við þetta aukið öryggi, að taka burt þessa kynjaskiptingu, því þá getum við líka boðið upp á öryggisvöktun,“ segir Anna.
Sundlaugar Reykjavík Tengdar fréttir Umdeild sameining sánuklefa: „Mér finnst allir vera óánægðir með þetta“ Vesturbæingar eru margir ósáttir með sameiningu sánuklefa karla og kvenna í Vesturbæjarlauginni. Einhverjar segja að verið sé að fæla fastagesti í burtu. Aðrir telja breytinguna til bóta í ljósi þess að innrauð sána komi í stað gömlu karlasánunnar. 1. október 2024 00:21 Nekt bönnuð í sánunni og sundlaugargestir ósáttir Fastagestir Breiðholtslaugar eru óánægðir með breytingar á reglum tengdum sánunni við laugina sem nýlega tóku gildi. Finnska sendiráðið útnefndi sánuna þá bestu í Reykjavík fyrir tveimur árum, en nú vilja einhverjir svipta sánuna þeim titli. 9. júlí 2024 11:24 Mest lesið Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent Pítsan sem kostaði 7.740 krónur Innlent „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Innlent Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Erlent „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Innlent Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Innlent „Þetta er ekkert grín“ Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið Innlent Hefur ekki minnstu áhyggjur af bænum sem þurfti að rýma Innlent Fleiri fréttir Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Tollmiðlari í stafni S-listans í Hveragerði Kosningar hafnar um sameiningu hreppanna Hefur ekki minnstu áhyggjur af bænum sem þurfti að rýma „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Pítsan sem kostaði 7.740 krónur „Þetta er ekkert grín“ Eyþór leiðir en vill ekki stólinn Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Reykt þorskhrogn og handgerð páskaegg í Hörpu Gestir geti spókað sig í þjóðbúningi á samstöðufundi Ótrúlegt að ekki hafi orðið mannslát og óþolandi sóun raforku Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Stórt snjóflóð við Siglufjörð og veginum lokað Ákvörðunin stærri en núverandi ríkisstjórn Einn réðst á dyravörð og um tíu voru grunaðir um akstur undir áhrifum Matthías leiðir Framsókn í Árborg „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Samfélag sem hugsi svona þurfi líka endurhæfingu Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Útför áhrifamanns, átök um úttekt Viðskiptaráðs og upphitun fyrir Laufeyju Lín Stofna framboð fyrir þá sem leggjast gegn sameiningu Bein útsending: Blaðamennska ársins verðlaunuð Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Holtavörðuheiði var lokað vegna slyss Listar Vöku kynntir með pompi og prakt Skíðagöngumennirnir komnir í skjól Sjá meira
Umdeild sameining sánuklefa: „Mér finnst allir vera óánægðir með þetta“ Vesturbæingar eru margir ósáttir með sameiningu sánuklefa karla og kvenna í Vesturbæjarlauginni. Einhverjar segja að verið sé að fæla fastagesti í burtu. Aðrir telja breytinguna til bóta í ljósi þess að innrauð sána komi í stað gömlu karlasánunnar. 1. október 2024 00:21
Nekt bönnuð í sánunni og sundlaugargestir ósáttir Fastagestir Breiðholtslaugar eru óánægðir með breytingar á reglum tengdum sánunni við laugina sem nýlega tóku gildi. Finnska sendiráðið útnefndi sánuna þá bestu í Reykjavík fyrir tveimur árum, en nú vilja einhverjir svipta sánuna þeim titli. 9. júlí 2024 11:24