Skoðun

5 ráð til að setja þér mark­mið

Jón Jósafat Björnsson skrifar

Hvernig viltu að árið verði? Hvaða markmiðum viltu ná? Hvað myndi gera árið skemmtilegt og árangursríkt?

Hér eru fimm atriði sem gott er að hafa í huga þegar þú setur þér markmið.

  1. Hugsaðu um gildin. Það er mikilvægt að markmiðin séu í takti við gildin þín eða a.m.k. fari ekki gegn þeim. Gefðu þér nokkrar mínútur í að hugleiða gildin þín áður en þú byrjar.
  2. Jafnvægi. Það er freistandi að setja sér bara eitt markmið á árinu og ná því. Vandinn við að einblína á eitt svið er að við gætum vanrækt önnur mikilvæg. Algeng svið til að setja sér markmið á eru t.d. heilsa, atvinna eða skóli, vinir, fjölskylda, fjárhagur, samfélagsmál og einkalíf.
  3. Notaðu SMART formúluna (Sértækt, Mælanlegt, Aðlaðandi, Raunhæft og Tímasett). Hafðu markmiðið sértækt. Ef þú ætlar t.d. að hreyfa þig ákveddu þig þá hvernig. Til að meta árangur þurfa markmið að vera mælanleg sb. mínútur á dag eða ákveðin vegalengd osfrv. Það er líka mikilvægt að setja sér aðlaðandi markmið. Markmið sem þú vilt ná en ert ekki að gera fyrir einhvern annan. Við þurfum svo líka að vera raunhæf. Það væri vissulega gaman að komast á Ólympíuleikana í sumar en kannski er raunhæfara fyrir okkur flest að setja markið aðeins neðar. Að lokum þurfum við svo að ákveða tímamörkin og ákveða dagsetningu. Það er gott að skrifa markmiðin niður, það eykur líkurnar á að við náum þeim um 40%, og stundum er gott að segja öðrum frá þeim. Það eykur skuldbindingu okkar.
  4. Hugaðu að tímarammanum. Mörgum okkar hættir til að hugsa stutt fram í tímann og oft setjum við okkur markmið í upphafi árs sem tengjast janúar eða febrúar. Við ættum að hafa hæfilega blöndu af skammtíma- og langtímamarkmiðum. Að hugsa nokkur ár fram í tímann hjálpar okkur að sjá hvaða skammtímamarkmið styðja við framtíðarsýnina okkar.
  5. Verðlaunum okkur. Við þurfum hvatningu til að ná markmiðum okkar. Um leið og markmið geta aukið metnað okkar og lífsfyllingu eiga þau líka að vera skemmtileg. Það er enginn kvóti á sjálfshvatningu og verðlaunum. Fögnum hverri framför og höldum upp á áfangasigra. Njótum ferðalagsins.

Höfundur er framkvæmdastjóri Dale Carnegie.




Skoðun

Sjá meira


×