Viðskipti innlent

Starfs­skil­yrði versna og skýr merki um sam­drátt

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI.
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI. Vísir/Vilhelm

Gjaldþrotum starfandi fyrirtækja fjölgaði verulega á milli ára og í byggingariðnaði voru þau þrefalt fleiri í fyrra en árið á undan. Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir starfsskilyrði í greininni hafa versnað mikið og skýr merki um samdrátt í íbúðauppbyggingu.

Í fyrra voru 406 fyrirtæki sem höfðu verið með starfsemi á árinu tekin til gjaldþrotaskipta samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Þau voru 153 árið áður og fjölgunin nemur því 165 prósentum. Í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð voru gjaldþrotin eitt hundrað og fimmtíu, eða þrefalt fleiri en á fyrra ári.

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir tölurnar ekki koma á óvart.

„Vegna þess að starfsskilyrðin hafa breyst mjög mikið til hins verra. Þegar kemur að íbúðauppbyggingu hefur sölutími eigna lengst og á sama tíma hafa vextir hækkað þannig að fjármagnskostnaður er orðinn býsna íþyngjandi. Það kemur ofan í skyndilegar skattahækkanir á greinina um mitt síðasta ár þegar endurgreiðsla vegna virðisaukaskatts lækkaði úr sextíu prósentum og niður í þrjátíu og fimm,“ segir Sigurður.

Slegist um hverja lóð

Gjaldþrotin höfðu áhrif á mun fleiri launamenn í fyrra en árið áður en Sigurður gerir ráð fyrir að þau séu helst meðal minni fyrirtækja. Hann segir áfram mikla eftirspurn hvað varðar uppbyggingu sem annars vegar tengist hótelum og atvinnustarfsemi og hins vegar hjá hinu opinbera. Skýr merki séu hins vegar um samdrátt í íbúðauppbyggingu.

„Til viðbótar við háan fjármagnskostnað hefur lóðaframboð verið lítið. Það er slegist um hverja einustu lóð sem losnar og verðið hefur farið hækkandi þannig allt vinnur þetta saman að verri skilyrðum,“ segir Sigurður.

„Og höfum þess vegna talað mjög mikið fyrir því að sveitarfélög auki við sitt lóðaframboð og hagi skipulagi þannig að það flýti fyrir uppbyggingu og eins að ríkið hugsi sinn gang varðandi skattamálin og taki til baka þessa skattahækkun sem við sáum í fyrra.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×