Ávinningur samgöngubóta Guðmundur Valur Guðmundsson skrifar 17. nóvember 2023 13:31 Í tengslum við undirbúning samgönguáætlunar hefur Vegagerðin í samstarfi við innviðaráðuneytið unnið að mati á ávinningi og arðsemi þeirra framkvæmda sem tilgreindar eru í tillögu að nýrri samgönguáætlun sem var lögð fram á Alþingi í október síðastliðnum og hefur verið vísað til umhverfis- og samgöngunefndar til umfjöllunar. Við forgangsröðun vegaframkvæmda er að mörgu að hyggja enda þarf að nýta hverja krónu vel. Það er óumdeilt að fjárfestingar í samgöngum eru þjóðhagslega hagkvæmar enda reiða allir Íslendingar sig á að komast örugglega og greiðlega um þjóðvegi landsins til að sækja atvinnu, skóla og til allra annarra erinda. Ekki er einungis nægilegt að byggja nýja vegi heldur verður að halda þeim við og sinna þjónustu við þá eins og kostur er. Vegagerðin og innviðaráðuneytið hafa tekið saman helstu forsendur sem notaðar eru við mat á ávinningi notenda samgöngumannvirkja. Helstu þættir sem er tekið mið af er m.a. sparnaður á tíma vegfarenda, aksturskostnaður ökutækja og aukið umferðaröryggi þar sem lagt er mat á slysakostnað. Aukið umferðaröryggi getur falist í lagfæringu eldri vega með betri veglínu, lagningu bundins slitlags á malarvegi, aðskilnaði akstursstefna, breikkun einbreiðra brúa, lagfæringu vegamóta eða lagfæringu öryggissvæða meðfram vegum svo eitthvað sé nefnt. Reynt er að meta ávinning af þessu m.t.t. færri slysa og óhappa og þannig má leggja mat á minni slysakostnað. Aðrir þættir sem mögulegt er að meta er m.a. losun CO2, meta áhrif lokana vegna ytri aðstæðna s.s. lokana vega vegna vetrarfærðar eða náttúruvár. Þá er lagt til að umferðarhávaði og loftmengun verði metin sérstaklega í tengslum við verkefni í þéttbýli. Forsendurnar taka mið af aðferðafræði sem notuð er á Norðurlöndum og í Evrópu og hafa verið staðfærðar að hluta við íslenskar aðstæður. Nokkrar greiningar fyrir stærri verkefni hafa verið unnin á undanförnum árum og má þar nefna greiningu á Sundabraut frá árinu 2021 sem Mannvit verkfræðistofa vann í samstarfi við COWI í Danmörku og greiningu á jarðgangakostum sem Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri (RHA) vann árið 2022. Aðferðin byggir á því að skoða áhrif framkvæmdarinnar til 40 ára, leggja mat á ávinning m.t.t. ferðatíma, aksturskostnaðar og umferðaröryggis og núvirða með ávöxtunarkröfu 4% sem er í samræmi við aðferðafræði á Norðurlöndum og í Evrópu. Verkefni er þá metið þjóðhagslega hagkvæm framkvæmd ef núvirtur ábati er meiri en kostnaður og ef innri vextir framkvæmdarinnar eru hærri en skilgreind ávöxtunarkrafa sem hér er ákveðin sem 4%. Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri (RHA) vann sérstaka athugun á arðsemi helstu jarðgangakosta sem hafa verið til umræðu undanfarin ár og studdist forgangsröðun jarðgangakosta sem kynnt eru í samgönguáætlun m.a. á þeirri greiningu. Hagfræðistofnun Háskóla Íslands hefur jafnframt unnið að rannsóknaverkefnum sem styrkt hafa verið af Vegagerðinni þar sem m.a. hefur verið reynt er að meta tímavirði og virði tölfræðilegs lífs sem hægt er að nýta í greiningar. Í greiningu RHA á jarðgangakostum var auk arðsemisgreiningar lagt sérstaklega mat á hvern jarðgangakost m.t.t. tengingar svæða og byggðaþróunar. Auknar tengingar svæða koma að einhverju leyti til reiknaðs ávinnings í gegnum aukna umferð sem nýtir fjárfestinguna en stækkun atvinnusvæða og áhrif á atvinnustarfsemi á viðkomandi er erfiðara og flóknara að meta til fjár. Í greinargerð með þingsályktun með samgönguáætlun er gerð sérstaklega grein fyrir arðsemi einstakra verkefna og fjölmörg verkefni tilgreind þar sem núvirtur ábati á 40 ára tímabili reiknast meiri en tvöfaldur kostnaður og má þar nefna nýjan Hringveg um Hornafjarðarfljót sem nú er í framkvæmd, breikkun Reykjanesbrautar milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns þar sem framkvæmdir hófust sumarið 2023, ný leið utan við Borgarnes og færsla Hringvegar Í Öræfasveit frá Morsá að Gljúfurá sem gert er ráð fyrir að hefjist á 2. tímabili samgönguáætlunar 2029-2033 en þar er gert ráð fyrir styttingu Hringvegar um rúmlega 5 km auk þess sem fjórar einbreiðar brýr leggjast af. Stytting vegalengda milli áfangastaða hefur mikinn ávinning og það á ekki síður við eftir því sem orkuskiptum í samgöngum vindur fram. Drægni