Magnaður endurkomusigur Liverpool með Nunez í hlutverki hetju Smári Jökull Jónsson skrifar 27. ágúst 2023 17:34 Nunez fagnar öðru marka sinna í dag. Vísir/Getty Liverpool vann frábæran endurkomusigur gegn Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í dag. Einum færri tókst Liverpool að snúa leiknum sér í vil og varamaðurinn Darwin Nunez reyndist hetjan undir lokin. Leikurinn fór ekki vel af stað fyrir Liverpool. Strax í upphafi fékk Trent Alexander-Arnold gult spjald og skömmu síðar vildu leikmenn Newcastle fá seinna spjaldið á Alexander-Arnold en John Brooks sleppti enska landsliðsmanninum. Newcastle náði forystunni skömmu síðar. Áðurnefndur Alexander-Arnold gerði þá skelfileg mistök, Anthony Gordon slapp einn í gegn og kláraði frábærlega undir Alisson. Stuttu seinna fékk Virgil Van Dijk síðan beint rautt spjald fyrir að brjóta á Alexander Isak sem var að sleppa í gegnum vörn Newcastle. Van Dijk var afar ósáttur með spjaldið, vildi meina að hann hefði farið í boltann en Brooks stóð fast á sínu og VAR staðfesti spjaldið skömmu síðar. Debate: Red card or no red card? pic.twitter.com/l7FW3C0082— Football Tweet (@Football__Tweet) August 27, 2023 Einum fleiri voru Newcastle sterkari aðilinn. Alisson í marki Liverpool bjargaði liðinu á stórkostlegan hátt þegar hann varði skot Miguel Almiron í þverslána og staðan 1-0 í hálfleik. Liverpool náði ágætum köflum inn á milli en gekk erfiðlega að halda boltanum. Í upphafi seinni hálfleiks sóttu leikmenn Newcastle meira og flest benti til þess að liðið myndi bæta við mörkum. Jurgen Klopp gerði breytingar á sínu liði og Eddie Howe gerði þrefalda skiptingu á 72. mínútu og skipti Anthony Gordon meðal annars útaf sem hafði verið besti maður Newcastle í leiknum. Ótrúlegur viðsnúningur Við þessa breytingu var eins og Liverpool fengi vítamínssprautu. Darwin Nunez og Harvey Elliott komu sterkir inn af bekknum og þegar Sven Botman urðu á mistök í vörn heimamanna á 81. mínútu var Nunez ekki lengi að nýta sér þau og kláraði færi sitt frábærlega. Bæði lið fengu sóknir eftir jöfnunarmarkið. Í uppbótartíma átti Mohamed Salah hins vegar frábæra stundusendingu innfyrir á Nunez sem kláraði virkilega vel í annað sinn. Staðan 2-1 fyrir Liverpool sem urðu lokatölur leiksins. GET IN!! pic.twitter.com/8RuE6PFZXi— Liverpool FC (@LFC) August 27, 2023 Ótrúleg endurkoma og lærisveinar Eddie Howe hljóta að naga sig duglega í handarbökin fyrir að hafa misst forystu niður í tapaðan leik. Enski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti