Sænskir arkitektar unnu baráttuna um Keldnalandið Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 26. september 2023 16:00 Teikning sem sýnir vinningstillögu FOJAB arkitekta í alþjóðlegri samkeppni um þróun Keldnalands. FOJAB Sænska arkitektastofan FOJAB bar sigur úr býtum í alþjóðlegri samkeppni Reykjavíkurborgar og Betri samgangna um nýtt sjálfbært borgarhverfi að Keldum. Greint var frá úrslitunum í Ráðhúsinu nú síðdegis. Danska verkfræðistofan Ramboll var í ráðgjafahlutverki í vinningstillögunni.
Þrjátíu og sex tillögur bárust í fyrri áfangann í apríl og lagðist dómnefnd yfir leggjast tillögurnar og valdi fimm sem voru þróaðar áfram. Þeir fimm fengu frest til 18. ágúst til að skila inn fullunnum tillögum. Nú liggur endanleg niðurstaða fyrir. Fram kemur á vef Reykjavíkurborgar í dag að í verðlaunatillögunni sé lögð áhersla á að einfalt sé fyrir íbúa að lifa sjálfbæru og heilbrigðu hversdagslífi vegna nálægðar við náttúruna, með grænum svæðum, hverfisgörðum og torgum. „Skipulag nýs hverfi að Keldum markar ný og spennandi tímamót í þróun borgarinnar,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og formaður dómnefndar um þróun Keldnalands. Keldur verði tímamótahverfi þar sem það gangi út frá tilkomu Borgarlínu og öflugum virkum ferðamátum frá fyrsta degi. Hverfið verði lifandi, spennandi og hlýlegt allt í senn. „Keldur verða þétt, fjölbreytt og grænt borgarhverfi, sem nýtur góðs af nálægð við náttúruna og hágæða almenningssamgöngum, Borgarlínu. Keldur verða meðal annars tímamótahverfi þar sem það gengur út frá tilkomu Borgarlínu og öflugum virkum ferðamátum frá fyrsta degi. Hverfið verður lifandi, spennandi og hlýlegt allt í senn,“ segir hann. Góður leiðarvísir fyrir þróunarvinnuna fram undan Tvær tillögur til viðbótar hlutu viðurkenningu. Verðlaunatillagan, auk þeirra tveggja sem hlutu viðurkenningu, móta grunn að góðri forsögn fyrir áframhaldandi vinnu við hönnun og þróun. Gert er ráð fyrir að lágmarki tíu þúsund manna byggð á svæðinu og að fimm þúsund manns starfi þar. Mynd úr vinningstillögu FOJAB. Til viðbótar við það markmið að á Keldnalandi rísi spennandi nútímahverfi er sá grunnur að það byggi á vistvænum samgöngum og stuðli að kolefnishlutlausu borgarsamfélagi. Það markmið helst í hendur við að Borgarlínan mun liggja í gegnum hverfið og verður áhersla á þjónustu og atvinnustarfsemi í kringum stöðvar hennar. Stefnt er að því að þjónusta Borgarlínunnar hefjist samhliða afhendingu á fyrstu 100 íbúðunum. Áætlaður ferðatími með Borgarlínunni að Lækjartorgi er í kringum 20 mínútur. Metnaðarfull markmið í borgarþróun Í dómnefndaráliti segir að viðfangsefni samkeppninnar, eins og þau komu fram í keppnislýsingu, endurspegli metnaðarfull markmið í borgarþróun, sem ekki eigi sér fordæmi á Íslandi. Myndir úr vinningstillögu FOJAB. „Hugsanlega verður litið á einhver þeirra með tortryggni, til dæmis þau sem snúa að kolefnishlutleysi og raunverulegri fjölbreytni í ferðamátum, í borg þar sem íbúar eru háðir einkabílnum og byggðin er fremur dreifð miðað við íbúafjölda. Eftir skoðun á tillögunum telur dómnefndin þó enn raunhæfara en áður að markmiðin náist og Keldnaland verði mikilvægt fordæmi við mótun annarra nýrra hverfa,“ segir í álitinu. Markmiðið er lifandi borgarumhverfi „Tillagan er byggð á reglubundinni notkun byggðarreita meðfram sannfærandi og raunhæfri leið fyrir Borgarlínu, með vel staðsettum stöðvum og hverfiskjörnum. Með þessu nýtist landið vel og dreifing þéttleikans er sveigjanleg en leiðir eru jafnframt greiðar gegnum byggðina,“ segir í dómnefndaráliti um vinningstillöguna. Þar er einnig minnst á að í tillögunni sé sett fram ítarlegt og ígrundað net leiða fyrir alla ferðamáta, sem rími vel við blöndun byggðar og staðsetningu þjónustu. Mynd úr vinningstillögu FOJAB. Magdalena Hedman, arkitekt og verkefnisstjóri tillögunnar hjá FOJAB, segir að áhersla á kolefnishlutleysi setji mark sitt á skipulagsvinnuna og sömuleiðis að borgarhverfi sem þetta sé frekar óalgengt á Íslandi. „Arkitektúrinn í tillögu okkar miðast við mannlegan skala – þrjár til fimm hæðir – en er á sama tíma nógu þéttur og vel tengdur til að skapa lifandi borgarumhverfi,“ segir hún. Heildarstigafjöldi réð úrslitum Samkeppnin, sem fór af stað í janúar á þessu ári, fór fram í tveimur þrepum. Alls bárust 36 tillögur og voru fimm valdar til frekari vinnslu. Samkeppnin var