Davíð Helgason og bleikur flamingó mættu til Halla Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 3. nóvember 2023 13:57 Flamengóinn vakti eðli málsins samkvæmt mikla athygli á Önnu Jónu. Veitinga-og skemmtistaðurinn Anna Jóna í Tryggvagötu bauð í gær góðum gestum í heimsókn til að fagna lífinu og kynna allskonar skemmtilegar breytingar, eins og því er lýst í tilkynningu.
Staðurinn er eins og frægt er í eigu Haraldar Þorleifssonar athafnamanns sem nefndi staðinn í höfuðið á móður sinni, Önnu Jónu Jónsdóttur, sem lést þegar hann var einungis 11 ára gamall. Hann hefur áður sagst vilja fylla uppáhalds hús móður sinnar af lífi. Í tilkynningu frá Önnu Jónu segir að stefnan sé sett á að búa til gleðistað þar sem góðar og hressar vinkonur, og vinir hittast og skemmta sér. Þá voru nýir smáréttaseðlar kynntir, helgarbröns og sérstök búbblugleðistund. Glódís Guðgeirsdóttir kippti sér ekki upp við flamengóann. Í tilefni af því bauð Haraldur í partí þar sem nýr fjörmálastjóri staðarins, eins og því er lýst, Margrét Erla Maack bauð gesti velkomin á nýja staðinn. Hekla Elísabet uppistandari byrjaði svo með látum og því næst stigu á stokk tónlistarkonurnar GDRN, Ragga Gísla og Ásdís sem stilltu stuðið í botn. Það fór vel á með Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra og leikarahjónunum Unni Ösp Stefánsdóttur og Birni Thors. Fullt var út úr húsi og þurfti flamingói sem vafraði um staðinn, að hafa sig allan við til þess að halda jafnvægi í mannhafinu. Það var margt um manninn í partíinu. Staðurinn var vel sóttur í partíinu. Meðal gesta voru, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, leikarahjónin Unnur Ösp Stefánsdóttir og Björn Thors, nýju foreldrarnir Saga Sig og Villi naglbítur, Elísa Reid forsetafrú kom með tvo sendiherra með sér, Davíð Helgason frumkvöðull og eiginkona hans Isabella Lu Warburg, baráttueiginkonurnar Ingileif Friðriksdóttir og María Rut, Selma Björnsdóttir söng-og leikkona, leikararnir Ingvar E. Sigurðsson, Jörundur Ragnarsson og Gunnar Hansson, hönnunarkóngurinn og stofnandi Epal Eyjólfur Pálsson. Davíð Helgason í Unity mætti með Isabellu Lu Warburg eiginkonu sinni. Fyrir aftan þau er Arnhildur Lillý Karlsdóttir sem var með glæsilegan hatt. Birna Einarsdóttir fyrrverandi bankastjóri, Edda Falak nýkrýndur Íslandsmeistari í Jiu-Jitsu, stuðboltarnir Sif Jóhannesdóttir, Diljá Ámundadóttir, Allý Sveinsdóttir og Sóley Kristjánsdóttir, vinkonurnar Edda Björgvins og Vala Matt, rithöfundurinn Kamilla Einarsdóttir, fjölmiðlakonurnar Brynja Þorgeirsdóttir, Marta María og allskonar skemmtileg fólk. Nína Richter í hrókasamræðum á góðri stundu. Fólk naut lífsins á Önnu Jónu, þar sem var nóg pláss þrátt fyrir að stór flamengói væri á gólfinu. Rakel Tómasdóttir fór yfir málin. Gestum var boðið upp á freyðivín. En ekki hvað. Kolbeinn Tumi Daðason ræðir við kærustu sína Selmu Björnsdóttur og Önnu Sigríði Arnarsdóttur. Eiginmaður Önnu, Pétur Blöndal, er í baksýn. Edda Falak og Ingileif Friðriksdóttir fylgjast glaðar í bragði með dóttur Ingileifar og Maríu Rutar, sem hefur meiri áhuga á ljósmyndaranum. GDRN söng sína ljúfu tóna í partýinu. Sóley Kristjánsdóttir og Sif Jóhannsdóttir voru í góðum gír. Þær eru nýkomnar til landsins eftir vel heppnaða göngu á Jakobsstígnum. Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir skemmti liðinu. Villi naglbítur og sonur lyfta þumli til Ingileifar Friðriksdóttur og dóttur hennar. Saga Sig ljósmyndari brosir út að eyrum. Ingvar E. Sigurðsson, Sigtryggur Magnason og Jörundur Ragnarsson. Hjónin Brynja Nordquist og Þórhallur Gunnarsson létu sig að sjálfsögðu ekki vanta í gleðina. Edda Björgvinsdóttir, Vala Matt og Halli skemmtu sér konunglega yfir skemmtiatriðum. Það er alltaf líf og fjör í kringum Kamillu Einarsdóttur. Birna Dröfn Jónasdóttir og Marta María Jónasdóttir í góðum félagsskap. Ragga Gísla og Eliza Reid forsetafrú. Ragga tók að sjálfsögðu lagið. Ásdís María Viðarsdóttir kom, sá og sigraði hjörtu gesta á Önnu Jónu í gær. Margrét Erla Maack sá svo sannarlega um að halda uppi stuðinu. Ragga Gísla er með'etta. Ásdís María Viðarsdóttir og Halldór Eldjárn voru hress.
Samkvæmislífið Veitingastaðir Reykjavík Mest lesið „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Fleiri fréttir „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Sjá meira