Forgangsverkefni / hurfu í money heaven Davíð Bergmann skrifar 19. september 2023 11:31 Er ekki eitthvað vitlaust gefið hérna þegar 9000 milljónir fara í hindurvitna stofnun eins og kirkjuna og 15-17 þúsund milljónir í innflytjendur. Hvað hafa farið mörg þúsund milljónir í höfuðstöðvar Landsbankans og af hverju er ekki fyrir löngu búið að reisa þennan langþráða nýja Landspítala. Hvernig var það, átti ekki salan á Símanum að fara í hann fyrir 20 árum síðan eða hurfu þeir peningar bara upp í money heaven. Af hverju verður stærsti vinnustaður landsins að vera niður í miðbæ Reykjavíkur sem er ekki einu sinni miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Síðan líka í umferðalegu tilliti er þessi staðsetning algjört klúður. Ef nýi Landsspítalinn væri miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu þá hefði hann þurft að vera í Kópavogi. Það hefði verið hægt að brúa yfir í Nautholtsvík til að nýta sjúkraflugið á Reykjavíkurflugvelli. En það er tómt mál að tala um það núna því það er löngu búið að skipuleggja það svæði og það er mikil uppbygging búin að eiga sér stað þar nú þegar. En hefði kannski verið valkostur þegar símapeningarnir voru til, áður en þeir hurfu upp í money heaven munið þið. Ég hef velt þessu töluvert fyrir mér hver á forgangarðsröðunin að vera að undanförnu, sér í lagi vegna þess að ég hef þurft að fara með karl föður minn þrisvar sinnum á bráðadeild Landspítalans nærri dauða lífi á síðast liðnum einum og hálfum mánuði. Í öll þessi þrjú skipti hefur hann verið lagður inn. Þegar ég er að skrifa þetta er hann í einangrun á Borgarspítalanum út af því að hann er sýktur af Covid veirunni. Hana krækti hann sér í, í síðustu spítala innlögn sem var fyrir nokkrum dögum síðan þá lá hann inni að ég held í það skiptið í tvær vikur. Á þessum einum og hálfum mánuði hefur pabbi gamli verið sendur heim tvisvar ósjálfbjarga sem hlýtur að teljast algjört glapræði. Ég vil taka það fram að hér er ekki verið að sakast út í sjálft heilbrigðisstarfsfólkið heldur fjárveitingavaldið og stjórnvaldið sem stjórnar þessum málaflokki. Sú sem hefur tekið við honum þegar hann kemur heim er móðir mín 82 ára sem er sjálf mikill sjúklingur og bíður eftir því að komast í aðgerð sem verður vonandi í lok þessar mánaðar eða í byrjun næsta. Hún hefur verið á biðlista að komast í þessa aðgerð í marga mánuði. En eitt veit ég að hún er í engu standi til að sinna pabba fárveikum svona á sig komin, því hún getur enga veginn staðið undir sjálfum sér í dag. En til að bæta gráu ofan á svart liggur hún núna þessa stundina heima mjög veik og með covid líka. Ég vil taka það fram að pabba finnst hann vera taka pláss frá öðrum og að hann eigi hvergi annars staðar að vera en á hjúkrunarheimili en ekki í dýrasta spítalaplássi landsins. Þeir sem þekkja gamla brýnið vita að hann hefur verið ódrepandi fram að þessu og þessi ótrúlega vestfirska seigla og þrjóska hefur að togað hann í gegnum ótrúlegustu raunir þjáningar og orðinn þetta fullorðinn 90 ára gamall dag. Ég hugsa að ég myndi sjálfur hafa gefist upp fyrir löngu síðan. Hann er einn af þessum sem hefur unnið með tveimur jafnsterkum hvort heldur til sjós eða á landi skilað sínu til samfélagsins og aldrei stolið krónu réttsýnn maður og vill helst ekkert láta hafa fyrir sér það er hans líf í hnotskurn. En núna þarf að hann þjónustu með þrjár hjartalokur virkar af fjórum og með æxli djúpt í lunga, fætinum styttri eftir að hafa misst hann í apríl 2012. (Vegna viðurkenndra lækna mistaka). Okkur hefur verið gert grein fyrir því að læknisfræðin geti ekki gert meira fyrir hann annað en að lina þjáningar hans með lyfjum, því hann er ekki skurðtækur með þrjár hjartalokur virkar. Jæja nóg af raunum þeirra gömlu, en það hefur vakið mig til umhugsunar við þessar innlagnir hans pabba sem hafa allar byrjað á því að hann fer á Bráðamóttökuna. Sú deild er full af gömlu fárveiku fólki og ungum fárveikum fíklum sem eru ráfandi um gangana. Skiljanlega fer gamli maður þangað inn til að greina vanda hans. En á hann ekki að hafa pláss á hjúkrunarheimili þar sem hann fær þjónustu allan sólarhringinn en ekki tvisvar í viku eins og henni er háttað dag, þá kemur heimahjúkrun tekur lífsmörk hjá honum og hann fær að fara í bað var að aukast í tvisvar í viku fyrir nokkrum vikum síðan var einu sinni í viku áður. Hvernig er það er hann ekki búinn að vinna fyrir því að komast í sólarhringsþjónustu svona á sig kominn og þetta gamall? Hver er forgangsröðunin hér á landi? Hvað með fólkið okkar sem byggði upp stoðþjónustu kerfin okkar, hvar eru þau í forgangsröðinni, af hverju kemur til með að vanta 700 hjúkrunar rými á næstu árum í Reykjavík af hverju er ekki löngu búið að hugsa fyrir því og klára að byggja þau rými vitandi það hver aldursskipting þjóðar er? Auðvitað finn ég til með flóttafólki en ég finn meira til með gamla fólkinu okkar sem verðskuldar að fá sína þjónustu og við sitt hæfi sem það hefur svo sannarlega unnið fyrir með hörku og dugnaði. Það á ekki að liggja á göngum spítalanna og það á ekki að mæta afgangi. Við eigum að koma vel fram við það á síðustu ævi árum þeirra og af virðingu. Höfundur er bifhjólamaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Davíð Bergmann Mest lesið Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun Slaufun, skautun, skömmun Örn Bárður Jónsson Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun NEI! Atlaga að lýðræði og svipting kosningaréttar Magnús Jónsson Skoðun Verðbólgan er stærsti einstaki uppruni hagnaðar á Íslandi Egill Almar Ágústsson Skoðun Að skilja, eða skilja ekki, umræðuna Lúðvík Bergvinsson Skoðun Grein fyrir óákveðna kjósendur og nei-sinna Magnea Marinósdóttir Skoðun „Vilja til að ganga í Evrópusambandið“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Fullveldi þjóðar og frelsi einstaklings Pétur B. Sveinsson Skoðun Er Marta Kos einnig að plata?.. en það má ekki plata Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Kerfislægt virðingarleysi – Þegar sparað er í velferð en verðmæti sameignar renna annað Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rífum í lóðin Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Maðurinn einn er ei nema hálfur – með öðrum er hann meiri en hann sjálfur Kristín Bjarnadóttir skrifar Skoðun Slaufun, skautun, skömmun Örn Bárður Jónsson skrifar Skoðun When Path Dependence Becomes an Argument for Saying No Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Grein fyrir óákveðna kjósendur og nei-sinna Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Fullveldi þjóðar og frelsi einstaklings Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun „Vilja til að ganga í Evrópusambandið“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson skrifar Skoðun Að skilja, eða skilja ekki, umræðuna Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun NEI! Atlaga að lýðræði og svipting kosningaréttar Magnús Jónsson skrifar Skoðun Verðbólgan er stærsti einstaki uppruni hagnaðar á Íslandi Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir skrifar Skoðun Síli veidd í skólpi Jónas Már Torfason ,Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Er Marta Kos einnig að plata?.. en það má ekki plata Júlíus Valsson skrifar Skoðun Ég skil ekki nei fólk Einar Steinþórsson skrifar Skoðun Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson skrifar Skoðun Erfingjar og erfðarmál Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad skrifar Skoðun Fimmtugt er ekki biðstofa Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Horfum á heildarmyndina – og til lengri tíma Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hvar hefur 400.000 manna þjóð mest áhrif? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Hvernig ákveður þjóð sig? - Samhygð á undanhaldi Davíð Brynjar Sigurjónsson skrifar Skoðun Siðferðiskirtillinn Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Spörum milljarða Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Drottningaviðtal – þegar ein rödd fær sviðið Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar náttúran verður okkur framandi Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Af hverju aðildarviðræður? Björn Leví Gunnarsson skrifar Sjá meira
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun
Skoðun Kerfislægt virðingarleysi – Þegar sparað er í velferð en verðmæti sameignar renna annað Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Maðurinn einn er ei nema hálfur – með öðrum er hann meiri en hann sjálfur Kristín Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir skrifar
Skoðun Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson skrifar
Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad skrifar
Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Almenningur ákveður 29. ágúst hvort vextir verða 3–4% eða 8–9% og áhætta þjóðarinnar verði mikil eða lítil næstu 30 árin Baldur Pétursson Skoðun