Sádar sagðir byrjaðir að skrúfa fyrir kranann Kjartan Kjartansson skrifar 21. ágúst 2024 15:26 Sádar hafa reynt að kaupa sér áhrif, meðal annars með því að stofna LIV-mótaröðina í golfi. Þeir tældu suma bestu kylfinga heims eins og Jon Rahm með loforðum um gull og græna skóga. Nánast ekkert áhorf er þó á mótin. Vísir/EPA Alþjóðlegt eyðsluæði Sádiaraba er sagt byrjað að renna af þeim og setja þeir nú ríkari skilyrði um að fjárfestingar þjóðarsjóðs þeirra skili sér heima fyrir. Sjóðurinn hefur veitt milljörðum og milljarða ofan víða um heim á undanförnum árum.
Mohammed bin salman, krónprins og raunverulegur leiðtogi Sádi-Arabíu, fól þjóðarsjóðinum PIF að styrkja efnhagslegar stoðir olíuríkisins og fegra ímynd þess á alþjóðavísu eftir að hann tók við sem stjórnarformaður hans árið 2015. Auk þess að dæla tugum milljarða dollara í fjárfestingar í vestrænum fyrirtækjum hafa Sádar vakið mikla athygli með því sem hefur verið kallað íþróttaþvætti. Liður í því var meðal annars að kaupa enska knattspyrnuliðið Newcastle, þjóðnýta lið í sádiarabísku deildinni og kaupa þangað alþjóðlegar stórstjörnur eins og Cristiano Ronaldo dýrum dómum, og stofna LIV-golfmótaröðina til höfuðs bandarísku PGA-mótaröðinni. Nú segir Financial Times að Sádar séu byrjaðir að halda fastar um pyngjuna en áður og fyrirtæki í leit að innspýtingu fjármagns geti ekki lengur gengið að því sem vísu að fá þá til þess að skrúfa frá peningakrananum. „Þessu er að ljúka. Þetta er að renna upp fyrir fólki,“ segir háttsettur stjórnandi hjá fjárfestingarbanka í Dúbaí. Áhugi á fjármagni frá Sádi-Arabíu hafi dvínað tilfinnanlega, meðal annars vegna þess að þeir sem sækjast eftir því hafi ekki haft erindi sem erfiði. Reyna að beina fjárfestingum heim Sádar eru nú sagðir setja fleiri skilyrði fyrir fjárfestingum en áður, meðal annars um að hún verði að skila störfum í Sádi-Arabíu eða að hluti fjárins renni til uppbyggingar fyrirtækja eða verkefna þar. Í sumum tilfellum krefjast Sádar mótfjárfestingar þar. „Þetta er hluti af áætlun sem er að þróast. Þeir hefðu ekki getað haldið svona áfram endalaust,“ hefur blaðið eftir breskum fjárfestingabankamanni. Ástæðan er meðal annars rakin til þess að Sádar hafa dregið verulega úr olíuframleiðslu sinni til þess að halda uppi verði á hráolíu. Það hefur komið niður á tekjum ríkisins sem er nú rekið með halla.
Sádi-Arabía Fjármálamarkaðir Tengdar fréttir Mun halda íþróttaþvætti áfram ef það eykur landsframleiðsluna Mohamed bin Salman, krónprins Sádi-Arabíu, segir að honum sé alveg nákvæmlega sama um ásakanir á hendur ríkinu um íþróttaþvætti. 22. september 2023 07:30 Mun halda íþróttaþvætti áfram ef það eykur landsframleiðsluna Mohamed bin Salman, krónprins Sádi-Arabíu, segir að honum sé alveg nákvæmlega sama um ásakanir á hendur ríkinu um íþróttaþvætti. 22. september 2023 07:30 Íþróttaþvottavél Sáda á fullum snúningi Sprengju var varpað inn í golfheiminn í vikunni þegar tilkynnt var um samstarf tveggja stærstu golfmótaraða heims við þjóðarsjóð Sádi-Arabíu sem höfðu eldað grátt silfur saman í á annað ár. Samstarfið er nýjasta útspilið í viðleitni Sáda til þess að kaupa sér áhrif og fegra ímynd sína í gegnum íþróttir. 10. júní 2023 08:01 Mest lesið Loka Brút og Kaffi Ó-le Viðskipti innlent „Hann er svolítið eins og Ragnar Reykás“ Viðskipti innlent Standist ekki söguskoðun að tengja uppsagnirnar við veiðigjöldin Viðskipti innlent Sushi Corner lokar Viðskipti innlent Krafa um íslensku leiði til minni samkeppni og hærra verðs Viðskipti innlent Gætum orðið fyrsta landið í heiminum til að snúa þróun offitu við Samstarf „Mér fannst þetta bara gott hjá Ingu“ Viðskipti innlent Nýir mannauðsstjórar hjá Eimskip Viðskipti innlent BMW lækkar verð á nýjustu kynslóð sportjeppans X3 Plug-in Hybrid Samstarf Tekur við sem framkvæmdastjóri innanlandssviðs Samskipa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Frakkar þurfi mögulega að leita aðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins Risinn sem var of stór til að falla er fallinn Facebook gagnrýnt fyrir að leyfa gervigreind að reyna við börn Vilja ekkert með áfengi nágranna sinna hafa Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Kynntu nýja útgáfu ChatGPT: „Þetta er eins og að tala við sérfræðing“ Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Sjá meira
Mun halda íþróttaþvætti áfram ef það eykur landsframleiðsluna Mohamed bin Salman, krónprins Sádi-Arabíu, segir að honum sé alveg nákvæmlega sama um ásakanir á hendur ríkinu um íþróttaþvætti. 22. september 2023 07:30
Mun halda íþróttaþvætti áfram ef það eykur landsframleiðsluna Mohamed bin Salman, krónprins Sádi-Arabíu, segir að honum sé alveg nákvæmlega sama um ásakanir á hendur ríkinu um íþróttaþvætti. 22. september 2023 07:30
Íþróttaþvottavél Sáda á fullum snúningi Sprengju var varpað inn í golfheiminn í vikunni þegar tilkynnt var um samstarf tveggja stærstu golfmótaraða heims við þjóðarsjóð Sádi-Arabíu sem höfðu eldað grátt silfur saman í á annað ár. Samstarfið er nýjasta útspilið í viðleitni Sáda til þess að kaupa sér áhrif og fegra ímynd sína í gegnum íþróttir. 10. júní 2023 08:01