Kemur beint frá París með vistvæna tískustrauma Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 22. apríl 2024 12:31 Ása Bríet kemur til landsins fyrir HönnunarMars og sýnir hönnun sína. Aðsend „Markmið mitt er að geta fært reynsluna mína inn í framtíðina með von um betri og sjálfbærari leiðir til að búa til klæðnað,“ segir fata-og textílhönnuðurinn Ása Bríet Brattaberg. Hún hefur verið að gera öfluga hluti í tískuheiminum úti og segist með námi sínu og reynslu hafa aflað sér framúrskarandi tæknilegrar og skapandi þekkingar.
Ása Bríet kemur frá Íslandi og Færeyjum og tekur þátt í viðburðinum Young Talents of FashionDesign á HönnunarMars. Viðburðurinn opnar 24. apríl í Landsbankanum. View this post on Instagram A post shared by A sa Bri et Brattaberg (@asabrietbratta) Grunnnám í London og meistaranám í París Ása Bríet hefur komið víða að og meðal annars verið búsett í London og París. „Ég útskrifaðist með sveinspróf í kjólasaum frá Tækniskólanum í Reykjavík árið 2016 og hélt þaðan beint áfram í Myndlistaskólann í Reykjavík í grunnnám í textíl.“ Hún fluttist síðan til London árið 2019 og lagði stund á fatahönnun við Central Saint Martins. „Ég útskrifaðist þaðan árið 2023 með BA í kvennafatnaði eða Womenswear. Í dag stunda ég meistaranám í fatahönnun með sérhæfingu í prjóni í París við Institut Français de la Mode. Ég hef aflað mér framúrskarandi tæknilegrar og skapandi þekkingar á ólíku handverki til þess að dýpka þekkingu mína í því fagi sem ég hef ástríðu fyrir, fatahönnun. Á HönnunarMars er ég svo að taka þátt í samsýningu í samstarfi með Landsbankanum ásamt sex öðrum hæfileikaríkum og upprennandi fatahönnuðum.“ Ása Bríet fer einstakar leiðir í hönnun sinni. Aðsend Handverk fortíðarinnar á nýstárlegan máta Ása Bríet kemur til með að sýna tvær flíkur úr útskrifarverkefni sínu frá Central Saint Martins. „Með útskriftarlínu minni er ég að rannsaka handverk fortíðarinnar og koma henni í nútíð þar sem ég nálgast aðferðir í textíl- og í sníðagerð á nýstárlegan máta. Markmið mitt er að geta fært reynsluna mína inn í framtíðina með von um betri og sjálfbærari leiðir til að búa til klæðnað. Það eru gæði í þeim tímaleysishreyfingum sem handverkið gefur manni og ég veiti huganum og umhverfinu athygli.“ Ása Bríet klæðist hér útsaumuðum kjól úr útskrifarlínu sinni.Aðsend Báðar flíkurnar sem Ása Bríet sýnir í Landsbankanum eru skúlptúrar. Innblásturinn sækir hún í gamlar minningar frá Færeyjum. „Amma mín í Færeyjum er með rosalega fallegan blómagarð, ég á þessa minningu um að koma heim seint um kvöld þar sem að blómin hurfu öll inn í kolniðamyrkrið. Með fíngerðum svörtum penna byrjaði ég að endurframkalla þessa mynd sem ég sá af garðinum með línuteikningu. Teikningin varð að endalausri línu í formi blóma. Skúlptúrinn er gerður úr bambus prikum sem ég vafði saman með silki og ullarbandi og þræddi saman í sitt form. Ég saumaði svo út hvert einasta blóm með silkiþræði á uppleysanlegt efni.“ View this post on Instagram A post shared by A sa Bri et Brattaberg (@asabrietbratta) Flíkur sem skúlptúrar og gjörningur Önnur flíkin sem verður til sýnis á gjörningi mun fara fram á milli klukkan 17:00 og 19:00 laugardaginn 27. apríl í Landsbankahúsinu. „Það er pils sem er gert úr 500 þráðum. Kljásteinavefstól veitti mér innblástur en frá upphafi vestrænna sögu og fram á miðaldir var sú tegund vefstóla notuð. Þræðirnir eru þræddir í kringum krínólín og festir í leirsteina sem ég handmótaði sjálf. Jakkinn er í formi íslenska skautbúningsins, ofinn í spillilausa (e. zero-waste) vefnaðartækni þar sem ég vef jakkann inn í sitt snið. Efnið er úr silki, rifið niður og ég leyfi vefnaði efnisins að losna frá uppistöðu sinni.“ Sömuleiðis verður Ása Bríet með flíkur úr útskrifarlínu sinni til sýnis á samsýningunni Innsýni sem er haldin í Reykjastræti 6 á Hafnartorgi. „Ég er ótrúlega spennt að koma til landsins og fá að sýna handverkið mitt á HönnunarMars. Einnig er ég mjög spennt að hitta og kynnast hinum hönnuðunum sem munu sýna með mér. Við komum öll úr mismunandi áttum og með ólíka nálgun á fatahönnun sem verður mjög gaman að sjá saman á sýningu.“ HönnunarMars hefst næstkomandi miðvikudag en hér má nálgast dagskrána í heild sinni.
HönnunarMars Tíska og hönnun Íslendingar erlendis Tengdar fréttir „Smá hávær án hávaða, smá sexí á óvæntan hátt“ Klæðskerinn, textílhönnuðurinn og fatahönnuðurinn Ása Bríet Brattaberg lærði fatahönnun í virta listaháskólanum Central Saint Martins í London og er nú nýflutt til Parísar þar sem hún stundar mastersnám í fatahönnun með sérþekkingu í prjóni. Ása Bríet hefur komið víða að í tískuheiminum en hún er viðmælandi í Tískutali. 4. nóvember 2023 11:31 Mest lesið Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Lífið Eins og í tannlæknastól án deyfingar: Dauðar laglínur á Myrkum músíkdögum Gagnrýni Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Lífið Bati hjálpar öðrum: „Hann var með geðsjúkdóm og leiddist út í fíkn“ Áskorun Laufey gæti orðið tvöfaldur Grammy-verðlaunahafi í nótt Lífið Kynlíf á ekki að vera vont Lífið Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Lífið Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Lífið Krakkatían: Gott kvöld, handboltinn og Tene Lífið Ellefu milljónir fyrir óskrifaða óperu Menning Fleiri fréttir „Með rauf á rassi ef mér verður brátt í brók“ Þetta eru drottningar tískuvikunnar í París Klæðist því sem eykur sjálfstraustið Robyn í hönnun Sólar Hansdóttur Skilnaðarhringir slá í gegn: „Ég set minn á löngutöng“ „Ég fékk alveg gæsahúð þegar ég sá þetta“ Kjólasaga Brooklyns loðin Valentino er allur Ein heitasta stjarna í heimi Hailey Bieber slær í gegn á þvengnum „Eins nakin og ég kemst upp með“ Sjá meira
„Smá hávær án hávaða, smá sexí á óvæntan hátt“ Klæðskerinn, textílhönnuðurinn og fatahönnuðurinn Ása Bríet Brattaberg lærði fatahönnun í virta listaháskólanum Central Saint Martins í London og er nú nýflutt til Parísar þar sem hún stundar mastersnám í fatahönnun með sérþekkingu í prjóni. Ása Bríet hefur komið víða að í tískuheiminum en hún er viðmælandi í Tískutali. 4. nóvember 2023 11:31