Aðhafast ekki í prentvélarmáli en segja einokunarstöðu komna upp Vésteinn Örn Pétursson skrifar 22. desember 2023 17:38 Málið snýr að kaupum Landsprents á prentvél og fleiri eignum úr þrotabúi Torgs, sem gaf út Fréttablaðið. Vísir/Arnar Samkeppniseftirlitið hefur undanfarið haft til skoðunar kaup félagsins Landsprents á prentvél og fleiru út úr þrotabúi Torgs ehf., sem gaf út Fréttablaðið. Með kaupunum myndi samkeppni í dagblaðaprenti leggjast af, að því leyti sem brotthvarf slíkrar samkeppni verður rakið til kaupanna.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Samkeppniseftirlitsins. Þar segir að áður en skoðun Samkeppniseftirlitsins hófst hafi Landsprent verið upplýst um frummat eftirlitsins í bréfi í september. Þar hafi komið fram að kaupin væru sennilega tilkynningaskyld viðskipti á grundvelli samrunareglna samkeppnislaga og fjölmiðlalaga. Að mati eftirlitsins féllu kaupin undir samruna þegar yfirteknar eignir eru seldar úr þrotabúum fyrirtækja, sér í lagi þar sem um hafi verið að ræða mikilvægar eignir með tilliti til eðli starfsemi fyrirtækisins. Í nóvember hafi eftirlitinu borist samrunatilkynning frá Landsprenti, auk undanþágubeiðni til að fá að framkvæma samrunann. Það hafi eftirlitið ekki fallist á. Landsprent hafi þá borið fyrir sig að skilyrði um fyrirtæki á fallandi fæti væru uppfyllt. „Í rannsókn sinni gaf Samkeppniseftirlitið aðilum á markaði færi á að tjá sig um samrunann auk þess sem óskað var eftir svörum við spurningum tengdu söluferli þrotabúsins. Rannsókn eftirlitsins leiddi í ljós að tilboð Landsprents væri eina raunhæfa tilboðið og að í ljósi samrunaskrár, fylgigagna auk umsagna aðila væri það mat eftirlitsins að skilyrði undanþágunnar um fyrirtæki á fallandi fæti væru uppfyllt. Vegna þessa telur Samkeppniseftirlitið ekki forsendur til þess að hafast frekar að í tengslum við þennan samruna, hvorki á grundvelli samrunaákvæða samkeppnislaga, né ákvæða fjölmiðlalaga. Samkeppniseftirlitið mun birta ítarlegri ákvörðun með umfjöllun um málið og rannsóknina síðar,“ segir í tilkynningunni. Vélin sennilega ónýt Við rannsókn málsins hafi Samkeppniseftirlitið fengið ábendingar þess efnis að vélin hafi verið tekin niður og jafnvel eyðilögð. Við skoðun á vélinni hafi komið í ljós að búið væri að fjarlægja umfangsmiklar rafmagnstöflur og raflagnir, sem að sögn eins umsagnaraðila hafi gert það að verkum að vélin væri sennilega ónýt. „Að mati Samkeppniseftirlitsins er tilefni til þess að skoða hvort um sé að ræða brot á skyldu til þess að tilkynna samruna og banni við að framkvæma samrunann á meðan hann er til rannsóknar (e. gun-jumping) en Samkeppniseftirlitið hefur heimild til að leggja á stjórnvaldssekt á þau fyrirtæki sem brjóta gegn banni við að samruni komi til framkvæmda.“ Einokunarstaða komin upp Í tilkynningunni kemur fram að þó eftirlitið telji ekki forsendur til íhlutunar í málinu vegna kaupa Landsprents á prentvélinni sé ljóst að uppi verði einokunarstaða á markaði fyrir prentun á prentmiðlum hér á landi, í kjölfar brotthvarfs vélarinnar af markaði. Landsprent búi nú yfir einu dagblaðaprentvél landsins. Þótt annars konar vélar séu til staðar hér á landi hafi prentun á einföldu prentverki talist til sérstaks markaðar, meðal annars vegna aðferða, afkastagetu og hærri prentkostnaðar. „Þá er Árvakur, eigandi Landsprents og útgefandi Morgunblaðsins, enn fremur með mjög sterka stöðu í dreifingu prentmiðla í gegnum eignarhald á Póstdreifingu ehf.