rafmagnsbíla sem komast þurfa á milli hleðslustöðva og sá tími sem tekur að hlaða hefur áhrif á ferðatíma vegfarenda. Þá er mikilvægt að horfa ekki einungis á Hringveginn heldur einnig aðrar leiðir. Árið 1976 var ferðatími milli Reykjavíkur og Ísafjarðar 13 klst. og vegalengdin 514 km, Í dag er ferðatíminn um 5 klst. og 30 mín. og val á milli tveggja leiða, 409 km um Vestfjarðaveg um Gufudalssveit og Dynjandisheiði og Dýrafjarðargöng og er leiðin að hluta enn á malarvegi, og 455 km um Djúpveg og Steingrímsfjarðarheiði. Dýrafjarðargöng voru stór áfangi í tengingu sunnanverðra og norðanverðra Vestfjarða og þegar framkvæmdum verður lokið við nýjan Vestfjarðarveg um Dynjandisheiði og nýjan Vestfjarðaveg um Gufudalssveit verður ferðatími milli Ísafjarðar og Reykjavíkur orðinn rúmlega 4 klst. og 30 mín. Það er fjarlægt í huga margra sem búa við nútímalegra vegakerfi í öðrum landshlutum að enn þann dag í dag eru stór þéttbýlissvæði á sunnanverðum Vestfjörðum sem þurfa að aka langa malarvegi til að komast leiðar sinnar til að sækja þjónustu út fyrir hérað. Það var táknrænt þegar Vegagerðin hélt kynningarfundi vegna umhverfismats nýs Vestfjarðavegar um Dynjandisheiði í janúar 2020 að þá var ferðatíminn á milli fundarstaða á Bíldudal og á Ísafirði um 6 klst. enda var leiðin um 460 km og lá um Ísafjarðardjúp og Steingrímsfjarðarheiði. Í dag er sú leið rúmlega 120 km og opin flesta daga ársins og ferðatíminn á milli 1,5-2 klst. eftir aðstæðum. Með því að tryggja heilsárssamgöngur milli sunnanverðra og norðanverðra Vestfjarða með Dýrafjarðargöngum og nýjum veg um Dynjandisheiði er verið að breyta möguleikum atvinnulífs og íbúa til að sækja þjónustu og atvinnu sem má teljast vera bylting en það er erfitt að meta hana til fjár. Í samgönguáætlun eru tilgreind fjölmörg verkefni sem tengjast styttingu vegalengda og aukinni greiðfærni, leið framhjá Borgarnesi sem styttir ferðatíma um 4 mínútur, færsla Hringvegar á Holtavörðuheiði sem fækkar bröttum brekkum og hæð fjallvegar lækkar úr yfir 400 m.y.s í 330-340 m, ný veglína Hringvegar í Lóni sem styttir um 2-5 km og í Öræfasveit um 5 km. Þá er möguleikar á öðrum styttingu svo sem með nýjum Hvalfjarðargöngum, færslu Hringvegar í Húnavatnssýslu um Blönduós og í Skagafirði um Varmahlíð. En það er efni í lengri pistil. Áætluð heildarlosun frá vegasamgöngum var metin 825 þús. tonn af CO2 árið 2020. Það er mikilvægt að hafa í huga að margt smátt gerir eitt stórt og 300 m stytting milli Hveragerðis og Selfoss sem tekin var í notkun sumarið 2023 finnst mörgum kannski ekki stór í heildarmyndinni en þegar umferðin er yfir 10 þús. ökutæki á sólarhring sparar það yfir 1 milljón ekna kílómetra á hverju ári sem jafngilda tæplega 2000 tonnum af minni útblæstri á 10 ára tímabili. Í stærri verkefnum þar sem um meiri styttingar er að ræða, þá má horfa á áhrif Sundabrautar á umferð á höfuðborgarsvæðinu, þá eru þau enn stórtækari og áætlað var að með Sundabraut spöruðust í akstri um 150 þús. km á hverjum sólarhring sem jafngildir um 9 þús. tonnum af CO2 á hverju ári og vinnur upp kolefnisáhrif mannvirkja sem byggja þarf vegna Sundabrautar á örfáum árum. Að lokum Fjárfesting í samgöngum hefur frá árinu 2010 verið lág í hlutfalli við verga landsframleiðslu þó svo að tímabundið fjárfestingaátak vegna heimsfaraldurs á árunum 2020-2022 hafi gert töluvert. Unnið er að útfærslu á gjaldtöku á vegakerfinu á vegum innviðaráðuneytis og fjármálaráðuneytis sem vonandi styður við frekari fjárfestingu í samgöngukerfinu enda er ávinningur slíkra fjárfestinga þjóðhagslega hagkvæmur og mikilvægur fyrir alla íbúa landsins og ekki síst atvinnulífið sem reiðir sig á flutninga á vörum á þjóðvegakerfinu milli staða og til útflutnings. Mat á ávinningi og arðsemi getur hins vegar aldrei verið eini mælikvarðinn sem notaður er við forgangsröðun verkefna og geta önnur sjónarmið og markmið haft áhrif á forgangsröðun og er mikilvægt að hafa það í huga, má þar nefna ástand mannvirkja ásamt byggða- og umhverfissjónarmiðum sem eiga við jafnt í dreifbýli sem og þéttbýli. Höfundur er framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vegagerð Samgöngur Alþingi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Mest lesið Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Skoðun Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun