Féllu á lyfjaprófi skömmu áður en þau unnu til verðlauna á Ólympíuleikunum Ágúst Orri Arnarson skrifar 20. apríl 2024 22:01 Sundliðið fór sex sinnum á verðlaunapall á leikunum, og vann þar af til þrenna gullverðlauna. Tim Clayton/Corbis via Getty Images 23 sundkappar af 30 manna sundliði Kína féllu á lyfjaprófi sjö mánuðum fyrir Ólympíuleikana í Tókýó árið 2021. Lyfjaeftirlit Kína sagði ólöglega efnið hafa smitast til keppenda sem innbyrtu það óviljandi. Alþjóðalyfjaeftirlitið, WADA, samþykkti þá niðurstöðu eftir sjálfstæða rannsókn og aðhafðist ekki frekar.
New York Times greindi fyrst frá málinu í samvinnu við þýska fjölmiðilinn ARD. Öll greindust þau jákvæð fyrir hjartalyfinu trimetazidine (TMZ) í æfingabúðum fyrir leikana. Efnið eykur blóðflæði og hjálpar við að minnka sveiflur í blóðþrýstingi. Það hefur verið á bannlista síðan árið 2014. Lyfjaeftirlitsstofnun landsins (Chinada) úrskurðaði að efnið hafi smitast til sundfólksins, það hafi ekki vitandi eða viljandi innbyrt efnið og því var þeim ekki refsað. Alþjóðalyfjaeftirlitsstofnunin (World Anti-Doping Agency, WADA), staðfesti við BBC að stofnunin hafi verið meðvituð um ákvörðun kínverska lyfjaeftirlitsins í júní 2021, mánuði áður en leikarnir hófust. WADA sagðist hafa rannsakað málið vandlega og ráðfært sig við utanaðkomandi aðila. Að endingu var niðurstaðan sú að WADA gat ekki afsannað kenningu Chinada um óviljandi smit og engin leið var að sanna að sundfólkið hafi viljandi innbyrt efnið. Alþjóðasundsambandið World Aquatics (þá þekkt sem FINA), var einnig gert meðvitað um málið í júní 2021. Sambandið sagðist fullvisst um að rannsókn málsins hafi farið fram með viðunandi hætti og véfengdi ekki niðurstöðu þess. Rökstuðningur Kínverja byggði á því að ekki nema snefilsmagn hafi fundist í sundfólkinu, prófin voru tekin daglega yfir nokkra daga og einstaklingar skiptu milli þess að greinast jákvæð/neikvæð. Því væri ekki hægt að álykta misnotkun eða greinanlegan ábata af notkun lyfjanna. TMZ lyfjamál á undanförnum árum Lyfið TMZ er náskylt hjartalyfinu Meldonium, sem rússneskir keppendur misnotuðu á Vetrarólympíuleikunum í Pyeongchang árið 2018. Sama lyf og felldi tenniskonuna Mariu Sharapova. TMZ fannst í blóði hinnar 17 ára gömlu Kamila Valieva. Valieva er rússneskur listskautari. Valieva bar fyrir sig svipaða vörn og kínverska sundliðið um óviljandi innbyrslu með smiti. Valieva hélt því fram að hún hefði óvart innbyrt hjartalyfið þegar hún borðaði jarðarberjaeftirrétt sem var undirbúinn á sama skurðarbretti og afi hennar notaði til að mylja töflurnar. Einnig hefði hún notað sama glas og afinn notaði til að leysa upp pillurnar. Hún var bæði Evrópu- og Ólympíumeistari í greininni en féll á lyfjaprófi þann 25. desember 2021 og var í janúar á þessu ári dæmd í fjögurra ára keppnisbann. Kínverski sundkappinn og Ólympíumeistarinn Sun Yang tók út þriggja mánaða keppnisbann árið 2014 eftir að TMZ fannst á lyfjaprófi hans. Hann tekur nú út fjögurra ára og þriggja mánaða bann, stytt eftir upphaflega átta ára dóm, eftir að hafa fallið á lyfjaprófi í annað sinn árið 2021.
Sund Ólympíuleikar 2020 í Tókýó Lyf Lyfjamisferli Rússa Kína Ólympíuleikar Tengdar fréttir Neitaði að deila verðlaunapallinum með „svindlara“ á HM í sundi Ástralski sundkappinn Mack Horton vann silfurverðlaun á HM í sundi í Gwangju í Suður-Kóreu en steig samt aldrei upp á verðlaunapallinn. 23. júlí 2019 11:30 Keppinautur Hrafnhildar féll á lyfjaprófi Fjórfaldur heimsmeistari notaði sama lyf og Mara Sharapova. Vann gull eftir keppni við Hrafnhildi Lúthersdóttur á HM síðasta sumar. 17. mars 2016 11:34 Mest lesið Laugavegshlaupið í beinni útsendingu á Vísi Sport Hvaðan koma peningarnir sem Tottenham er að eyða? Fótbolti Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM Handbolti „Hrædd um að við séum að dragast aftur úr“ Fótbolti „Nýtti reynsluna úr vindinum heima til að halda þolinmæði“ Golf Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Íslenski boltinn Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Körfubolti Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Körfubolti Segir hitann á HM hættulegan Fótbolti Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Fleiri fréttir Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Diljá Ýr búin að semja við Brann Laugavegshlaupið í beinni útsendingu á Vísi Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Hvaðan koma peningarnir sem Tottenham er að eyða? „Nýtti reynsluna úr vindinum heima til að halda þolinmæði“ Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Dagskráin í dag: Meira, meira golf Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM „Hrædd um að við séum að dragast aftur úr“ Óttar Magnús færir sig um set á Ítalíu Topplið ÍR tapaði þremur mikilvægum stigum Kærkominn endurkomusigur Grindvíkinga Liverpool leggur númerið hans Jota á hilluna að eilífu Segir hitann á HM hættulegan Belgar kveðja EM með sigri Spánn áfram með fullt hús stiga Djokovic varð að játa sig sigraðan Giorgi Dikhaminjia aftur til Íslands Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Lárus Orri byrjaður að bæta við sig Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Crystal Palace fær ekki að spila í Evrópudeildinni Alcaraz í úrslit Wimbledon þriðja árið í röð Tók fjóra daga þegar hún var tíu ára en getur nú unnið fimmta árið í röð Ragnhildur fyrst Íslendinga til að vinna LET Access mót Forest íhugar lögsókn gegn Tottenham Krabbameinslyf felldi fótboltamann á lyfjaprófi Þorsteinn Gauti semur við Sandefjord Sjá meira
Neitaði að deila verðlaunapallinum með „svindlara“ á HM í sundi Ástralski sundkappinn Mack Horton vann silfurverðlaun á HM í sundi í Gwangju í Suður-Kóreu en steig samt aldrei upp á verðlaunapallinn. 23. júlí 2019 11:30
Keppinautur Hrafnhildar féll á lyfjaprófi Fjórfaldur heimsmeistari notaði sama lyf og Mara Sharapova. Vann gull eftir keppni við Hrafnhildi Lúthersdóttur á HM síðasta sumar. 17. mars 2016 11:34