“ Komið geti til frekari rannsókna Í tilkynningunni kemur fram að með ákvörðum eftirlitsins frá árinu 2019 hafi aðilar málsins undirgengist skilyrði sem ætlað væri að vinna gegn samkeppnishindrunum sem annars myndu leiða af samrunanum, meðal annars á markaði fyrir dreifingu prentmiðla. Við rannsókn málsins hafi komið fram ábendingar varðandi umrædd skilyrði, þess efnis að þau virki ekki sem skyldi og að þau hafi ekki verið virt. „Eins og áður greinir hefur Samkeppniseftirlitið ekki forsendur til þess að grípa til íhlutunar í fyrrgreindu samrunamáli vegna mögulegra skaðlegra áhrifa samrunans, sökum þess að sjónarmið um fyrirtæki á fallandi fæti eiga við í málinu. Hins vegar getur komið til frekari rannsókna sem miða að því að vernda samkeppni á mörkuðum fyrir prentun, dreifingu og útgáfu prentmiðla á grundvelli annarra ákvæða samkeppnislaga og fjölmiðlalaga, sbr. áðurnefnda kvörtun og ábendingar. Kann þetta að vera nauðsynlegt í ljósi þess að útgáfufélag Morgunblaðsins ræður jafnframt yfir prentun og dreifingu prentmiðla og sú þjónusta er forsenda þess að aðrir keppinautar geti komist inn á markaðinn fyrir útgáfu prentmiðla og vaxið við hlið stærri keppinautar,“ segir í niðurlagi ákvörðunarinnar.
Samkeppnismál Endalok Fréttablaðsins Mest lesið Play er gjaldþrota Viðskipti innlent Engin ást eftir milli flugmanna og stjórnenda Viðskipti innlent Þetta eru réttindi þeirra sem eiga bókað með Play Neytendur Koma fólkinu heim með fimmtán milljóna króna leiguflugi Viðskipti innlent Fargjöld ekki hækkuð af ásettu ráði Viðskipti innlent Kveðjubréf Einars forstjóra til starfsfólks Viðskipti innlent Sömu miðarnir kosti nú 370 þúsund Viðskipti innlent Farþegar Play í Keflavík klóra sér í kollinum Viðskipti innlent Loka Kristjánsbakaríi Viðskipti innlent „Við erum ekki með öll eggin í sömu körfu“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Play kvartaði undan Icelandair þremur vikum fyrir gjaldþrot Loka Kristjánsbakaríi Hætta rekstri tveggja skipa í hagræðingarskyni Engin ást eftir milli flugmanna og stjórnenda Sömu miðarnir kosti nú 370 þúsund Koma fólkinu heim með fimmtán milljóna króna leiguflugi Fargjöld ekki hækkuð af ásettu ráði Samgöngustofa fundaði nýlega með Play og fékk gögn frá KPMG „Við erum ekki með öll eggin í sömu körfu“ „Hver fyrir sig hvað það varðar“ Farþegar Play í Keflavík klóra sér í kollinum Ráðin sölu- og markaðsstjóri hjá Alfreð Kveðjubréf Einars forstjóra til starfsfólks Play er gjaldþrota Bein útsending: Staða aðfluttra á húsnæðismarkaði Spennandi tími til að opna nýjan fjölmiðill Lífsverk og Almenni lífeyrissjóðurinn í eina sæng Lagning gjaldþrota Fyrrverandi bankastjóri nýr forstjóri Thor landeldis Edda María leiðir stafræna markaðsþjónustu Vettvangs Uppsagnir hjá Fjársýslunni Guðný ráðin fræðslustjóri og Kristófer Orri í gjaldeyrismiðlun Kostaði tvo milljarða að selja Íslandsbanka Verðbólgan 4,1% og fer upp á milli mánaða Bein útsending: Framsýn forysta Opnar stað í anda Kaffi Vest í Fossvoginum Neyslan mikil og sjá ekki að stýrivextir fari hratt lækkandi Sexfölduðu veltuna á einu ári Gjaldeyrisforðinn nálægt billjón króna Rúna nýr innkaupastjóri Banana Sjá meira