Guðni fékk glæsilegar móttökur í Georgíu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. mars 2024 14:48 Forsetarnir við móttökuna í morgun. Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands er mættur til Georgíu þar sem hann fékk höfðinglegar móttökur í Tbilisi frá Salome Zourabichvili forseta Georgíu.
Þetta er fyrsta heimsókn af því tagi til Georgíu og er henni ætlað að efla tengsl þjóðanna, meðal annars með aukinni samvinnu á sviði loftslagsmála og grænna lausna. Auk tvíhliða funda með stjórnvöldum verður efnt til viðskiptaþings og vatnsaflsvirkjun Landsvirkjunar og Verkís heimsótt. Einnig mun forseti flytja aðalerindi á alþjóðlegri ráðstefnu og fyrirlestur við Tbilisi-háskóla. Að neðan má sjá frá móttökunni þar sem íslenski þjóðsöngurinn var meðal annars spilaður af lúðrasveit. Með forseta í för eru Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis- orku og loftslagsráðherra, Nótt Thorberg, forstöðumaður Grænvangs, og sendinefnd fulltrúa úr viðskiptalífinu sem hyggjast kanna möguleika á auknu samstarfi við uppbyggingu endurnýjanlegrar orku m.a á sviði beinnar nýtingar jarðvarma, vatnsaflsvirkjana og fjárfestinga í loftslagslausnum. Viðskiptasendinefndin fer undir merkjum Green by Iceland, markaðsverkefnis Grænvangs og Íslandsstofu sem miðar að því að auka vitund um sjálfbæra nýtingu auðlinda á Íslandi og kynna íslenskar, grænar lausnir á erlendum mörkuðum. Í viðskiptasendinefnd forseta Íslands til Georgíu verða fulltrúar frá eftirfarandi fyrirtækjum og stofnunum: Creditinfo Group, Hafþórsstaðir, Landsvirkjun, Infrastructure Investments, Íslenski orkuklasinn, ÍSOR, MAR Advisors, Verkís og Snorrastofa. Í sendinefndinni er einnig Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu, vegna fyrirhugaðs samstarfsverkefnis við norrænudeild Tbilisi-háskóla. Heimsóknin hófst í morgun með formlegri móttökuathöfn í höfuðborginni Tbilisi þar sem forseti lagði blómsveig að minnisvarða um fallnar þjóðhetjur. Forseti fundaði með Salome Zourabichvili, forseta Georgíu, sem býður til hátíðarkvöldverðar honum til heiðurs. Einnig munu forseti, ráðherra og viðskiptasendinefnd heimsækja tvö fyrirtæki sem eiga íslenska samstarfsaðila og hafa viðskiptatengsl við Ísland. Á miðvikudag verður efnt til viðskiptaþings þar sem fulltrúar úr georgíska og íslenska orkugeiranum ráða ráðum sínum. Guðlaugur Þór, umhverfis- orku- og loftslagsmálaráðherra, leiðir viðburðinn ásamt Levan Davitashvili, efnahags- og sjálfbærniráðherra Georgíu, en forseti flytur opnunarávarp. Síðar sama dag á Guðlaugur Þór tvíhliða fundi með efnahagsráðherra og Otar Shamugia, umhverfis- og landbúnaðarráðherra Georgíu. Forseti fer einnig í vettvangsferð að stjórnsýslumörkum Suður-Ossetíu, georgísks héraðs þar sem Rússar hafa haft hernámslið allt frá innrás sinni í Georgíu árið 2008. Þar verður forseta kynnt staða mannúðarmála á hernumdu svæðunum. Að því loknu verður haldið aftur til Tbilisi þar sem forseti og ráðherra eiga tvíhliða fundi með Shalva Papuashvili, forseta þjóðþings Georgíu, og Irakli Kobakhidze, forsætisráðherra landsins. Síðdegis heldur forseti í Tbilisi-háskóla þar sem Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu, fylgir honum á fund rektors og forstöðumanns norrænudeildar háskólans. Forseti heldur einnig opinn fyrirlestur við háskólann: „The power and pitfalls of patriotism in a globalized world.“ Fimmtudagurinn hefst á öryggis- og varnarmálaráðstefnu þar sem forseti flytur aðalerindið, „Small states and big impact: Iceland on the international scene“. Að því loknu heldur hann ásamt ráðherra og viðskiptasendinefnd til héraðsins Samtskhe–Javakheti þar sem vatnsaflsstöðin Akhalkalaki verður skoðuð. Stöðin er að hluta í eigu Verkís og Landsvirkjun Power, dótturfélags Landsvirkjunar, og hóf starfsemi í nóvember 2022. Tilgangur Landsvirkjunar Power er að flytja út sérþekkingu Íslendinga á sviði endurnýjanlegrar orkuvinnslu og stuðla þannig að orkuskiptum erlendis. Opinberri heimsókn forseta og sendinefndar til Georgíu lýkur að kvöldi fimmtudagsins 7. mars.
Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson Georgía Íslendingar erlendis Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Fleiri fréttir „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Sjá meira