Á næstu mánuðum munu um níutíu þúsund hermenn NATO og Svíþjóðar taka þátt í umfangsmiklum heræfingum sem ætlað er að líkja eftir innrás svipað öflugra aðila inn í aðildarríki. Síðasta heræfing NATO af svipaðri stærðargráðu fór fram árið 1988, þegar 125 þúsund hermenn æfðu viðbrögð við innrás Sovétríkjanna.
Við æfingarnar verður notast við rúmlega fimmtíu herskip, allt frá flugmóðurskipum niður í tundurspilla og kafbáta. Þá verða notaðar fleiri en áttatíu herþotur, þyrlur og drónar og minnst 1.100 skriðd- og bryndrekar.
Sjá einnig: Stærstu heræfingar NATO í áratugi
Markmiðið er að sýna að bandalagið getur varið öll aðildarríki. Samkvæmt nýjum varnaráætlunum NATO eru helstu andstæðingar samtakanna Rússland og hryðjuverkasamtök. Rússar eru þó hvergi nefndir á nafn í yfirlýsingum NATO.
Segir markmiðið að skrímslavæða Rússland
Í frétt RIA fréttaveitunnar, sem er í eigu rússneska ríkisins, er haft eftir Grushko að Rússar hefi getu til að verja sig og þeim verði ekki ógnað með svo umfangsmiklum heræfingum.

Þá marki æfingarnar endanlega það að NATO hafi aftur snúið sér að Rússlandi. Markmiðið sé að skrímslavæða Rússland og ógna íbúum Evrópu til að réttlæta aukin fjárútlát til varnarmála, hergagnaframleiðslu og stuðning við Úkraínu, vegna innrásar Rússa.
Sjá einnig: Viðræðurnar snerust um uppgjöf, ekki frið
Til stendur að auka fjárútlát til varnarmála víða í Evrópu í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. Ráðamenn heimsálfunnar hafa lengi þótt vanrækja vopnabúr sín og hafa þessi fjárútlát dregist verulega saman frá tímum kalda stríðsins.
Rússar hafa gefið margar ástæður fyrir innrásinni sem flestar halda litlu vatni og ber innrásin öll merki landvinningastríðs. Ráðamenn í Rússlandi hafa til að mynda ítrekað haldið því ranglega fram að Nasistar fari með völd í Úkraínu og markmiði sé að afnasistavæða Úkraínu.
Tónninn hefur þó breyst að nokkru leyti samhliða slæmu gengi Rússa í Úkraínu og þá sérstaklega í ríkismiðlum í Rússlandi. Þar eru Rússar sagðir berjast fyrir tilvist Rússlands gegn sameinuðum herafla Atlantshafsbandalagsins en Rússar hafa meðal annars sagt að NATO beri ábyrgð á innrás þeirra í Úkraínu.
Valdirmír Pútín, forseti Rússlands, hefur sagt að Úkraína sé ekki raunverulegt ríki og eigi ekki tilvistarrétt. Hann hefur einnig sagt að það hafi verið stór mistök að aðskilja Úkraínu frá Rússlandi við fall Sovétríkjanna.
Varaði við árás á næstu fimm til átta árum
Í Evrópu hafa ráðamenn áhyggjur af því að beri Rússar á endanum sigur úr býtum í Úkraínu, muni þeir byggja herafla sinn upp að nýju á nokkrum árum og í kjölfarið ógna öðrum ríkjum. Þar efst á lista eru Eystrasaltsríkin, sem eru í NATO.
Æfingar Steadfast Defender 24 munu meðal annars fara þar fram.
Boris Pistorius, varnarmálaráðherra Þýskalands, varaði við því í viðtali sem birt var á dögunum að Rússar gætu ráðist á NATO á næstu fimm til átta árum.

Pútín lýsti því yfir nýverið að ríkisstjórnir Eystrasaltsríkjanna væru að reka rússneskættað fólk úr landi. Sagði hann það hafa áhrif á öryggi Rússlands.
Samkvæmt frétt Ríkisútvarps Litháens var hann líklega að vísa til nýrra reglna í Lettlandi um að rússneskir ríkisborgarar sem vilji búa eða vinna þar í landi þurfi að standast próf í lettnesku.
Þá var tilkynnt í desember að um 1.200 rússneskum ríkisborgurum yrði vísað úr landi, því þau hefði ekki sótt um endurnýjun á dvalarleyfi fyrir frest í samræmi við nýju reglurnar.
Ráðamenn Litháens, Lettlands og Eistlands, lýstu því yfir á föstudaginn að þeir hefðu komist að samkomulagi um að byggja upp varnir á landamærum ríkjanna og Rússlands og Belarús. Er það vegna aukinna áhyggja í ríkjunum af mögulegum átökum við Rússa í framtíðinni.
Samkomulagið er sagt fela í sér byggingu sex hundruð neðanjarðarbyrgja og annarra varnarvirkja, auk þess sem ríkin myndu auka sameiginlega getu sína þegar kemur að stórskotaliði og auka varnir sínar að öðru leyti.