Nú má heita Strympa Árni Sæberg skrifar 7. desember 2023 15:17 Strympa er persóna í Strumpunum, og nýtt íslenskt eiginnafn. Mike Windle/Getty Mannanafnanefnd hefur birt fjölda úrskurða um mannanöfn sem kveðnir voru upp í gær. Meðal nafna sem voru samþykkt eru Strympa, Doddi og Íviðja. Kvenmannsnöfnunum Talia og Leah var hins vegar hafnað.
Á vef Mannanafnanefndar má sjá úrskurði um fjórtán beiðnir um eiginnöfn sem kveðnir voru upp í gær. Aðeins tveimur beiðnum, um nöfnin Talia og Leah, var hafnað. Nafninu Leah hefur ítrekað verið hafnað á þeim grunni að það sé ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem ekki sé ritað h í lok orða í íslensku. Nú taldi nefndin að hefð hefði ekki myndast um ritháttinn. Sömu sögu er að segja af rithættinum Talia af nafninu Talía. Apel, Armand og Pálma samþykkt Nefndin samþykkti tólf beiðnir um eiginnöfn. Karlmannsnöfnin Armand, Doddi og Óri voru samþykkt. Kvenmannsnöfnin Gjöll, Íviðja, Octavia, Olivía, Pálma, Strympa, Værð og Þyra voru samþykkt. Þá var eiginnafnið Apel samþykkt og nafnið fært á mannanafnaskrá yfir kynhlutlaus nöfn. Í úrskurði um eiginnafnið Strympa kom til álita hvort nafnið gæti orðið nafnbera til ama, en það mega eiginnöfn ekki samkvæmt lögum um mannanöfn. Strympa látið njóta vafans þrátt fyrir að vera uppnefni Þar segir að um Strympu sé fjallað í nafnfræðipistli Hallgríms Ámundasonar á vef Árnastofnunar 20. júní 2018. Samkvæmt pistlinum honum sé Strympa Grýluheiti, eða skessunafn og merki skass eða gróf kona. Nafnið geti samkvæmt Þjóðsögum Jóns Árnasonar átt við eitt af börnum Grýlu. Einnig sé Strympa örnefni sem á við nokkur kotbýli, til dæmis í Odda á Rangárvöllum þar sem heytekja af bæjarþekjunni, við strompinn, var til hlunninda. Merking orðsins sem samnefnis sé niðurmjó fata, hús með keilulaga þaki, strýta eða hóll í landslagi eða uppmjó húfa, stromphúfa og orðið skylt orðinu strompur. Sem sérnafn hafi nafnið haft stöðu uppnefnis. Nýleg notkun þess á ofanverðri 20. öld sé í íslenskum þýðingum teiknimyndasagna úr frönsku eftir Belgana Peyo (Pierre Culliford) og Yvan Delporte um ævintýrapersónur sem kallast Strumpar og Strympa sé kvenkyns einstaklingur þeirrar tegundar, þýðing á La Schtroumpfette. Líkt og frægt er orðið talaði Laddi fyrir Strympu í íslenskri talsetningu á teiknimyndunum um Strumpana. Með vísan til tveggja dóma héraðsdóms kvað nefndin upp úrskurð um samþykki beiðni um eiginnafnið Strympa. „Fjarlægur eða óviss möguleiki á því að nafn verði nafnbera til ama er ekki nóg til þess að hafna því. Eiginnafnið Strympa verður því látið njóta vafans.“
Mannanöfn Tengdar fréttir Enya og Garbó fá grænt ljós en ekki Laurasif Mannanafnanefnd birti í dag nýja úrskurði sína þar sem nefnin leggur blessun sína yfir eiginnöfn á borð við Enya, Garbó og Harley. Þó er beiðni um eiginnafnið Laurasif hafnað. 31. október 2023 15:54 Nú má heita Ezra Óbi og Bábó Merkel Mannanafnanefnd birti í dag sautján nýja úrskurði sína þar sem þónokkur mismunandi eignarnöfn voru samþykkt. Þá var þremur beiðnum hafnað. 3. október 2023 13:16 Má ekki heita Annamaría Mannanafnanefnd hefur hafnað beiðni um leyfi til að heita Annamaría að eiginnafni. Nefndin hefur hins vegar samþykkt eiginnöfnin Konstantín, Özur, Aðaley og fleiri. 