nafnlaus á báðum þrepum og var dómnefnd ókunnugt um hvaða teymi stóðu að hverri tillögu við mat og stigagjöf tillagnanna. Heildarstigafjöldi, sem byggði á mati á 14 viðfangsefnum, réði úrslitum. Greidd var 50.000 evru þóknun fyrir vinnu hvers teymis á öðru þrepi og til viðbótar fær verðlaunatillagan aðrar 50.000 evrur. Tillögurnar fimm eru verðlaunatillagan Crafting Keldur, sem hlaut 536 stig, Connect Fast + Live Slow (420 stig – viðurkenning), Urban Life Meets Keldur Park (396 stig– viðurkenning), The Green River (314 stig) og Keldur - weaving natural and urban fabrics (311 stig). Framundan er hönnunar- og skipulagsvinna Mikilvægt er að hafa í huga að þróunarvinna og skipulagsgerð er á frumstigi þó samkeppni sé lokið og að nú liggi fyrir góð forsögn fyrir áframhaldandi vinnu. Nálgunin í tillögunum og myndefni í þeim þarfnast töluverðrar úrvinnslu og mun breytast í áframhaldandi skipulagningu og hönnun, áður en skipulagsáætlanir verða staðfestar og framkvæmdir geta hafist. Skipulagningu og uppbyggingu verður skipt í minni áfanga og ljóst að svo stór og fjölmenn byggð rísi ekki á skömmum tíma. Reykjavíkurborg og Betri samgöngur eru að hefja næsta áfanga við þróun svæðisins. Nú hefst formleg tillögugerð í samráði við hagsmunaaðila, íbúa og ráðgjafa við frekari þróun fyrirliggjandi hugmynda, vinnslu rammahluta aðalskipulags Reykjavíkur fyrir svæðið og mótun deiliskipulags fyrir fyrstu hluta uppbyggingarinnar. Sýning á tillögunum fimm stendur yfir í Tjarnarsal Ráðhússins en henni lýkur 2. október. Öll velkomin. Fréttin hefur verið uppfærð.
Skipulag Reykjavík Arkitektúr Tengdar fréttir 36 tillögur bárust í samkeppni um þróun Keldnalands Þrjátíu og sex tillögur bárust um nýtt sjálfbært borgarhverfi að Keldum í fyrri áfanga alþjóðlegrar samkeppni um þróun Keldnalands. Dómnefnd mun nú leggjast yfir tillögurnar og velja fimm sem verða þróaðar áfram. 21. apríl 2023 13:00 Samgöngusáttmáli í fullu gildi og stórframkvæmdir í undirbúningi Innviðaráðherra segir mörg stór verkefni framundan samkvæmt samgöngusáttmála við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu. Kostnaður við mörg þeirra aukist eðlilega með verðlagi og þróun verkefnanna. Samanlagt fylgi við stjórnarflokkanna hefur ekki mælst minna frá kosningunum 2021. 3. mars 2023 19:41 Borgin ryður land fyrir 7-9 þúsund nýjar íbúðir og atvinnuhúsnæði Nýtt hverfi með sjö til níu þúsund íbúðum fyrir um tuttugu þúsund íbúa mun rísa á næstu árum á Keldnalandi. Formaður borgarráðs er bjartsýnn á að byggingaframkvæmdir geti hafist eftir um tvö ár en uppbyggingin er mjög tengd borgarlínu. 20. desember 2022 19:31 Nýtt hverfi í Reykjavík rís á Keldnalandinu Á næstu árum mun rísa nýtt hverfi á Keldum og Keldnaholti en ríkið afsalaði sér landinu með formlegum hætti til Betri samgangna ohf. í gær. Skipulagsvinna hefst strax á næsta ári en svæðið er sagt vera álíka stórt og miðborg Reykjavíkur. 20. desember 2022 12:35 Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Fleiri fréttir Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Sjá meira
36 tillögur bárust í samkeppni um þróun Keldnalands Þrjátíu og sex tillögur bárust um nýtt sjálfbært borgarhverfi að Keldum í fyrri áfanga alþjóðlegrar samkeppni um þróun Keldnalands. Dómnefnd mun nú leggjast yfir tillögurnar og velja fimm sem verða þróaðar áfram. 21. apríl 2023 13:00
Samgöngusáttmáli í fullu gildi og stórframkvæmdir í undirbúningi Innviðaráðherra segir mörg stór verkefni framundan samkvæmt samgöngusáttmála við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu. Kostnaður við mörg þeirra aukist eðlilega með verðlagi og þróun verkefnanna. Samanlagt fylgi við stjórnarflokkanna hefur ekki mælst minna frá kosningunum 2021. 3. mars 2023 19:41
Borgin ryður land fyrir 7-9 þúsund nýjar íbúðir og atvinnuhúsnæði Nýtt hverfi með sjö til níu þúsund íbúðum fyrir um tuttugu þúsund íbúa mun rísa á næstu árum á Keldnalandi. Formaður borgarráðs er bjartsýnn á að byggingaframkvæmdir geti hafist eftir um tvö ár en uppbyggingin er mjög tengd borgarlínu. 20. desember 2022 19:31
Nýtt hverfi í Reykjavík rís á Keldnalandinu Á næstu árum mun rísa nýtt hverfi á Keldum og Keldnaholti en ríkið afsalaði sér landinu með formlegum hætti til Betri samgangna ohf. í gær. Skipulagsvinna hefst strax á næsta ári en svæðið er sagt vera álíka stórt og miðborg Reykjavíkur. 20. desember 2022 12:35