Umhverfisaðgerðarsinni og Íslandsóvinur handtekinn á Grænlandi Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 21. júlí 2024 15:37 Paul Watson var lengi meðal hötuðustu manna á Íslandi. vísir Aðgerðarsinninn og hvalavinurinn Paul Watson hjá samtökunum Sea Shepherd var í morgun handtekinn í höfninni í Nuuk á Grænlandi en alþjóðleg handtökuskipun hafði verið gefið út á hendur honum vegna aðgerða hans í þágu umhverfisverndar. „
Lögreglan á Grænlandi var á vettvangi fyrr í dag við höfnina í Nuuk. Tilefni viðveru lögreglunnar var að stofnanda Captain Paul Watson-samtakanna, hinn bandarísk-kanadíska Paul Watson átti að handtaka þar sem alþjóðleg handtökuskipun hefur verið gefin út á hendur honum,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni á Grænlandi sem Sermitsiaq skrifar eftir. Paul Watson er 73 ára gamall og var einn stofnanda Grænfriðunga sem og Sea Shepherd. Samtökin síðarnefndu hafa í gegnum árin beitt sér með mjög áþreifanlegum hætti gegn hvalveiðum og til að mynda sökktu þau árið 1986 tveimur skipum úr hvalveiðiskipaflota Hvals hf. með því að skrúfa botnlokur þeirra ausar. Þessum aðgerðum var gerð góð skil í öllum blöðum landsins og Watson hefur síðar verið meðal óvinsælustu manna Íslands. Hann hefur jafnvel verið kallaður helsti óvinur þjóðarinnar en óbeit landans á honum hefur ef til vill mildast með breyttum viðhorfum hans til hvalveiða við Íslandsstrendur. „Paul Watson verður leiddur síðar í dag fyrir héraðsdómara í Sermersooq og falast verður eftir því að hann verði látinn sæta gæsluvarðhaldi þangað til að tekin hefur verið ákvörðun um hvort hann skuli framselja til Japans,“ hefur Sermitsiaq eftir lögreglunni. Handtökuskipunin var gefin út af japönskum yfirvöldum vegna mótmælaaðgerða sem Watson hefur staðið fyrir þar í landi.
Grænland Hvalveiðar Umhverfismál Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira