Frumvarp Guðrúnar Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra um breytingar á lögreglulögum til að auka rannsóknarheimildir lögreglu er nú í samráðsgátt stjórnvalda. Jóni Gunnarssyni forvera hennar í embætti tókst ekki að koma svipuðu frumvarpi í gegnum þingið í vor.
Samkvæmt frumvarpinu verður lögreglu veittar auknar rannsóknarheimildir og til eftirlits með almenningi og félagasamtökum ef grunur leikur á að verið sé að undirbúa eða skipuleggja glæpi.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata, vakti athygli dómsmálaráðherra á ítrekuðum athugasemdum ríkissaksóknaraembættisins við að lögreglan hefði ekki farið að lögum varðandi upplýsingar um hleranir og annað eftirlit sem hún hefði heimildir til að gera samkvæmt núgildandi lögum frá árinu 2016.
En ríkissaksóknari ætti samkvæmt gildandi lögum að hafa eftirlit með þessari starfsemi lögreglunnar og gefið henni fyrirmæli um hvernig halda ætti utan um gögn varðandi hleranir. Þessu hefði lögreglan ekki hlítt.

„Hvernig eigum við að gefa lögreglunni frekari heimildir til eftirlits með borgurunum ef hún neitar að verða við því litla eftirliti sem hún á nú þegar að sæta. Hvað ætlar ráðherra að gera í því að lögreglan neitar að undirgangast það litla eftirlit sem hún á að sæta og virðir svona fyrirmæli ríkissaksóknara að vettugi,“ spurði Þórhildur Sunna.
Dómsmálaráðherra svaraði ekki hvernig hún hygðist bregðast við því að lögreglan hefði ekki farið að fyrirmælum embættis ríkissaksóknara og ekki haldið utan um og skráð hverjir hefðu verið hleraðir og hvenær og hvort upptökum hefði verið eytt. Ráðherra sagði hins vegar mikilvægt að lögreglan hefði ekki ein eftirlit með sjálfri sér.
Í væntanlegu frumvarpi væri gert ráð fyrir að komið verði á fót embætti gæðastjóra lögreglunnar og skipuð nefnd um eftirlit með lögreglu.
„Í mínu ráðuneyti tökum við það að sjálfsögðu alvarlega þegar við förum fram á að lögregla fái auknar heimildir til að sinna nauðsynlegum verkefnum sem skipta máli í íslensku samfélagi, sé á sama tíma virkt og öflugt eftirlit með störfum lögreglu. Það erum við að leggja fram með þessu frumvarpi á sama tíma,“ sagði Guðrún Hafsteinsdóttir.