30. ágúst 2023 13:15 Vaknaði í morgun sem Lára Zulima Ómarsdóttir Fjölmiðlakonan Lára Ómarsdóttir heitir frá og með deginum í gær Lára Zulima Ómarsdóttir. Hún fékk eiginnafnið Zulima samþykkt í gær með úrskurði mannanafnanefndar. 3. október 2023 12:27 Nú má heita Karabaldi en ekki Arora Mannanafnanefnd samþykkti og færði alls ellefu nöfn á mannanafnaskrá í gær. Einu nafni var hafnað. 2. apríl 2023 10:19 Bannað að heita Peran: „Mikill harmur á heimilinu“ Mannanafnanefnd hefur úrskurðað að ekki megi heita Peran að millinafni. Nafnið uppfylli ekki lagaskilyrði. Umsækjandi segir mikinn harm ríkja á heimilinu vegna málsins. 25. febrúar 2023 19:55 Nú má heita Chloé og Gleymmérei Mannanafnanefnd samþykkti og færði alls þrettán nöfn á mannanafnaskrá í gær. Nefndin hafnaði einu nafni. 10. mars 2023 13:36 Mega ekki skíra barnið sitt Kisu Xavier, Æja, Klaría og Hyrrokkin eru á meðal þeirra eiginnafna sem samþykkt voru á fundi mannanafnanefndar fyrr í mánuðinum. 30. janúar 2023 21:22 Mannanafnanefnd gefur grænt ljós á Askalín, Kappa og Jesúdóttur Mannanafnanefnd hefur samþykkt eiginnöfnin Askalín, Þórínu, Miguel, Díon, Sammy, Kappa, Hófí, Hrími, Scott, Sigurboga og Jakey. 13. desember 2022 18:16 Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira
Enya og Garbó fá grænt ljós en ekki Laurasif Mannanafnanefnd birti í dag nýja úrskurði sína þar sem nefnin leggur blessun sína yfir eiginnöfn á borð við Enya, Garbó og Harley. Þó er beiðni um eiginnafnið Laurasif hafnað. 31. október 2023 15:54
Nú má heita Ezra Óbi og Bábó Merkel Mannanafnanefnd birti í dag sautján nýja úrskurði sína þar sem þónokkur mismunandi eignarnöfn voru samþykkt. Þá var þremur beiðnum hafnað. 3. október 2023 13:16
Má ekki heita Annamaría Mannanafnanefnd hefur hafnað beiðni um leyfi til að heita Annamaría að eiginnafni. Nefndin hefur hins vegar samþykkt eiginnöfnin Konstantín, Özur, Aðaley og fleiri. 30. ágúst 2023 13:15
Vaknaði í morgun sem Lára Zulima Ómarsdóttir Fjölmiðlakonan Lára Ómarsdóttir heitir frá og með deginum í gær Lára Zulima Ómarsdóttir. Hún fékk eiginnafnið Zulima samþykkt í gær með úrskurði mannanafnanefndar. 3. október 2023 12:27
Nú má heita Karabaldi en ekki Arora Mannanafnanefnd samþykkti og færði alls ellefu nöfn á mannanafnaskrá í gær. Einu nafni var hafnað. 2. apríl 2023 10:19
Bannað að heita Peran: „Mikill harmur á heimilinu“ Mannanafnanefnd hefur úrskurðað að ekki megi heita Peran að millinafni. Nafnið uppfylli ekki lagaskilyrði. Umsækjandi segir mikinn harm ríkja á heimilinu vegna málsins. 25. febrúar 2023 19:55
Nú má heita Chloé og Gleymmérei Mannanafnanefnd samþykkti og færði alls þrettán nöfn á mannanafnaskrá í gær. Nefndin hafnaði einu nafni. 10. mars 2023 13:36
Mega ekki skíra barnið sitt Kisu Xavier, Æja, Klaría og Hyrrokkin eru á meðal þeirra eiginnafna sem samþykkt voru á fundi mannanafnanefndar fyrr í mánuðinum. 30. janúar 2023 21:22
Mannanafnanefnd gefur grænt ljós á Askalín, Kappa og Jesúdóttur Mannanafnanefnd hefur samþykkt eiginnöfnin Askalín, Þórínu, Miguel, Díon, Sammy, Kappa, Hófí, Hrími, Scott, Sigurboga og Jakey. 13. desember 2022 18:16