Handbolti

Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Orri Freyr og félagar áttu ekki í vandræðum með Benfica í dag.
Orri Freyr og félagar áttu ekki í vandræðum með Benfica í dag. Sporting

Orri Freyr Þorkelsson skoraði þrjú mörk fyrir Sporting er liðið vann öruggan 16 marka sigur gegn Stiven Tobar Valencia og félögum hans í Benfica í portúgalska handboltanum í dag, 38-22.

Heimamenn í Sporting höfðu yfirhöndina frá upphafi til enda, en áttu í örlitlum erfiðleikum með að hrista gestina af sér framan af í fyrri hálfleik. Það tókst þó að lokum og Sporting leiddi með sex mörkum þegar liðin gengu til búningsherbergja, staðan 18-12.

Í síðari hálfleik var svo aldrei spurning hvorum megin sigurinn myndi enda. Munurinn að liðunum varð aldrei minni en sex mörk eftir hlé og heimamenn náðu tíu marka forskoti í stöðunni 28-18. Orri og félagar unnu því að lokum öruggan 16 marka sigur, 38-22.

Orri skoraði þrjú mörk fyrir Sporting sem trónir á toppi portúgölsku deildarinnar með fullt hús stiga eftir sex leiki. Stiven Tobar Valencia skoraði eitt mark fyrir Benfica sem situr í fjórða sæti með átta stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×